Christine skrifaði:
Alles klar, die Ärmel werden natürlich gleich angehäkelt und nicht extra gearbeitet, wie ich annahm. Danke für den Hinweis ! Viele Grüße !
25.04.2025 - 20:05
Christine skrifaði:
Wann genau werden die Ärmel zur Runde geschlossen ? Nach 46 ( bei Größe S ) Luftmaschen ? ( Im Text steht Stäbchen ! ) Kommen die 8 Luftmaschen gleich anschließend und beginnt die erste Runde dann mit festen Maschen ? Viele Grüße !
23.04.2025 - 23:43DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, die Ärmel bestehen aus den 46 Stäbchen, die bei der Aufteilung übersprungen wurden + die 8 Luftmaschen die bei der Aufteilung gehäkelt wurden. Die Runden beginnen bei der 1. Runde: beginnen Sie mit 1 fM in die 5. dieser 8 Luftmaschen und häkeln Sie die ganze Runde: in die 3 Luftmaschen + die 46 Stäbchen + die 4 letzten Luftmaschen= 1+3+46+4=54 M für den Ärmel, mit 1 Kettmasche die Runde schliessen und in der Runde weiterhäkelnd. Viel Spaß beim Häkeln!
24.04.2025 - 08:52
Christine skrifaði:
Danke für die Antwort ! Ich habe übrigens ( wahrscheinlich ) einen Druckfehler entdeckt : Die 2. Muster- Reihe der Passe endet mit A.1b und dann mit der Blende A.1a. Die 4. Muster- Reihe sollte doch analog enden, oder ? ( also nicht zweimal A.1a wie im Text ) Viele Grüße !
28.03.2025 - 21:44DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, ja genau, eine Korrektur erfolgt, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Häkeln!
31.03.2025 - 08:00
Christine skrifaði:
Sehe ich das richtig, daß die 2. Muster-Reihe der Passe, welche eine Rück-Reihe ist, im Diagramm von links nach rechts gelesen werden soll ? Sonst würde es an den Rändern nämlich nicht aufgehen. Das bedeutet dann auch, daß alle Hin-Reihen von rechts nach links gelesen werden, richtig ? Viele Grüße !
27.03.2025 - 15:56DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, die Reihen mit festen Maschen und Luftmaschen sind ja je eine Rückreihe und sind von links nach rechts gelesen; und richtig, die Hin-Reihen sind die Stäbchen-Reihen und sind rechts nach links gelesen. Viel Spaß beim Häkeln!
28.03.2025 - 07:55
Louise skrifaði:
2. Række, efter de første 5 fastmasker: “hækl A.1d over de næste 2 stangmasker, A.1c over de næste 8-8-10-10-10-12 stangmasker (= 4-4-5-5-5-6 gange i bredden),“; A.1d er over to masker (iflg diagrammet): fm, lm, fm; A.1c er iflg diagrammet: ‘fm, lm’. Det vil sige ifølge opskriften er de første 4 m efter de 5 fm som følger: ‘ fm, lm, fm, fm, lm’ - er det korrekt?
30.10.2024 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hej Louise, ja det stemmer, hver 2. fm og hver 2. lm :)
30.10.2024 - 13:39
Sofia skrifaði:
Kan man virka den här koftan i Soft Tweed istället för Karisma eller blir det konstigt?
29.09.2024 - 19:56DROPS Design svaraði:
Hej Sofia. Du kan använda Soft Tweed istället för Karisma (båda tillhör garngrupp B), se bara till att du får riktig stickfasthet och att beräkna rätt garnåtgång (använd gärna vår garnkonverterare). Mvh DROPS Design
30.09.2024 - 14:51
Marina skrifaði:
Bonjour, Le modèle à subit une modification. Celle ci renvoie sur le gilet, qui a lui même, la même indication. Pourriez vous nous informer de ce qui a changé au niveau du diagramme s'il vous plaît ? Merci
02.12.2023 - 18:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Marina, la correction ne s'applique que si vous aviez déjà imprimé les explications avant la date de cette correction, sinon, les explications sont justes ainsi. Bon crochet!
04.12.2023 - 07:59
Gabriele skrifaði:
Hallo die musterreihe 5 habe ich gehäkelt ,habe auch 172 Maschen bei Größe XL (da ich dünneres Garn habe), meine Frage: komme bei der nächsten reihe nur auf 160 Maschen , 5+2+14+16+12+16+30+16+12+16+14+2+5=160 Maschen. Leider keine 172M. obwohl ich original die vierte Reihe wiederholt habe und vom A2(XL)Diagramm her von der sechsten Reihe 8maschen mal 2 =16M. Gehäkelt habe, wo ist mein Fehler? Mfg.gabriele
29.04.2021 - 17:38DROPS Design svaraði:
Liebe Gabriele, bei A.1c sollten Sie keine 12 sondern auch 16 Maschen haben (es sind 12 Maschen aber es wird bei der 5. Reihe 4 Maschen zugenommen = 16 M in jedem A.1c). Bei der 6. Reihe häkeln Sie feste Maschen und Luftmaschen und bei der 7. Reihe häkeln Sie alle Diagramme wie zuvor ohne Zunahmen, nur bei A.2 wird es jeweils zugenomen (= bei 7. Reihe sind es 10 M in jedem A.2 = 188 Stb nach 7. Reihe). Kann es Ihnen helfen?
