Linnea skrifaði:
Hej, Jag har en fråga gällande övergången mellan varven, vid varv 35. Mitt mönster stämmer inte överens där, utan jag får två stycken vita bredvid varandra istället för 1 på de övrigs. Är det jag som har gjort fel någonstans eller blir det så?
13.07.2020 - 23:02DROPS Design svaraði:
Hej Linnea, sæt gerne et mærke imellem hver rapport á 16 masker (på pind 35) så kan du let se hvor det går galt. Du skal have 5 hvide ruder på hver side af midten og så 1 farvet imellem. God fornøjelse!
30.07.2020 - 14:06
Monika skrifaði:
OK: Det står att arbetet ska mätas från uppläggningskanten. Innebär det att de 7 cm halskant ska räknas med? Arbetet börjar ju med halsresåren. Tacksam för snabbt svar! Hälsningar Monika
06.04.2020 - 22:27DROPS Design svaraði:
Hej Ja då mäter du från början av arbetet där du la upp maskor. Mvh DROPS Design
22.04.2020 - 08:56
Matt Arthur skrifaði:
My first sweater and I'm a little nervous. For the neck ribbing, instructions say 7cm ribbing including turning edge. Finishing instructions make it seem the turning edge is halfway so I am knitting 3.5cm ribbing, turning row, then another 3.5cm ribbing and when it is done only 3.5cm will be visible, correct?
07.03.2020 - 12:09DROPS Design svaraði:
Hi Matt, Yes, you will have a neck which is 3.5 cm in height. Happy knitting!
07.03.2020 - 13:35
Delphine skrifaði:
Bonjour pourriez vous me dire ou est le rang de montage ? C est le premier rang ? Merci d avance pour votre réponse
06.03.2020 - 09:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Delphine, je suis désolée je ne comprends pas votre question, vous montez les mailles du col puis vous tricotez 1 tour endroit (ce tour est à tricoter, ce n'est pas le rang de montage) puis vous continuer en côtes. J'espère avoir pu vous aider. Bon tricot!
06.03.2020 - 09:19
Enriqueta skrifaði:
Cómo hacer el canesú con Jacquard. Osea las disminuciones cuando se comienza por abajo en tejido circular
24.02.2020 - 00:59DROPS Design svaraði:
Hola Enriqueta. Como sugerencia puedes utilizar el modelo 174/8 bajo este línk: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=7775&cid=23
15.03.2020 - 22:17
MONA CHRISTENSEN skrifaði:
Jeg ville gerne bestille garn til herre sweater mandal 208-15 i str xxl men det er umuligt at finde hvor jeg kan bestille og telefon nummeret er ude af drift Har i lukket??
11.02.2020 - 14:39DROPS Design svaraði:
Hej Mona, vi har talt sammen idag, jeg håber at du har fundet garnet i din favorit farve. Rigtig god fornøjelse!
11.02.2020 - 15:52
Mandal#mandalsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-15 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-116-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-*. Haldið áfram með stroff í 7 cm (= meðtalinn kantur með uppábroti). Þegar stroff er lokið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-19-22-32-31-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 112-119-126-140-147-161 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 16-17-18-20-21-23 mynstureiningar með 7 lykkjum). Prjónið og aukið út eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 320-340-360-400-420-460 lykkjur í umferð. Haldið áfram með litnum ljós brúnn þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, í síðustu umferð er aukið út um 0-16-12-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 320-356-372-400-424-460 lykkjur. Næsta umferð: Prjónið fyrstu 45-50-53-58-63-70 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-78-80-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-100-106-116-126-140 lykkjur sléttprjón eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-78-80-84-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-50-53-58-63-70 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni eins og áður (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-212-228-248-272-300 lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist 40-40-41-41-41-41 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 44-48-52-56-60-68 lykkjur jafnt yfir = 236-260-280-304-332-368 lykkjur. Skiptið fyrir á hringprjón 3,5. Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt * , prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 70-78-80-84-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Notið litinn ljós brúnn og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með ljós brúnn. Þegar stykkið mælist 4-5-5-6-6-6 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 12-15-16-17-18-19 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-45-44-43-42 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-68-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 50-49-48-47-46-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá uppfitjunarkantinn inn að röngu og saumið niður við kant í hálsmáli að innanverðu með smáu, fínu spori með litnum ljós brúnn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur og passið uppá að þessi saumur sjáist ekki á framhlið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mandalsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.