Cracked Pepper |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-44 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðuls) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Peysan er hekluð í hring, en stykkinu er snúið við í hverri umferð. Heklið 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu í gegnum allt stykkið. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja á prjóni (t.d. 24 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem á að auka út/fækka (t.d. 3) = 8. Ef auka á út jafnt yfir í þessu dæmi eru heklaðir 2 stuðlar í 8. hvern stuðul. Ef fækka á lykkjum jafnt yfir í þessu dæmi eru heklaðir 7. og 8. hver stuðull saman. Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í/um næsta stuðul/lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokinn, heklið 1 stuðul í/um næsta stuðul/lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokinn er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring, en í hverri umferð er stykkinu snúið við mitt að aftan. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál, ermar og neðst niðri á peysu. BERUSTYKKI: Heklið 120-129-132-141-141-147 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Fabel – sjá LOFTLYKKJA, setjið stykkið saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Byrjun á umferð = mitt að aftan. SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 120-129-132-141-141-147 stuðlar. Snúið og heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 19-21-22-24-24-26 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= alls 11 stuðlar fleiri), 1 stuðul í hvern af næstu 38-43-44-49-49-51 stuðlum, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 stuðlar fleiri), 1 stuðull í hvern af síðustu 19-21-22-24-24-26 stuðlum = 142-151-154-163-163-169 stuðlar. Í næstu umferð eru sett prjónamerki í stykkið jafnframt því sem heklað er, prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu til að auðveldara sé að sjá hvar mynstureiningin byrjar og endar. Heklið frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 21-24-24-27-27-27 stuðlana (= 7-8-8-9-9-9 mynstureiningar) (= hálft bakstykki). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðla (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.3 yfir 1 stuðul (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki hér. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðla (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki (= ermi). Heklið A.1 yfir næstu 42-45-48-51-51-57 stuðlana (= 14-15-16-17-17-19 einingar) (= framstykki). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.2a yfir næstu 2 stuðla (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðla (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.3 yfir 1 stuðul (= 1 eining) og setjið 1 prjónameri. Heklið A.1 yfir næstu 12 stuðla (= 4 einingar). Setjið 1 prjónamerki og heklið A.3a yfir næstu 2 stuðlana (= 1 eining) og setjið 1 prjónamerki (= ermi). Heklið A.1 yfir síðustu 21-24-24-27-27-27 stuðlana (= 7-8-8-9-9-9 einingar) (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! STÆRÐ S og M: Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 200-209 stuðlar í umferð. STÆRÐ L, XL og XXL: Í síðustu umferð í A.1 til A.3 er aukið út um 6-6-6 stuðla jafnt yfir lykkjur í mynsturteikningu A.1 á framstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og 6-0-12 stuðlar jafnt yfir lykkjur í mynsturteikningu A.1 á bakstykki (= 12-6-18 stuðlar fleiri alls). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 224-227-239 stuðlar í umferð. STÆRÐ XXXL: Í síðustu umferð í A.1 til A.3 er aukið út um 3 stuðla jafnt yfir lykkjur í mynsturteikningu A.1 á bakstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 230 stuðlar í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Það eru alls 200-209-224-227-239-230 stuðlar á eftir síðustu umferð í mynsturteikningu og stykkið mælist ca 5 cm í öllum stærðum. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Heklið A.1 eins og áður, en það á að hekla yfir A.2a og A.3 þannig: Mynsturteikning A.2a er hekluð yfir miðju stuðlana í hverri eining af A.2a alls 1-1-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina (þ.e.a.s. A.2a hefur verið heklað alls 2-2-3-3 sinnum á hæðina), yfir þær lykkjur sem eftir eru er heklað A.1 (þ.e.a.s. það eru heklaðar 2 einingar af A.1 yfir hverja A.3 á ermum og það eru heklaðar 2 einingar af A.2 hvoru megin við hvert A.2a). Þegar A.2a er lokið eru 272-275-335-326 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 8-8-12-12 cm. STÆRÐ XXXL: Heklið mynsturteikningu A.2b yfir 2 miðju stuðlana í hverri einingu af A.2a alls 1 sinni á hæðina, það eru heklaðir stuðlar yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2b er lokið eru 374 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 15 cm. ALLAR STÆRÐIR: Það eru alls 200-209-272-275-335-374 stuðlar í umferð og stykkið mælist ca 5-5-8-8-12-15 cm. STÆRÐ S, M, L og XL: Heklið A.1 eins og áður, en nú á að hekla A.4a yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.2 alls 2-2-1-1 sinnum á hæðina, þær lykkjur sem eftir eru, eru heklaðar í A.1. Þ.e.a.s. yfir hvert A.2 er heklað þannig: Heklið A.1 yfir 6 stuðla (= 2 einingar), A.4a yfir 2 stuðla (= 1 eining) og A.1 yfir 6 stuðla (= 2 einingar). Í hvert skipti sem A.4a er endurtekið á hæðina eru heklaðar 8 einingar fleiri af A.1 í umferð. STÆRÐ M, L og XL: Heklið mynsturteikningu A.4b yfir miðju 2 stuðlana í hverri mynstureiningu af A.4a alls 1-1-2 sinnum á hæðina, stuðlar eru heklaðir yfir þær lykkjur sem eftir eru. STÆRÐ XXL og XXXL: Heklið mynsturteikningu A.4b yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.2 alls 2-2 sinnum á hæðina, stuðlar eru heklaðir yfir þær lykkjur sem eftir eru. ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.4 er lokið eru 248-281-320-347-383-422 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 12-15-15-18-19-22 cm. Heklið A.5 yfir miðju 2 stuðlana í hverri einingu af A.4 alls 1 sinni á hæðina, stuðlar eru heklaðir yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þ.e.a.s. yfir hvert A.4 er heklað þannig: Heklið 3 stuðla, A.5 yfir næstu 2 stuðla (= 1 eining) og 3 stuðlar. Þegar A.5 er lokið eru 276-309-348-375-411-450 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 15-18-18-21-22-25 cm. Haldið áfram með stuðla yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist alls 17-19-20-22-24-26 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 39-45-48-54-61-66 lykkjum (= hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 stuðla (= ermi), heklið 12 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 84-87-102-105-121-138 lykkjur (= framstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 stuðlana (= ermi), heklið 12 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 39-45-48-54-61-66 lykkjum (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-201-222-237-267-294 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju til loka og snúið stykkinu í hverri umferð eins og á berustykki. Þegar stykkið mælist 3,5 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 6 stuðla jafnt yfir alls 3-3-3-2-2-2 sinnum og síðan 3 stuðla alls 0-0-1-0-1-1 sinni = 168-183-201-225-252-279 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm frá skiptingu er aukið út í 4. hverri umferð þannig: 15 stuðlar jafnt yfir alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, 9 stuðlar jafnt yfir alls 3-3-3-2-4-3 sinnum og 6 stuðlar jafnt yfir alls 1-1-0-1-0-1 sinnum = 201-216-243-264-288-312 lykkjur. Haldið áfram að hekla stuðla þar til stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá skiptingu. Stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá kanti í hálsmáli. Heklið síðan kant í kringum neðri kantinn frá réttu þannig: * heklið 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju í næsta stuðul *, hekli frá *-* alla umferðina hringinn. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð ofan frá og niður. Heklað er í hring, en stykkinu er snúið eftir hverja umferð eins og á berustykki og fram- og bakstykki. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Byrjið umferð í 6. loftlykkju af 12 loftlykkjum sem heklaðar voru undir ermi á fram- og bakstykki, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju/stuðul umferðina hringinn = 69-78-87-93-96-102 stuðlar. Haldið áfram að hekla stuðla hringinn og snúið við í hverri umferð. Þegar ermin mælist 3,5 cm fækkið lykkjum jafnt yfir í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 6 lykkjur alls 0-1-3-5-6-6 sinnum og 3 stuðla alls 5-6-4-2-0-0 sinnum = 54-54-57-57-60-66 stuðlar. Haldið áfram með stuðla þar til stykkið mælist 38-36-35-33-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Heklið síðan kant í kringum kant á ermum frá réttu þannig: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm * , heklið frá *-* hringinn alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið hringinn, fram og til baka yfir loftlykkjuröðina í hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið mitt að aftan, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 hálfan stuðul á milli hverra stuðla yfir loftlykkjuröð í hálsmáli (fyrsti hálfa stuðli í umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur) = ca 120-129-132-141-141-147 hálfir stuðlar. UMFERÐ 2 (frá réttu): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul (fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju) = ca 120-129-132-141-141-147 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (58)
Maggie wrote:
Dear Drops , I am very confused with the second round of 'V' stitches. I seem to run short of stitches and I am confused as to the pattern on the yoke for size 'L'. starting with '... A.1 as before, but work as follows over A.2a and A.3: ...' Can you explain it to me please. Cracked Pepper Jacket Many thanks
08.02.2021 - 12:12DROPS Design answered:
Dear Maggie, after you have worked A.1-A.2a-A.3 in height, you will now continue working A.1 but over the 14 sts in last row on each A.2a you will work: A.1a over the first 6 sts (= 2 repeats), A.2 over the middle 2 sts (= 1 repeat) and A.1a over the next 6 sts (= 2 repeats). And there are 6 sts on last row in each A.3, over these 6 sts, you will work 2 repeats of A.1. Hope this helps. Happy crocheting!
08.02.2021 - 14:58Clara wrote:
Buongiorno, volevo sapere al momento di separare il davanti e il dietro dalle maniche nelle istruzioni indicare di saltare 66 maglie taglia M x le maniche, queste maglie devo essere chiuse o messe in sospeso a parte?grazie mille Clara
01.02.2021 - 14:19DROPS Design answered:
Buonasera Clara, deve semplicemente non lavorare quelle maglie e avviare nuove maglie per il sottomanica e proseguire con l'altro lato del corpo. Buon lavoro!