30.04.2021 - 07:08
Arnal skrifaði:
Merci pour la réponse mais je fais la taille XXL et quand on compte les bridés du rang 1 on n’a pas assez de brides pour faire A2 2 fois ou A1c 5 fois en largeur ...etc ...?
27.01.2021 - 13:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Arnal, en XXL crochetez ainsi sur l'envers: A.1a (= 5 premières brides = bordure devant), A.1d (= 2 brides) , A.1c (= 5 x 2 brides = 10 brides), A.2 (= 2 x 4 brides = 8 brides), A.1c (= 4 x 2 brides = 8 brides), A.2 (= 2 x 4 brides = 8 brides), A.1c (= 13 x 2 brides = 26 brides, A.2 (= 2 x 4 brides = 8 brides), A.1c (= 4 x 2 brides = 8 brides, A.2 (= 2 x 4 brides = 8 brides, A.1c (= 5 x 2 brides = 10 brides) , A.1b (= 2 brides) et A.1a (= 5 brides = bordure devant) autrement dit: 5+2+10+8+8+8+26+8+8+8+10+2+5=108 mailles. En espérant que ce détail puisse vous aider. Bon crochet!
27.01.2021 - 15:28
Arnal skrifaði:
Je ne comprends pas ce que veut dire A2 comme avant = 2 fois en largeur ? Ainsi que A1c au dessus de 8 mailles et augmenter de 4 bridés à intervalles réguliers ? On ne suit pas le diagramme alors ?
27.01.2021 - 11:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Arnal, dans la description du 1er rang et des différents points fantaisie à crocheter, vous répétez 2 fois A.2 en largeur, vous continuez ensuite en crochetant toujours 2 fois A.2 en largeur à chaque fois, mais le nombre de mailles à crocheter dans les autres diagrammes va varier en fonction des augmentations faites (et de la taille). Quand vous crochetez A.1c au-dessus de 8 mailles = vous répétez 4 fois les 2 mailles de A.1c - en augmentant 4 mailles = crochetez 3 brides (au lieu de 2) autour de chaque maille en l'air des 4 motifs suivants = 4 augmentations. Bon crochet!
27.01.2021 - 13:15
Grey Owl Jacket#greyowljacketcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-34 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul). Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (koma ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur koma sem viðbót). Þegar heklað er í hring: Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allar umferðir með stuðlum eru heklaðar frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum (þ.e.a.s. aukið er út í umferð frá réttu). Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju, heklið eins og áður þar til 2 stuðlar hafa verið heklaðir um hvora af 2 fyrstu loftlykkjum á eftir prjónamerki, heklið 3 stuðla um næstu loftlykkju = 2 stuðlar fleiri við prjónamerki. Heklið eins við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar fleiri í umferð). Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í hvert skipti sem lykkjur eru auknar út, endurtakið A.1c alls 2 sinnum fleiri á breidd í umferð. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum (þ.e.a.s. lykkjum er fækkað í umferð frá réttu). Heklið eins og áður þar til 3 loftlykkjur eru eftir og 3 fastalykkjur á undan prjónamerki, * heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri) * , heklið eins og áður þar til heklaðir hafa verið 2 stuðlar í hvora og eina af 2 fyrstu loftlykkjum á eftir prjónamerki, heklið frá *-* um næstu loftlykkju = 2 stuðlar færri við prjónamerki. Heklið eins og áður við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar færri í umferð). Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað, endurtakið A.1c alls 2 sinnum færri á breiddina í umferð. ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. * Heklið 1 stuðul um fyrstu/næstu loftlykkju í umferð, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri) *, heklið frá *-* um næstu loftlykkju = 2 stuðlar færri. Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað, endurtakið A.1c alls 1 sinni færri á breiddina. Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og í lok umferðar (þ.e.a.s. þegar lykkjum er fækkað í lokin er heklað eins og áður þar til 2 loftlykkjur eru eftir í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru hekaðar í hring, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 96-98-102-108-110-116 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 og Karisma. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 94-96-100-106-108-114 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki eftir ystu 5 lykkjurnar í byrjun á umferð mitt að framan. Heklið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Heklið 2. umferð í mynstri þannig: (= frá röngu með fastalykkjum/loftlykkjum): Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), heklið A.1b yfir næstu 2 stuðla, A.1c yfir næstu 8-8-10-10-10-12 stuðla (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), heklið A.1c yfir næstu 6-6-6-8-8-8 stuðla (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), heklið A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), heklið A.1c yfir næstu 20-22-22-24-26-28 stuðla (= 10-11-11-12-13-14 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-6-6-8-8-8 stuðla (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 stuðla (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 8-8-10-10-10-12 stuðla (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), heklið A.1b yfir næstu 2 stuðla og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, endurtakið 2 síðustu umferðir í A.1a til A.1d á hæðina og aukið út eins og útskýrt er í A.2 – JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Heklið 3. umferð í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), heklið A.1b yfir næstu 2 lykkjur, A.1c yfir næstu 8-8-10-10-10-12 lykkjur og aukið út 0-2-2-4-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur og aukið út 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 