-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Midnight laces |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Vivaldi með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um stroff): Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hlutum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 57-61-63-63-69-71 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) yfir 2 hringprjóna nr 5 með Vivaldi (þetta er gert til þess að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Takið annan prjóninn frá og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3-5-2-2-1-2 l sléttprjón, prjónið A.1a (= 4 l), endurtakið A.1b (= 8 l – mynstrið sýnir 2 mynstureiningar) þar til eftir eru 9-11-8-8-7-8 l, endið með A.1c (= 5 l), 3-5-2-2-1-2 l sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað á hæðina eru prjónaðar 4 umf sléttprjón (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni), áður en næsta umf er prjónuð er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 4-6-1-1-4-5 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.2 (= 12 l) þar til eftir eru 4-6-1-1-4-5 l, endið með 3-5-0-0-3-4 l sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 24-24-24-25-25-27 cm – passið uppá að það hafa verið prjónaðar 3 umf sléttprjón eftir 1 umf með gati, prjónið 2 umf sléttprjón til viðbótar. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3-2-0-0-0-1 l sléttprjón, prjónið A.3a (= 4 l), endurtakið A.3b (= 6 l – mynstrið sýnir 2 mynstureiningar) þar til eftir eru 7-6-4-4-4-5, endið með A.3c (= 3 l), 3-2-0-0-0-1 l sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 34-37-38-41-42 l cm – passið uppá að síðasta umf í A.3 sé eftir. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og fellið síðan mjög laust af. ERMI: Fitjið upp 58-65-65-72-72-79 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) yfir 2 hringprjóna nr 5 með Vivaldi (þetta er gert til þess að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Takið annan prjóninn frá og prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * A.5 (= 3l), 4 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm er öllum 4 l br fækkað til 3 l br með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri br einingu brugðið saman = 50-56-56-62-62-68 l. Þegar stykkið mælist 10 cm er prjónuð 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 3-9-5-11-9-15 l jafnt yfir = 47-47-51-51-53-53 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2-2-0-0-1-1 l sléttprjón, prjónið A.7a (= 4 l), endurtakið A.7b (= 8 l) þar til eftir eru 8-8-6-6-7-7 l, endið með A.7c (= 5 l), 2-2-0-0-1-1 l sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.7 hefur verið prjónað á hæðina eru prjónaðar 5 umf í sléttprjóni, prjónið síðan mynstur eftir A.2 til loka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5½-4-4½-3½-3½-3 cm millibili, 4-6-5-7-7-8 sinnum til viðbótar = 57-61-63-67-69-71 l - ATH: Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstur. Þegar stykkið mælist 38-39-38-39-38-38 cm er prjónuð 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er mjög laust af með sl frá réttu. Setjið 1 prjónamerki efst í hvorri hlið á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið eina ermi í hvora hlið á bakstykki – hér er mikilvægt að saumurinn verði ekki stífur, saumið jöfn og falleg spor þar sem þessi saumur er sýnilegur og situr frekar hátt á ermi (það er mikilvægt vegna hreyfivíddar í flíkinni). Saumið yst í lykkjubogann í lykkjum í garðaprjóni á bakstykki og innan við affellingarkant á ermi. Brjótið allt stykkið tvöfalt fyrir miðju þannig að langhliðar á bolero liggja á móti hvor annarri. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju við prjónamerki (eða óskaðri lengd), endurtakið á sama hátt á hinni erminni. STROFF: Prjónið upp frá réttu, ca 100 til 140 l í kringum allt opið á bolero á hringprjóna nr 5. Prjónið nú í hring á hringprjóna. Prjónið 1 umf brugðið, prjónið síðan 1 umf slétt JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 168-174-180-180-186-186 l (deilanlegt með 6). Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið a.5 (= 3 l), 3 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar kanturinn mælist 3 cm eru allar 3 l br auknar út til 4 l br – LESIÐ ÚTAUKNING = 196-203-210-210-217-217 l. Þegar kanturinn mælist 6-6-7-7-8-8 cm – stillið af að eftir 1 umf með gati í A.5 er prjónað A.6 í stað fyrir A.5 (aðrar l eru prjónaðar br eins og áður). Þegar A.6 hefur verið prjónað eru 252-261-270-270-279-279 l eftir á hringprjóninum. Fellið mjög laust af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6922 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (94)
Heike wrote:
Warum werden die Ärmel nicht direkt seitlich angestrickt? Das wäre doch viel sauberer und auch einfacher, anstatt sie anzunähen.
11.01.2022 - 10:34Chris wrote:
J’ai réalisé ce modèle en taille L (cotes exactes) avec 3 pelotes soit 75g et il le reste encore pas mal de fil sur la troisième pelote.
