DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Black Thunder

Hekluð peysa með röndum úr DROPS Air. Stykkið er heklað í stuðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-8
DROPS Design: Mynstur ai-213
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250-250-300-300 g litur 06, svartur
150-150-150-200-200-200 g litur 04, milligrár
100-100-100-150-150-150 g litur 01, natur

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. Lykkjuna frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
UMFERÐ MEÐ 2 LITUM:
Heklaðu með 3 dokkum í sömu umferð, þannig að þú sleppur við langa þræði á röngunni. Þ.e.a.s. heklaðu með 1 dokku með milligrár/natur í hvorri hlið á peysunni og 1 dokku í litnum natur/svartur mitt í peysu.
UMFERÐ MEÐ 3 LITUM:
Heklaðu með 5 dokkum í sömu umferð, þannig að þú sleppur við langa þræði á röngunni. Þ.e.a.s. heklaðu með 1 dokku í litnum milligrár/natur í hvorri hlið á peysunni, 1 dokku í litnum milligrár/natur í hvorri hlið á peysunni og 1 dokku í litnum natur/svartur mitt í peysu.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið síðan þráðinn í gegn í lokin, síðan er næsti stuðull heklaður.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri).
Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 stuðla til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 2 stuðlar færri).

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum neðan frá og upp og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 67-71-75-83-91-99 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með litnum milligrár. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftykkju frá heklunálinni – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 66-70-74-82-90-98 fastalykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-11-11-10-10 cm á að hekla með 2 litum – sjá MYNSTUR og LITASKIPTI, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 23-25-27-31-35-39 stuðlum með litnum milligrár, heklið A.1 yfir næstu 20 stuðla með litnum natur/milligrár og heklið 1 stuðul í hvern af þeim 23-25-27-31-35-39 stuðlum sem eftir eru með litnum milligrár. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina er haldið áfram með mynstur eins og í síðustu umferð, með úrtökum og útaukningum eins og áður (þ.e.a.s. það er fækkað um 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-11-11-12-12 umferðir með litnum natur.
Haldið áfram með úrtöku og útaukningu eins og áður, en nú er byrjað á nýju lit, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-25-27-31-35-39 stuðla (með litnum milligrár/natur), heklið A.2 yfir næstu 20 stuðla með litnum natur/svartu og heklið eins og áður yfir 23-25-27-31-35-39 stuðla sem eftir eru (með litnum natur/milligrár).
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram eins og í síðustu umferð, með úrtöku og útaukningu eins og áður (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til ekki fleiri lykkjur eru til með natur úr í hvorri hlið. Stykkið mælist ca 44-45-46-49-51-53 cm. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul með litnum svartur til loka.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm heklið ekki lengur yfir miðju 24-24-24-24-26-26 stuðla (= hálsmál) = 21-23-25-29-32-36 stuðlar á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á öxl jafnframt því sem fækkað er um 1 stuðul í fyrstu umferð, við hálsmál – sjá ÚRTAKA = 20-22-24-28-31-35 stuðlar. Heklið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá affellingarkanti, prjónamerki merkir hvar á að sauma ermina í. Heklið hina öxlina á sama hátt og setjið 1 prjónamerki í hlið.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og bakstykki.
Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm er ekki lengur heklað yfir miðju 28-32-35-39 stuðla á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á öxl jafnframt því sem fækkað er um 2 stuðla við hálsmál – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið um 2 stuðla í hverri umferð alls 2 sinnum = 20-22-24-28-31-35 stuðlar. Heklið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá affellingarkanti, prjónamerkið merkir hvar ermin er saumuð í.
Heklið hina öxlina á sama hátt og setjið 1 prjónamerki í hlið.

ERMI:
Heklið 37-37-39-41-41-43 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með litnum milligrár, snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 36-36-38-40-40-42 fastalykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm byrjar mynstur og þegar stykkið mælist 9 cm byrjar útaukning í hvorri hlið, þ.e.a.s. þetta er gert samtímis þannig:
ÚTAUKNING:
Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 12-7½-7-5½-5-4½ cm millibili alls 4-6-6-7-8-8 sinnum = 44-48-50-54-56-58 stuðlar.
MYNSTUR:
Þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm er heklað með 2 litum – munið eftir MYNSTUR og LITASKIPTI, þ.e.a.s næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 8-8-9-10-10-11 stuðlum með litnum milligrár, heklið A.1 yfir næstu 20 stuðla með litnum natur/milligrár og heklið 1 stuðul í hvern af þeim 8-8-9-10-10-11 stuðlum sem eftir eru með litnum milligrár. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram eins og í síðustu umferð, með úrtöku og útaukningu eins og áður (þ.e.a.s fækkað er um 2 lykkjur og aukið er út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-11-11-12-12 umferðir með litnum natur.
Haldið áfram með úrtöku og útaukningu eins og áður, en nú er byrjað á nýjum lit, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.2 yfir miðju 20 stuðla með litnum natur/svatur, heklið eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru (með litnum natur/milligrár).
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram eins og í síðustu umferð, með úrtöku og útaukningu eins og áður (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til ekki fleiri lykkjur eru með litnum natur í hvorri hlið.
Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul með litnum svartur til loka.
Heklið áfram þar til stykkið mælist 50-50-49-47-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt – saumið í ystu lykkjubogana.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið með 1 keðjulykkju við aðra öxlina og heklið upp frá réttu ca 72 til 90 stuðla í kringum hálsmál með litnum svartur. Heklið 1 umferð með stuðlum og jafnið lykkjufjöldann til 72-76-78-82-86-90 stuðlar. Heklið 1 umferð til viðbótar með stuðlum. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið við ör
symbols = byrjið hér
symbols = stuðull í lykkju (með milligrár)

symbols = HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN (með milligrár): Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri)
symbols = stuðull í lykkju (með natur)
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju (með natur)
symbols = stuðull í lykkju (með svartur)
symbols = HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN (með natur): Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri)
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju (með svartur)
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Josette wrote:

