Tree Hive Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og pufflykkjum. Stærð S – XXXL.
DROPS 218-20 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta umferð í mynsturteikningu (með fastalykkjum) er hekluð frá réttu á stykkinu. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykkinu. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með umferð frá réttu og umferð frá röngu. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. 1 PUFFLYKKJA: Heklið í sömu loftlykkju þannig (það er mikilvægt að heklað sé í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum loftlykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum loftlykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði litlar og þéttar, er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn langur, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinn. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 2. Í þessu dæmi er aukið út í aðra hverja lykkju, aukið út með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í 1 fastalykkju, eða 3 stuðla um loftlykkju (í stað 2). ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU: * Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). STUÐLAKRÓKUR: Heklið 1 stuðul í kringum 1 stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. ekki hekla í lykkjubogana, heldur utan um stuðulinn) þannig:, Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina (alveg eins og þegar heklaður var 1 venjulegur stuðull), færið heklunálina í kringum næsta stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. inn frá hægri hlið og út um vinstri hlið), sækið þráðinn, heklið afgang af stuðli eins og venjulega. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring, þar sem önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu (sjá útskýringu í uppskrift), ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring alveg eins og berustykki, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður (ermar eru heklaðar fram og til baka til að ná fram sömu áferð og fram- og bakstykki). BERUSTYKKI: Heklið 80-80-86-92-98-98 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4,5 með 1 þræði Sky og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð (= 12-12-13-14-15-15 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með A.3 yfir síðustu 7 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör, er aukið út með stuðlum jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 42-48-42-48-48-48 tvíbrugðnastuðla jafnt yfir = 122-128-128-140-146-146 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-20-22-23-23 mynstureiningar með A.2 á breiddina). Ör-2: Aukið út 36-42-42-48-48-48 tvíbrugðnastuðla jafnt yfir = 158-170-170-188-194-194 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-27-27-30-31-31 mynstureiningar með A.2 á breiddina). Ör-3: Aukið út 36-42-42-42-36-42 stuðla jafnt yfir = 194-212-212-230-230-236 lykkjur (nú er pláss fyrir 31-34-34-37-37-38 mynstureiningar með A.2 á breiddina). Ör-4: Aukið út 26-24-28-40-34-40 stuðla jafnt yfir = 220-236-240-270-264-276 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað til loka, heklið A.1 til A.3 x, JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hvert skipti sem umferð með tvíbrugðnum stuðlum er hekluð, aukið út 0-0-12-13-11-13 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir 0-0-2-2-4-4 sinnum = 220-236-264-296-308-328 lykkjur. Haldið áfram með A.1 til A.3 x þar til stykkið mælist 20-23-25-28-30-33 cm, endið með umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 64-70-78-86-92-100 lykkjum (= bakstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 46-48-54-62-62-64 lykkjur (= ermi), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 64-70-78-86-92-100 lykkjum (= framstykki), heklið 6-6-6-6-8-10 lausar loftlykkju (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 46-48-54-62-62-64 lykkjur (= ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-168-184-200-220 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-6-8-10 loftlykkjur undir hvorri ermi). Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar loftlykkjur í hvorri hlið (= 70-76-84-92-100-110 lykkjur á bakstykki og á framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn (heklið aðra hverja umferð frá réttu og frá röngu eins og áður) með A.1 til A.3 x eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 152-164-180-196-212-232 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 28-27-27-26-26-25 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Heklið síðan þannig: * 1 stuðull, 1 STUÐLAKRÓKUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með einn stuðul í hvern stuðul og einn stuðlakrók í hvern stuðlakrók þar til stykkið mælist 32-31-31-30-30-29 cm. ATH! Fyrsta stuðli/stuðlakrók í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka frá miðju undir ermi (til að áferðin verði eins á fram- og bakstykki og ermum). Byrjið frá röngu, mitt í 6-6-6-6-8-10 lykkjum undir ermi og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 3-3-3-3-4-5 lykkjum frá mitti og út, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af 46-48-54-62-62-64 lykkjum sem hoppað var yfir og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-3-3-4-5 lykkjum mitt undir ermi = 52-54-60-68-70-74 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram fram og til baka með A.1 til A.3 x eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU – sjá útskýringu að ofan, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur saman í 1 lykkju. Fækkið lykkjum svona með 7-6½-4-2½-2½-2 cm millibili alls 6-6-8-12-12-13 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-39-37-35-34-32 cm, endið eftir 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Síðan er heklað þannig: * 1 stuðull, 1 STUÐLAKRÓKUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* út umferðina. Haldið áfram með stuðul í hvern stuðul og stuðlakrók í hvern stuðlakrók þar til stykkið mælist 45-43-41-39-38-36 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermi – saumið í ystu lykkjubogana. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Wilma Peursum wrote:
Bedankt voor jullie antwoord. Ik snapte het niet, omdat ik al 170 lossen had, vandaar die verdubbeling. Ik heb toer 9 fout gedaan, geen stokjes overgeslagen, vandaar dat ik op zoveel meer steken uitkwam!
05.09.2021 - 12:59DROPS Design answered:
Dag Wilma,
Mooi dat je er uit gekomen bent en bedankt voor de terugkoppeling. Veel haakplezeier!
12.09.2021 - 17:59Wilma Peursum wrote:
K ben bij het patroon bij de 11e toer aangekomen (pijl 3 waarbij gemeerderd moet worden van 170 naar 212 steken). In het telpatroon staan twee stokjes om de losse getekend, maar als ik om elke losse twee stokjes haak kom ik toch op veel meer steken uit (een verdubbeling), zelfs als ik niet meerder? Hoe wordt dit bedoeld? Alvast bedankt voor de uitleg.
30.08.2021 - 11:29DROPS Design answered:
Dag Wilma,
Als je toer 11 zou haken zonder te meerderen, zou het aantal steken hetzelfde blijven, omdat je steeds 2 stokjes om de lossen haakt, maar je haakt geen steken om de 2 samen gehaakte stokjes van de vorige toer. Je meerdert door af en toe 3 stokjes in plaats van 2 stokjes om de losse te haken.
03.09.2021 - 09:46Wilma wrote:
Ik ben bij het patroon bij de 11e toer aangekomen (pijl 3 waarbij gemeerderd moet worden van 170 naar 212 steken). In het telpatroon staan twee stokjes om de losse getekend, maar als ik om elke losse twee stokjes haak kom ik toch op veel meer steken uit (een verdubbeling), zelfs als ik niet meerder? Hoe wordt dit bedoeld? Alvast bedankt voor de uitleg.
26.08.2021 - 23:53DROPS Design answered:
Please choose the flag of your mother language to get a reply. As a Portuguese, I do not know how to reply to you. Kind Regards.
30.08.2021 - 10:54Els wrote:
Vraag eerder gesteld ,, maar probleem opgelost, keek naar verkeerde filmpje!
25.11.2020 - 22:13Els wrote:
Bij dit patroon wordt de puff stitch Of kussensteek gedemonstreerd daarbij wordt 3x een lus opgehaald om vervolgens 7 lussen in een keer door te halen. Klopt het dat dit in de patroonbeschrijving afwijkt? Er staat 5 x lus ophalen? Dan staat er dat de kussensteek aan de goede kant het stokje moet kruisen. Dat snap ik niet. Is dat een vertaalfout? Dank bij voorbaat voor uw reactie.
25.11.2020 - 22:06DROPS Design answered:
Dag Els,
Ik zie dat de vraag inmiddels opgelost is, bedankt voor de terugkoppeling en veel haakplezier!
26.11.2020 - 09:21