16.06.2020 - 22:11Thea wrote:
Waarom wordt er zo vaak gebruik gemaakt van rondbreinaalden? Als ik het patroon zo lees kan het prima op normale breinaalden
03.03.2017 - 09:19DROPS Design answered:
Hoi Thea. Rondbreinaalden wordt vooral gebruikt in Scandinavië - ook bij heen en weer breien. En dit zijn van oorsprong Noorse patronen. Ook kan je veel meer steken kwijt op een rondbreinaald dan op een rechte naald :) Maar vaak kan je ook heen en weer breien op rechte naalden als je denkt dat je de st kwijt kan.
06.03.2017 - 13:46Mich42 wrote:
Bonjour, Pourquoi faut il utiliser des aiguilles circulaires pour réaliser les dos et les manches de ce modèle? Les aiguilles circulaires ne sont elles pas préconisées pour un travail en rond? Merci pour votre réponse.
26.01.2017 - 08:36DROPS Design answered:
Bonjour Mich42, on tricote le dos et les manches en allers et retours sur l'aiguille circulaire (voir vidéo), puis on termine par la bordure, en rond autour de l'ouverture. Bon tricot!
26.01.2017 - 09:42Marie wrote:
Bonjour, Au tout début des manches on doit tricoter sur l'endroit A.5 (= 3 m), 4 m env. Mais il n'est pas dit comment on doit tricoter les 4 m env. sur l'envers. Merci d'avance. Cordialement, Marie
29.09.2016 - 08:46DROPS Design answered:
Bonjour Marie, ces 4 m env sur l'endroit se tricotent à l'end sur l'envers (= jersey env). Bon tricot!
29.09.2016 - 09:17Marie wrote:
Bonjour, En ce qui concerne les manches on parle d'un rang envers sur l'envers après le montage des mailles mais comment devons-nous tricoter le premier rang à l'endroit ? Pour votre info, je tricote avec des aiguilles droites et non circulaires. Merci d'avance. Cordialement, Marie
25.09.2016 - 18:56DROPS Design answered:
Bonjour Marie, pour les manches, le 1er rang (après le montage) se tricote sur l'envers, et le 2ème rang sera fait sur l'endroit. Bon tricot!
26.09.2016 - 10:52Barbara Martini wrote:
Buonasera, mi è sorto un dubbio, nei SUGGERIMENTO PER GLI AUMENTI (per i bordi a coste), ci sono indicazioni per come lavorare la maglia gettata, ma non capisco se vale solo per il bordo a coste da fare dopo la confezione o se tutte le maglie gettate (anche quelle del dietro e delle maniche) vanno lavorati come il suggerimento. Grazie ancora
16.03.2016 - 23:48DROPS Design answered:
Buongiorno Barbara. Le m che aumenta ai lati delle maniche e Nel bordo a coste vanno lavorate ritorte. Le m gettate dei diagrammi non vanno lavorate ritorte in quanto devono formare i buchi del motivo. Ci riscriva se è ancora in difficoltà. Buon lavoro!
17.03.2016 - 06:42Barbara Martini wrote:
Buonasera, mi è sorto un dubbio, nei SUGGERIMENTO PER GLI AUMENTI (per i bordi a coste), cinsinonindicazioni per come lavorare la maglia gettata, ma non capisco che vale solo per il bordo a coste da fare dopo la confezione o sè tutte le maglie gettate (anche quelle del dietro e delle maniche) vanno lavorati come il suggerimento. Grazie ancora
16.03.2016 - 23:46DROPS Design answered:
Buongiorno Barbara. Le m che aumenta ai lati delle maniche e nel bordo a coste vanno lavorate ritorte. Le m gettate dei diagrammi non vanno lavorate ritorte in quanto devono formare i buchi del motivo. Ci riscriva se è ancora in difficoltà. Buon lavoro!
17.03.2016 - 06:42Morgana wrote:
Ancora un dubbio: per il dietro, si inizia con due ferri a diritto, con il 3 ferro si inizia il diagramma A.1 a "maglia rasata", ma il 3 ferro è tutto un diritto o tutto rovescio?
14.03.2016 - 22:00DROPS Design answered:
Buonasera Morgana, il 1° ferro del diagramma A.1 è un ferro dal diritto del lavoro, per cui lavorato a diritto. Si ricordi che i diagrammi si leggono dal basso verso l'alto e da destra verso sinistra. Buon lavoro!
14.03.2016 - 22:23Morgana wrote:
Negli aumenti della manica dovendo passare da 53 maglie (comprensive dei vivagni) a 71 maglie eseguendo il diagramma A.2 con contestuali aumenti, la prima maglia è sempre una maglia di vivagno? quindi le maglie finali (71) sarebbero 69 maglie + le 2 di vivagno? Grazie
14.03.2016 - 18:37DROPS Design answered:
Buonasera Morgana. Quando aumenta, la prima e l'ultima m sul ferro sono m vivagno. Quindi, alla fine degli aumenti, avrà 2 m vivagno + 69 m lavorate seguendo il motivo. Buon lavoro!
14.03.2016 - 21:21