20-22-22-24-26-28 lykkjur og aukið út 0-4-4-6-6-8 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur og aukið út 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 8-8-10-10-10-12 lykkjur og aukið út 0-2-2-4-4-4 stuðla jafnt yfir, heklið A.1d yfir næstu 2 lykkjur og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan) = 100-128-132-144-146-154 stuðlar (meðtaldar útaukningar í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 4. umferð í mynstri þannig (= frá röngu): Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), heklið A.1d yfir næstu 2 stuðla, A.1c yfir næstu 8-10-12-14-14-16 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 20-26-26-30-32-36 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-10-10-12-12-12 stuðla, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 8-10-12-14-14-16 stuðla, A.1b yfir næstu 2 stuðla og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan). Heklið 5. umferð í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), A.1b yfir næstu 2 lykkjur, A.1c yfir næstu 8-10-12-14-14-16 lykkjur og aukið út 0-0-0-0-2-4 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-10-10-12-12-12 lykkjur og aukið út 0-2-4-4-0-0 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 20-26-26-30-32-36 lykkjur og aukið út 0-0-2-4-4-8 stuðla jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 6-10-10-12-12-12 lykkjur og aukið út 0-2-4-4-0-0 stuðla jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd) og endið með A.1c yfir næstu 8-10-12-14-14-16 lykkjur og aukið út 0-0-0-0-2-4 stuðla jafnt yfir, heklið með A.1d yfir næstu 2 lykkjur og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan) = 126-148-158-172-170-186 stuðlar (meðtaldar útaukningar í A.2). Haldið áfram með mynstur og útaukningar í A.2. Þegar síðasta umferð er eftir í A.2, mælist stykkið ca 18-18-19-19-21-21 cm frá prjónamerki við hálsmál og það eru 222-244-270-284-314-330 stuðlar í umferð. Heklið síðustu umferð í A.2 frá röngu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), heklið A.1d yfir næstu 2 stuðla, A.1c yfir næstu 8-10-12-14-16-20 stuðla, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breiddina), 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 stuðla (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 stuðla í A.2, 6-12-14-16-12-12 stuðlar í A.1c og 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2 fyrir ermi), heklið A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breidd), A.1c yfir næstu 20-26-28-34-36-44 stuðla, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinni á breiddina), 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 stuðla (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2, 6-12-14-16-12-12 stuðlar í A.1c og 20-20-22-22-26-26 stuðlar í A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 stuðla (= 1 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 8-10-12-14-16-20 stuðla, heklið A.1b yfir 2 stuðla og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan = 147-157-171-15-207-227 lykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), A.1b yfir næstu 2 lykkjur, A.1c yfir næstu 28-30-34-36-42-46 lykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 8-8-8-10-10-12 lykkjur, heklið A.1c yfir næstu 60-66-72-78-88-96 lykkjur, 1 stuðull í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur, A.1c yfir næstu 28-30-34-36-42-46 lykkjur, heklið A.1d yfir næstu 3 lykkjur og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan) = 146-156-170-184-206-226 stuðlar í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-146-160-174-196-216 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki. Fyrsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 5 stuðla (= kantur að framan), heklið A.1d yfir næstu 2 stuðla eins og áður, endurtakið A.1c yfir næstu 132-142-156-170-192-212 stuðla, heklið A.1b yfir næstu 2 stuðla og endið með A.1a yfir síðustu 5 stuðla (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 14-16-17-18-18-19 cm frá skiptingu, aukið út um 2 stuðla við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum á hæðina = 158-168-182-196-218-238 stuðlar. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist ca 35-37-37-38-38-40 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – endið með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn frá og festið enda. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: = 46-52-58-60-64-64 stuðlar + 8-8-8-10-10-12 loftlykkjur mitt undir ermi. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5-5-5-6-6-7 loftlykkju á 8-8-8-10-10-12 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3-3-3-4-4-5 loftlykkjum, heklið A.1c (þ.e.a.s. 1 umferð með fastalykkjum og loftlykkjum) yfir 46-52-58-60-64-64 stuðla yfir ermi og endið með 1 fastalykkju í hverja af þeim 4-4-4-5-5-6 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 54-60-66-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð – mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi. Heklið A.1c hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 11-13-15-17-18-18 sinnum = 32-34-36-36-38-40 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 41-42-42-44-43-45 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – endið eftir umferð með stuðlum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Efsta talan er saumuð í skiptinguna á milli kant í hálsmáli og berustykkis. Næstu 5-5-5-6-6-6 tölur eru saumaðar með ca 8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 3. og 4. stuðuls í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greyowljacketcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.