DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Captain Jacks hat

Prjónuð húfa fyrir börn með hauskúpu mynstri og hálsskjól úr DROPS Lima stærð 3-12 ára.

DROPS Children 23-27
DROPS design: Mynstur nr li-002-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------
HÚFA:
Stærð: 3/7 - 8/12 ára
Höfuðmál: 50/52 - 53/55 cm
Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
50-100 g nr 9015, grár
50-50 g nr 8903, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur x 30 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm á breidd.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) nr 3 – fyrir stroff

HÁLSSKJÓL:
Stærð: 3/5 - 6/9 – 10/12 ára
Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100-100-100 g nr 9015, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur x 30 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm á breidd.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.
-------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1, allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
-------------------------------------------------------

Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og síðan á sokkaprjóna.
Fitjið upp 104-120 lykkjur á hringprjón 3 með grár. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og haldið áfram með sléttprjón – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 6-8 lykkjur jafnt yfir = 98-112 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5 cm, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með svartur, 2 umferðir garðaprjón með grár og 2 umferðir garðaprjón með svartur. Prjónið síðan A.-1 (= 7-8 mynstureiningar hringinn). Eftir A.-1 eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón með svartur, 2 umferðir garðaprjón með grár og 2 umferðir garðaprjón með svartur. Haldið áfram með sléttprjón og grár til loka. Þegar stykkið mælist 14-16 cm, setjið 7 prjónamerki í stykkið með 14-16 lykkju millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir öllum prjónamerkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 4-6 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 7-7 sinnum = 14-14 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Húfan mælist ca 19-22 cm á hæðina.
-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

----------------------------------------------------------

Fitjað er upp neðst niðri á framstykki og fellt er af neðst niðri á bakstykki, kraginn er prjónaður á í lokinn.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 46-50-54 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Haldið áfram með sléttprjón og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFEESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-10 cm eru felldar af miðju 16-18-20 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón að hlið – jafnframt er lykkjum fækkað í hverri umferð frá hálsi: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 7-8-9 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist alls 13-14-16 cm, setjið 1 prjónamerki (= mitt á öxl) – héðan er nú mælt! Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur að hálsi og síðan eru lykkjur settar á þráð. Prjónið hinn hlutann alveg eins, en prjónið að auki 1 umferð til baka eftir að fitjaðar hafa verið upp 2 lykkju við háls þannig að endað sé á réttu eða á röngu á báðum öxlum.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af annarri öxlinni á prjóninn. Fitjið upp 28-30-32 lykkjur og prjónið inn lykkjur frá hinni öxlinni = 46-50-54 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-13-15 cm frá prjónamerki á öxl eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón. Fellið síðan af.

KRAGI:
Prjónið upp ca 76 til 90 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt jafnframt því sem aukið er út jafnt yfir til 88-96-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar kraginn mælist 8-9-10 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

----------------------------------------------------------
Peysa – sjá DROPS Children 23-26
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = grár
symbols = svartur
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Linnéa Grahn wrote:

Hej! Ang halsvärmaren. När man har stickat framstycket, står det ”Sticka tillbaka m från den ena axeln in på st, Lägg upp 28-30-32 m och sticka in m från den andra axeln på st ”, är inte tanken att bakstycket ska vara en kopia av framstycket? På framstyckets la jag upp successivt upp maskor för att få som en halvcirkel. Om jag på bakstycket ska lägga upp 32 maskor direkt, då blir ”halshålet” mer som ett D än ett O, ska det vara så, eller vad missförstår jag?

19.11.2021 - 17:18

DROPS Design answered:

Hei Linnéa. Ja, det stemmer at "halshullet" blir som en D. Da blir det en mer "utringning foran og en "forhøyning" bak. Halsen vil da føles bedre å ha på seg. mvh DROPS Design

23.11.2021 - 08:50

country flag Emilie wrote:

Skal der lukkes masker af på hver pind over skulderen, eller kun de pinde, som starter fra halsåbningen (altså hver anden pind)?

08.03.2019 - 15:24

DROPS Design answered:

Hej Emilie, Du lukker masker af til hals på hver 2. pind, hver gang du strikker fra halsen og ud mod skulderen. God fornøjelse!

12.03.2019 - 09:11

Melanie wrote:

In the captain jack had with skulls the pattern says to go from a stocking stich to the garder stich but leaves out the knitted riws between the stocking and garder stich.

20.11.2017 - 05:26

DROPS Design answered:

Dear Melanie, when the hat measures 4-5 cm (see size), work 2 rounds in garter st (= 1 ridge in black), then 1 ridge in grey and 1 ridge in black, then work diagram A.1. Happy knitting!

20.11.2017 - 10:11

country flag Mona wrote:

Hallo Ich abe ein frage zu den Abnahmen. Man soll 7 Makierungen setzten aber in den ersten Abnahmerunden 6x abhnehmen, muss ich die letzte Makierung ohne Abnahme lassen? und wie oft soll man in jeder 2. Runde Abnehmen bis man in jeder Runde abnimmt. Ich hoffe ich habe das verständlich rübergebracht ;) Danke

11.11.2015 - 06:37

DROPS Design answered:

Sie machen die Abnahmen immer an allen Markierern, d.h. 7 Abnahmen pro Rd. 6x bedeutet, dass Sie 6 Abnahme-Rd haben. Sie machen dann immer eine Zwischenrunde ohne Abnahmen, das bedeutet in jeder 2. Rd. Also: 1. Rd: 7 Abnahmen. 2 Rd: keine Abnahmen. 3. Rd: 7 Abnahmen. 4. Rd: keine Abnahmen. 5. Rd: 7 Abnahmen. 6. Rd: keine Abnahmen usw., bis Sie insgesamt 6 Rd mit Abnahmen gearbeitet haben, danach nehmen Sie dann in jeder Rd ab und zwar in 7 Abnahme-Rd.

18.11.2015 - 11:21

country flag Mai-Britt wrote:

Kan ikke se hvor mange masker der skal strikkes mellem hver dødningehovede. Og hvad menes der med = 7-8 rapporte. På mønstret til struberne står der man kun skal strikke ret, men på billede af huen er der vrang mønster.

03.02.2014 - 12:29

DROPS Design answered:

Hej Mai-Britt. Du skal gentage diagrammet A-1 over alle masker (98 eller 112 m). Dvs, der kommer f.eks 2 masker graa mellem hver hoved i raekke 4, 4 m i raekke 9 osv. 7-8 rapporter er gentagelser af diagrammet (14 m per gentagelse af A-1 over 98 eller 112 m)

04.02.2014 - 14:16

country flag Erika wrote:

På halsen burde det vel være noen riller til avslutning på bakstykket også?

23.01.2013 - 23:51

DROPS Design answered:

Tak. Jeg tror du har ret. Vi kigger paa modellen og sörger for rettelse naar vi ved det.

14.02.2013 - 13:46