DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 6-1
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 0/3-6/9-12/18 mán -(2-3/4-5/6) ára.
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/78 (86/92-98/104-110/116)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
300-300-350 (400-450-450)gr nr 1, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með stærð 3,5 og M.4 verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS TRÉTALA NR 520: 5-6-6 (6-7-7) st,
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI.
Fitjið upp 122-134-146 (166-178-190) lykkjur (meðtaldar 2 kantlykkjur að framan) á hringprjón 3 með natur og prjónið 3 cm stroff = * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt því sem auknar eru út 32-32-32 (40-40-40) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 154-166-178 (206-218-230) lykkjur. Eftir garðaprjón er mynstur prjónað upp úr þannig (byrjið mynstur frá réttu):
Stærð 0/3 - 6/9 - 12/18 mán:
1 kantlykkja, M.3, M.2, M.3, 12-18-24 lykkjur af M.4, M.3, M.2, M.3 (= miðja að aftan), M.3, M.2, M.3, 12-18-24 lykkjur af M.4, M.3, M.2, M.3, 1 kantlykkja.
Stærð 2 - 3/4 - 5/6 ára:
1 kantlykkja, M.3, M.2, M.1, (18-24-30) lykkjur af M.4, M.1, M.2, M.3 (= miðja að aftan), M.3, M.2, M.1, (18-24-30) lykkjur af M.4, M.1, M.2, M.3, 1 kantlykkja.
Haldið áfram að prjóna mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24-27 (28-29-31) cm prjónið næstu umferð þannig: 36-39-42 (49-52-55) lykkjur framstykki, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 70-76-82 (96-102-108) lykkjur bakstykki, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 36-39-42 (49-52-55) lykkjur framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 36-39-42 (49-52-55) lykkjur. Fellið síðan af fyrir handveg í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-0-0 (1-1-1) sinni, 1 lykkja 2-2-2 (3-3-2) sinnum = 29-34-37 (41-44-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35 (36-40-43) cm fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 9-10-11 (12-15-16) lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni. Fellið af þegar stykkið mælist 33-35-39 (41-45-48) cm jafnframt þar sem í næst síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir M.3 í öllum stærðum og 2 lykkjur jafnt yfir M.1 í 3 stærstu stærðum.

BAKSTYKKI:
= 70-76-82 (96-102-108) lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki = 56-66-72 (80-86-94) lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-33-37 (39-43-46) cm fellið af miðju 22-24-26 (28-34-36) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni. Fellið af þegar stykkið mælist 33-35-39 (41-45-48) cm jafnframt í næst síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir M.3 í öllum stærðum og 2 lykkjur jafnt yfir M.1 í 3 stærstu stærðunum.

ERMI:
Fitjið upp
38-40-42 (44-44-48) lykkjur á sokkaprjóna 3 með natur og prjónið 3 cm stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið M.4. JAFNFRAMT eftir stroffið er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 3-4-5 (7-13-13) sinnum:
0/3 + 12/18 mán: Í 8. hverri umferð.
6/9 mán: Í 9. hverri umferð.
2 ára: Í 6. hverri umferð.
3/4 ára: Í 4. hverri umferð.
5/6 ára: Í 5. hverri umferð = 44-48-52 (58-70-74) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13-17-19 (19,5-24-27,5) cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fellið síðan af á hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 0-1-1 (1-1-2) sinnum, 2 lykkjur 1-0-1 (2-6-5) sinnum, 1 lykkja 5-4-3 (1-0-0) sinnum, 2 lykkjur 1-1-1 (2-0-0) sinnum, 3 lykkjur 1-1-1 (1-2-2) sinnum, fellið af þegar stykkið mælist ca 19-23-25 (26-31-34) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 65-70-80 (85-95-100) lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3 með natur og prjónið fram og til baka, 2 umferðir garðaprjón, 2,5 cm stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), 2 umferðir garðaprjón, fellið af. Endurtakið þetta meðfram hægra framstykki, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-6-6 (6-7-7) hnappagötum jafnt yfir, fellt er af fyrir efsta hnappagatinu eins hátt upp og mögulegt er (fellið e.t.v. af einu hnappagati færra á kanti að framan og fellið í stað af fyrir einu hnappagatið í kanti í hálsi eftir 1. umferðina) – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 120-150 lykkjur í kringum háls á hringprjón 3 með natur og prjónið stroff 2,5 cm. Fellið af. Saumið ermar í og tölur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.09.2019
Ný mynsturteikning M.2 (umferð 6)
Yfirfarið á vefsvæði: 17.10.2019
Leiðrétting: Fram- og bakstykki:..Stærð 2 - 3/4 - 5/6 ára:
1 kantlykkja, M.3, M.2, M.1, (18-24-30) lykkjur af M.4, M.1, M.2, M.3 (= miðja að aftan), M.3, M.2, M.1, (18-24-30) lykkjur af M.4, M.1, M.2, M.3, 1 kantlykkja.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
Leiðrétting í stærð 2-3/4-5/6 ára undir FRAM- OG BAKSTYKKI + FRAMSTYKKI + BAKSTYKKI.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 lykkja brugðin, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðin af hjálaparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálaparprjón fyrir aftan stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 6-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Karin Haas wrote:

