Marta skrifaði:
Buongiorno, mi piacerebbe realizzare con gli stessi materiali di questo modello e con lo stesso punto mimosa il poncho modello Creme Caramel nella taglia S. Quanti grammi occorrono di Alpaca Bouclé, di Brushed Alpaca Silk e quanto glitter? Grazie. Marta
17.12.2021 - 10:09DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marta, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
20.12.2021 - 08:22
BRUNA MOSTACCHI skrifaði:
Al posto di 5 fili ( tre tipi differenti di filato) c'è un solo filato della grossezza corrispondente che mi permetta di ottenere la stessa maglia. grazie
06.01.2021 - 11:10DROPS Design svaraði:
Buongiorno Bruna, può provare con il filato Polaris che appartiene al gruppo filati F. controllando sempre che il suo campione corrisponda a quello indicato. Buon lavoro!
07.01.2021 - 08:57
Lyne skrifaði:
Bonjour, Je commence ce pull et j’ai du mal à comprendre le diagramme A1. Les mailles semblent décalées. Est-ce que cela veut dire que sur l’endroit toutes les mailles ne sont pas à l’envers ? En fait, pour le premier rang après les côtes en mousse, comment tricoter le jeté (est-ce qu’on doit le tricoter trois fois comme indiqué dans A1 ?). En somme, comment lire A1 ?
28.09.2020 - 23:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Lyne, les mailles sont décalées dans le diagramme car la 1ère maille va être d'abord tricotée 3 fois (= 2 augmentations) puis tricotez à l'envers sur l'endroit et enfin au rang suivant sur l'envers, on va diminuer ces 3 m à 1 seule m, et en parallèle, on va diminuer 3 m à 1 m, tricoter 1 m env sur l'end, augmenter 2 m dans cette m (= on a maintenant 3 m) et tricoter ces 3 m à l'env sur l'end. Cette vidéomontre comment tricoter ce point et cette leçon explique comment lire les diagrammes. Bon tricot!
29.09.2020 - 08:00
Christine Gabriela Kuffner skrifaði:
Der Pullover sieht einfach toll aus. Gefällt mir sehr gut.
07.10.2019 - 21:27
Lidia skrifaði:
Per chi non conosce i confetti di Pistoia sono uguali: zucchero bianco a riccio e dentro pistacchio ;)
29.09.2019 - 13:14
Ana skrifaði:
Jersey Pompom 😜
15.08.2019 - 17:55
María Escobar skrifaði:
Delicadeza y ternura
10.07.2019 - 06:16
Ingrid skrifaði:
Would love to knit it
04.07.2019 - 14:54
Ellis skrifaði:
Miss snowwoman;-))
09.06.2019 - 19:47
Falling Flakes#fallingflakessweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé, DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Glitter. Stykkið er prjónað með brómberjamynstri og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-52 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 41 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 41-45-48-52-55-63 lykkjur á hringprjón 10 með 2 þráðum Alpaca Bouclé + 2 þráðum Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Glitter (= 5 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 12 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-6-6-7-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 46-50-54-58-62-70 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 11-12-13-14-15-17 mynstureiningar með 4 lykkjum), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram meðmynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-45-45-47-47-49 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónamerkin merkja hvar handvegurinn byrjar. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, en stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú eru lykkjur felldar af fyrir öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 12-12-12-16-16-18 lykkjur fyrir öxl, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 20-24-28-24-28-32 lykkjur, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni og fellið af 12-12-12-16-16-18 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Prjónið síðan háan kraga eins og útskýrt er að neðan. HÁR KRAGI: = 22-26-30-26-30-34 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 fram og til baka á hringprjón 12 eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar kraginn mælist ca 18-18-20-20-22-22 cm frá öxl, skiptið yfir á hringprjón 10. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 20-24-28-24-28-32 lykkjur. Þegar garðaprjóni er lokið, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á framstykki og prjónið alveg eins og framstykki. Þegar lykkjurnar fyrir öxl hafa verið felldar af, prjónið háan kraga á sama hátt og á framstykki. Þ.e.a.s. framstykki og bakstykki eru alveg eins. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fitjið upp 30-30-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 12 með 2 þráðum Alpaca Bouclé + 2 þráðum Brushed Alpaca Silk + 1 þræði Glitter (= 5 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (= rétta). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= 7-7-8-8-9-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til ermin mælist ca 47-45-44-43-42-38 cm (nú eru eftir ca 2 cm til loka, prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), en stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Skiptið yfir á hringprjón 10. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2-2-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 28-28-30-30-34-34 lykkjur. Þegar garðaprjóni er lokið, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman hálsmál í hvorri hlið – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermer í á milli prjónamerkja fyrir handveg – saumið í ystu lykkjubogana og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – byrjið neðst niðri á ermi og saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir ca 12 cm í hvorri hlið á framstykki og bakstykki fyrir klauf. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fallingflakessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.