Ellen skrifaði:
Veldig utydelig bilde av mønsteret - er det mulig å legge ut bedre bilde?
08.09.2014 - 12:18DROPS Design svaraði:
Hvis du holder pilen over billedet så bliver det større. Selve diagrammerne har vi ikke mulighed for at lave større.
08.09.2014 - 14:13
Astrid Hoffblad skrifaði:
Första sidan under stickfasthet och mönster står det rätst (fram och tillbaka på st) 1:a v: rätam, 2:a v räta samt rätst (på rundst)1:a v avigt, 2:a v räta. Är det verkligen riktigt?
25.07.2013 - 22:48
Astrid Hoffblad skrifaði:
Under diagram tredje raden, står det felaktigt "sätt 3 m på hjälpstickan bakom arbetet." Det skall stå framför arbetet. Annars en jättefin tröja. Med vänlig hälsning Astrid
25.07.2013 - 22:40
Syosticka.se skrifaði:
Hej Teena! Paris är det grövre garnet som du kan använda men pass på att bomull är tyngre än ull så det går fler nystan. Tröjan kommer att blir tung - om jag var du skulle jag leta på ett liknande mönster i Safran/Alpaca. /Lotta
30.01.2009 - 09:21
Teena Skorstad skrifaði:
Hvilken bomuldsalternativ kan anvendes, hvis jeg vil bruge enkelttråd og ikke to garnkvaliteter? mvh Teena
30.01.2009 - 08:32
Frosted Vines |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og áferðamynstri úr DROPS Karisma og DROPS Cotton Viscose eða DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stærð S-XL.
DROPS 58-6 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTT PEYSA: Ef óskað er eftir styttri peysu er prjónað þannig: Málin við handveg, hálsmál og úrtöku eru stytt um 14 (15-16) cm. Loka mál = 60 (62-64) cm. Efnismagn er minnkað um ca 50 gr af Alaska og ca 50 gr af Cotton Viscose. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð með 2 þráðum = 1 þræði Karisma + 1 þræði Cotton Viscose eða 1 þræði Lima og 1 þræði Kid-Silk í hring á hringprjón upp að handveg, frá handveg og uppúr er peysan prjónuð fram og til baka. Ef óskað er eftir styttri peysu, sjá – STUTT PEYSA- að ofan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192 (208-224) l á hringprjón nr 4 með 1 þræði DROP Karisma + 1 þræði DROPS Cotton Viscose (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (prjónað í hring) - sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 56 (56-56) l jafnt yfir í síðustu umf = 248 (264-280) l. Skiptið yfir á hringprjón nr 5 og prjónið mynstur uppúr þannig: * 16 (20-24) l af M.3, M.2, M.4, M.2, 16 (20-24) l af M.3 *, endurtakið frá *-* yfir bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 49 (51-54) cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 2 l fyrir handvegi, prjónið 120 (128-136) lykkjur á framstykki eins og áður, fellið af 4 l fyrir handvegi, prjónið 120 (128-136) lykkjur á bakstykki eins og áður, fellið af 2 l fyrir handvegi. Prjónið nú fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 120 (128-136) l. Fellið nú af fyrir handveg í annarri hveri umf: 3 l 0 (1-1) sinni, 2 l 1 (1-3) sinni, 1 l 3 sinnum = 110 (112-112) l. Í umf áður en stykkið mælist 65 (68-71) cm fækkið um 15 l jafnt yfir miðju 38 (40-40) l. Þegar stykkið mælist 65 (68-71) cm fellið af miðju 23 (25-25) l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af við hálsmáli í annarri hverri umf: 2 l 1 sinni, 1 l 1 sinni = 33 (33-33) l á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 67 (70-73) cm fækkið um 6 l jafnt yfir þær l sem eftir eru í hverju M.2 = 27 (27-27) l á öxl. Prjónið 2 umf garðaprjón (fyrir saum), fellið af. BAKSTYKKI: = 120 (128-136) l. Fellið nú af fyrir handvegi á sama hátt og á framstykki = 110 (112-112) l. Þegar stykkið mælist 67 (70-73) cm fækkið nú um 6 l jafnt yfir miðju 12 l í hverju M.2 og 15 l jafnt yfir 36 l M.4 = 83 (85-85) l. Prjónið 2 umf garðaprjón (fyrir saum), fellið af. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 40 (44-44) l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði DROPS Karisma + 1 þræði DROP Cotton Visose (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 10 cm. Brjóta á uppá stroffið þess vegna mælist það eins og 5 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 26 (24-24) l jafnt yfir í síðustu umf = 66 (68-68) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið mynstur þannig: 21 (22-22) l af M.2 (byrjið við ör í mynstri), M.1, M.6, 21 (22-22) l af M.2. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 l mitt undir ermi 20 (21-21) sinnum í stærð S: Í 4. hverri umf, M+L: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf = 106 (110-110) l (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í M.2, síðan inn í M.3 útauknar lykkjur eru fyrst prjónaðar inn í M.2, síðan inn í M.3). Þegar stykkið mælist 46 (45-44) cm (+ 5 cm stroff) fellið af 4 l mitt undir ermi og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af í hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umf: 4 (3-3) l 6 (8-10) sinnum og síðan 11 (13-7) l 1 sinni í hvorri hlið = 32 (32-32) l eftir á prjóni, stykkið mælist ca 53 (54-55) cm – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Aukið út um 1 l hvoru megin fyrir saum = 34 (34-34) l (kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni). Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju, 1 l sléttprjón, 2 l br, M.1, M.6, 2 l br, 2 l sléttprjón, 1 kantlykkja. Í umf áður en stykkið mælist 16 (16-16) cm er fækkað um 6 l jafnt yfir síðustu 20 l í hægri hlið (séð frá réttu). Í næstu umf eru felldar af síðustu 14 l í hægri hlið = 14 l á prjóni. Fellið síðan af 2 l jafnt yfir næstu 4 l. Í næstu umf eru felldar af að auki 2 l í hægri hlið = 10 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 24,5 (25-25) cm. Prjónið saman síðustu l í M.1 og fyrstu í M.6 = 9 l á prjóni. Setjið þessar 9 l á þráð. Stykkið mælist alls ca 77,5 (79-80) cm (+ 5 cm stroff). VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, nema fellið af í gangstæðri hlið. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið niður axlarlykkjur frá fram- og baskstykki að hvorri hlið á ermi í ystu lykkju (garðaprjón). Saumið saman lykkjur af þræði efst á báðum ermum mitt aftan í hnakka á fram- og bakstykki með lykkjuspori. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 88-96 l (deilanlegt með 4) í kringum hálsmál á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði DROP Karisma + 1 þræði DROPS Cotton Viscose eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið 4 umf garðaprjón, 8 cm stroff 2 l sl, 2 l br, 4 umf garðaprjón, fellið af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 58-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.