Ik weet niet of het al opgevzllen is maar de maten heb ik opgezocht bij andere patronen van jullie. De aangegeven maten in cm corresponderen niet met de leeftijden. Er staat: 54-60-66 (74-80-86) cm. Dit moet zijn: 56, 62/68, 74/80 (92, 98/104, 110/116) Vriendelijke groet. Karin

17.04.2024 - 09:59

country flag Jeanette Woodburn wrote:

Hi,I\\\'m really struggling with this pattern, whwn the pattern is counted there are an extra 17 stitches on each side spare ,I\\\'ve tried to knit the pattern but doesn\\\'t work out right \\r\\nI\\\'ve looked at the corrections but there is nothing to state what the difference is \\r\\n\\r\\nThanks

15.04.2024 - 12:45

country flag Jeanette Woodburn wrote:

I'm doing size 5/6 but following the pattern I have 17 surplus stitches, apparently it got updated in 22 are the pattern. What are the corrections I gave to follow Kind regards Jeanette Woodburn

01.04.2024 - 21:18

DROPS Design answered:

Dear Jeanette, you can see all the corrections if you click on the red line saying "This pattern has been corrected". I hope this helps. Happy Knitting!

02.04.2024 - 23:59

country flag Eleonor wrote:

Mönstret stämmer inte för storlek 2-3 år det blir sammanlagt 226 maskor om man slår samman enligt instruktionen för bålen medan man endast lägger upp 218 maskor. Behöver justeras i mängden aviga maskor mellan diagrammen om det skall stämma.

27.11.2022 - 15:45

country flag Monique wrote:

Ik wil graag t vest Peter breien. Maar kom er niet uit. Volgens mij kloppen t aantal steken niet. Ik zou graag n foto meesturen, maar dat lukt niet...

11.06.2022 - 11:31

country flag Ina Rawlings wrote:

Hello again. Thank you for your reply regarding my outstanding query. Unfortunately this does not answer my latest question as to when I can expect to hear back from you with clarification of my question. It has now been 15 days since I first wrote to you. I would appreciate your prompt reply as I would like to be able to carry on with your pattern seeing that I have already purchased the wool needed for this cardigan. Thank you

27.01.2022 - 14:53

country flag Ina Rawlings wrote:

Hi. I added a question on here on the 13th Jan regarding a query on this pattern. I have unfortunately not received a reply so far. When can I expect to receive your comments. Thank you

24.01.2022 - 12:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rawlings, your question have been forwarded to our design team, which is full time working on the newest collection. Thanks in advance for your patience.

24.01.2022 - 15:45

country flag Ina Rawlings wrote:

Hello, I have started knitting this cardigan in size 2-3 years. When I add up the stitches for the pattern 1+6+20+16+18+16+20+6+6+20+16+18+16+20+6+1 this equals 206, but I have only increased to 202 as per the pattern? Could you please clarify where I am going wrong? Thank you very much for your help

13.01.2022 - 17:04

DROPS Design answered:

Dear Ina, so sorry for the delay. It seems to be a previous mistake; the diagram M1 used to indicate 15 stitches instead of 16 but, when the diagram was corrected, the number of initial stitches was not updated; this is the reason why there are 4 less stitches in any of the sizes in that paragraph, including sizes 2 years. So you need to increase to 206 stitches (40 sts increased evenly), not to 202 stitches. Thank you for your remark, we should correct the pattern soon. Happy knitting!

05.02.2022 - 20:09

country flag Lorenzon Claudine wrote:

Dans le modèle Little Peter ou peut-on acheter les boutons buchettes. j'ai réalisé le modèle, je suis satisfaite. merci.

08.07.2021 - 08:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lorenzon et merci pour votre retour. Vous trouverez la liste des magasins DROPS qui proposent les boutons ici (marqués par le petit symbole "bouton"). Bon tricot!

08.07.2021 - 09:18

country flag Eva wrote:

Hej skulle behöva hjälp med avmaskningen av ärmen i storlek 6 år , hur många maskor ska avmaskas

22.11.2020 - 17:21

DROPS Design answered:

Hej Eva. Du avmaskar först 6 m mitt under ärmen. Efter det avmaskar du på vartannat varv på varje sida av ärmen först 3 m två gånger, sedan 2 m fem gånger och slutligen 3 m två gånger. Ärmen ska då mäta ca 34 cm och du maskar av alla maskor. Mvh DROPS Design

23.11.2020 - 08:27