Bonjour, je recherche ce même diagramme de rayures en biais (pour les manches) à faire aux aiguilles circulaires .. Pouvez vous m'aider ? Merci

28.10.2022 - 06:46

DROPS Design answered:

Bonjour Josette, ce type de rayures se tricote en allers et retours car l'espacement entre les couleurs est trop important pour les tricoter en rond - retrouve par ex 2 modèles tricotés avec ce type de rayures: ici et (avec une construction différente du 1er). Bon tricot!

28.10.2022 - 11:03

country flag Lauranne wrote:

Bonjour, une question : quand on diminue (par exemple le gris) , on est tjr avec un nombre impair sur les côtés , donc à la fin d'une couleur ça se passe comment ? (par exemple ici j'ai encore 3 mailles grises de chaque côté, ensuite j'ai le blanc et enfin le noir au milieu), je suis sensée faire encore 2 diminutions comme indiqué sur le schéma mais impossible.

08.10.2022 - 15:47

DROPS Design answered:

Bonjour Lauranne, diminuez en 2 fois: crochetez 1 bride dans la 1ère bride et 2 brides écoulées ensemble dans les 2 brides suivantes (ainsi vous ne diminuez qu'une seule maille) et au rang suivant, diminuez en crochetant les 2 premières mailles ensemble; répercutez cette diminution à la fin de votre gris en ne diminuant qu'une seule fois, augmenter 2 fois dans la couleur suivante (1 fois au début + 1 fois à la fin), et diminuez 1 fois au début du gris à la fin du rang. Bon crochet!

10.10.2022 - 08:48

country flag Dina wrote:

Ik wil deze trui breien ik heb maar een bol grijs kan dat ook

23.11.2020 - 23:26

DROPS Design answered:

Dag Dina,

In het patroon staat aangegeven dat je 3 of 4 bollen nodig hebt (afhankelijk van de maat), dus één bol is dan wel een heel groot verschil, en aangezien je begint met grijs is het lastig om uit te rekenen waar je precies met wit moet beginnen. Dit zou je gaandeweg moeten ontdekken, waarbij je ook tegelijkertijd met de mouwen moet beginnen. Misschien de bol grijs als dunne strook tussen het zwart en wit verwerken?

24.11.2020 - 13:17

country flag Marga wrote:

Me encanta, pero como podría adaptar el patrón para hacerlo en dos agujas? Gracias

09.11.2019 - 19:09

DROPS Design answered:

Hola Marga. Nosotros no hacemos patrones personalizados. Este tipo de cuestiones puedes consultarlas en la tienda de Drops más cercana o contactándo con ellos por email/telefono para obtener ayuda más personalizada.

09.11.2019 - 19:50

country flag Nita Sands wrote:

How do I find a yarn that is like caron simply soft? this is a gorgeous sweater and I would love to make it with your yarn of course. I have wondered for a long time how to replace my favorite yarn. I don't know where there is a store near me or if there even is one. So I could order it online maybe. thank you for your time. I make a lot of your patterns and they are great!

05.09.2019 - 01:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sands, We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. You will therefore understand that we can only recomand you to contact your DROPS Store shipping to USA for any further help & assistance. Thank you for your comprehension.

05.09.2019 - 09:34

country flag Bianca wrote:

Het patroon klopt echt niet voor maat xxl. Ik haak met haaknaald 3,5. Volgens foto en tekening zou de witte baan ter hoogte van de oksel afgelopen zijn. Echter, als je het patroon aanhoudt is op 52 cm pas de grijze baan weg en heb je nog 24 witte steken aan elke kant.

18.08.2019 - 15:34

country flag Bianca wrote:

Waarom gebruik je bij de meerdering bij de kleurwisseling dubbele stokjes? Daardoor komt de bovenkant van die kleur hoger uit dan de andere kleur van de toer. Ik ben nu op de 5de toer met naturel en ik vind dat het er gek uitziet

15.08.2019 - 18:50

DROPS Design answered:

Dag Bianca,

Er worden bewust dubbele stokjes bij de overgangen gebruikt om de schuine lijnen te creëren (en het samentrekken van de samen gehaakte stokjes te compenseren) Dit kan eerst inderdaad een beetje vreemd lijken, maar trekt, als het goed is, wel weer bij.

17.10.2019 - 09:50

country flag Gloria wrote:

Para cuando estará el patrón disponible en la web?

11.08.2019 - 20:39

DROPS Design answered:

Hola Gloria. Este modelo en español se publicará la semana que viene.

31.08.2019 - 21:27

country flag Gloria wrote:

Actual,sencillamente precioso. Para cuando el patrón?

11.08.2019 - 20:38

country flag Chantal wrote:

I love this sweater. It might be a bit challenging for my level but I am always up for a challenge.

30.07.2019 - 16:06