01.02.2021 - 19:33Célia wrote:
Hello. I’m about to start the yoke row A1and am a little nervous as I’ve never crocheted from a diagram before. I’ve read your tutorials so is this what I do ? Start from the right, second line, 2 treble crochets in 1 stich - do I then repeat this all the way along the row, or jump to A2 row 1 and then A2a, A2b and so on? Sorry if this is obvious. Thank you
12.12.2020 - 18:21DROPS Design answered:
Dear Celia, you have to repeat A.1 in width over a given number of stitches, this means you first work A.1, then A.2, then A.1, then A.3 etc... A.1 is worked over 3 sts; *skip 1 stitch, 1 tr, 1 ch, 1 tr in next st, 1 tr*, repeat from *-* the number of times explained in the pattern. then work first row in A.2a as shown in diagram, etc.. on next round, work 2nd round in each diagram over the first row. read more here. Happy crocheting!
14.12.2020 - 08:24Jean Simpson wrote:
Hello I'm making the medium size version of the FA-437 - cracked pepper jumper and am stuck with the yoke. I have 209 stitches after working pattern A1/A2/A3 for 4 rows and after working A1/A4a I have 265 stitches. Is this correct? If so, when I do the next 4 rows I have too many stitches, even when doing A4b only once . Many thanks Jean
05.12.2020 - 20:24DROPS Design answered:
Dear Mrs Simpson, in size M you crochet A.4a a total of 4 times in the round (= over the 4 previous repeats of A.2) and you will increase 6 sts in each A.4a (= 24 sts increased on first repeat in height = 233 sts, after 2nd repeat of A.4a there are 257 sts, then work A.4b (you inc 6 sts x 4 = 24 sts ) = 284 sts. Hope this will help. Happy crocheting!
07.12.2020 - 08:14Jose wrote:
Beste drops team, heel erg bedankt , voor jullie uitleg, ga er mee aan de slag
26.11.2020 - 15:46Jose wrote:
Beste drops team, Hoe komen jullie op 5 cm bij eerste drie toeren? Zie ook proeflapje? Kan toch niet ? Kom op 3,5 cm uit bij haaknld 4. Gr jose
25.11.2020 - 10:14DROPS Design answered:
Dag Jose,
Voordat je begint met de telpatronen heb je ook al een aantal toeren gehaakt zoals aangegeven bij de paragraaf over de PAS. Na de eerste 3 toeren van het telpatroon meet het werk ongeveer 5 cm vanaf het opzetten.
26.11.2020 - 09:34Kristina Pedersen wrote:
Jeg hækler i str. L og er kommet dertil hvor jeg har hæklet diagram 1 gang og har 224 masker. Jeg har forsøgt næste omgang - hæklet A1 og diagram A2a osv. Nu er jeg færdig med diagram igen det måler ca 9 cm men jeg har alt for mange masker.
30.10.2020 - 14:32Alessandra wrote:
Buongiorno, sto seguendo le indicazioni per la taglia S e sono arrivata ad avere 200 maglie nello sprone. Lo schema poi dice di procedere con A1 e lavorare le due maglie centrali di A2a seguendo il diagramma A4a. Non capisco però cosa devo fare quando arrivo sulle maglie che ho già lavorato secondo lo schema A3. Devo semplicemente lavorare sulle 6 maglie ottenute delle nuove maglie alte? Grazie
19.09.2020 - 22:16DROPS Design answered:
Buongiorno Alessandra, si esatto, deve semplicemente continuare a lavorare A.1 per tutto il giro tranne per le 2 maglie centrali di ogni ripetizione di A.2. Buon lavoro!
25.09.2020 - 09:20Trine M wrote:
Hej. Jeg hækler str M og er nået til at hækle diagram A1 og A4a (den første række). A1 går over 3 masker fra forrige omgang. Er det korrekt læst at A4a dækker over 2 masker fra forrige omgang så jeg hækler ned i hver anden maske fra forrige omgang?
21.08.2020 - 12:13DROPS Design answered:
Hej Trine, Ja A.4a hækles i hver 2. maske fra første række. God fornøjelse!
27.08.2020 - 13:41Jacqueline wrote:
Ik haak dit patroon in maat S en ben bij de toer waar je A1 haakt en A5 over A4. De beschrijving zegt: '3 stokjes, A5 over de volgende 2 stokjes en 3 stokjes'. In de 2e toer van A1 waarbij je steeds 4 stokjes samenhaakt, moet je dus ineens afwijken met de 3 stokjes, A5 en weer 3 stokjes. Klopt dat? Op de foto's zie ik dat niet.
09.08.2020 - 16:17DROPS Design answered:
Dag Jacqueline,
Ja, je haakt inderdaad 3 stokjes, dan A5 en dan weer 3 stokjes over A.4 in de eerste toer. Als het goed is kun je in de 2e toer het patroon van A.1 weer oppakken, zodat het doorloopt.
21.08.2020 - 13:18