Johanne skrifaði:
Dette er opskriften på cardigan og ikke sweater
28.01.2020 - 17:21DROPS Design svaraði:
Hei Johanne. Nei, dette er oppskriften på en genser/sweater, DROPS 213-25. En lik jakken/cardigan ligger under DROPS 213-26. mvh DROPS design
30.01.2020 - 10:32
Mimmi skrifaði:
Detta mönster är för koftan, inte tröjan.
28.01.2020 - 12:50DROPS Design svaraði:
Hej. Tack för info, nu är det rättat. Mvh DROPS Design
30.01.2020 - 14:01
LILLIAN KARIN RHEA DE LA LAMA skrifaði:
Tiene muy bonita puntada.
13.01.2020 - 23:03
September Story Sweater#septemberstorysweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-25 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-80-80-88-88-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan * A.1a (= 3 lykkjur), A.2a (= 5 lykkjur) *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (= 9-10-10-11-11-12 sinnum á breidd). Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið A.1b yfir A.1a og A.2b yfir A.2a. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1b og A.2b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 234-260-280-308-330-360 lykkjur í umferð. Prjónið brugðnar lykkjur hringinn þar til stykkið mælist 20-22-23-25-26-28 cm frá prjónamerki. Berustykkið er nú skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-39-41-45-48-55 sléttar lykkjur, setjið næstu 48-52-58-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 69-78-82-90-97-110 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-58-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 35-39-41-45-49-55 lykkjur sem eftir eru slétt. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-168-176-192-206-232 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli 6 lykkja sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Nú eru 75-84-88-96-103-116 lykkjur hvoru bakstykki/framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 158-176-184-200-214-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 48-52-58-64-68-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttar lykkjur hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 5-7-9-11-12-12 sinnum = 44-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-30-30-28-27-25 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 7 cm. Ermin mælist ca 39-37-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #septemberstorysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.