Agneta Reyier skrifaði:
Hej, jag köpte garn och mönster för ett par år sedan. Jag har tappat bort mönstret. Jag har två Drops Alaska uni color, colour 02 "offwhite" och två colour 03 grå. Mönstret var på "tofflor " och var "stora" rutor, skulle sitta ihop i ett bestämt mönster, stickor 4,5. Hittar inte det mönstret på er sida. Tror ni att ni kan hjälpa mig? Mvh Agneta Reyier
02.08.2024 - 14:50DROPS Design svaraði:
Hej Agneta, kan det være dem her: DROPS Rätstickade tofflor Øverst i mønstert finder du en video som viser nøjagtig hvordan man gør :)
06.08.2024 - 13:59
Nicole skrifaði:
Das ist eine super Anleitung, ich würde aber gern für meine Kinder diese auch Stricken. Gibt es eine Möglichkeit diese Anleitung auch für Kinder Größen ab 23 bis 33 Schuhgröße?
27.03.2024 - 13:16DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, dieses Modell wird nur für Damen erhältlich, aber hier finden Sie alle unsere gefizten Hausschuhen für Kinder - in der Größe22-23 z.B. die Grôße können Sie auch mal ändern. Viel Spaß beim stricken!
02.04.2024 - 12:23
Madeleine Ducharme skrifaði:
Combien de temps doit laisser à la laveuse pour feutrer des pantoufles? Merci
06.02.2024 - 04:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Ducharme, choisissez un programme standard à 40°C, sans prélavage, évitez un cycle court; retrouvez plus d'infos ici, n'hésitez pas à contacter votre magasin, on saura vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
06.02.2024 - 08:53
An De Bosscher skrifaði:
Goede middag, ik leid uit de beschrijvingen af dat er 16 bollen wol nodig zijn voor deze sloffen. Hoeveel zijn er nodig als ik beslis om één kleur te gebruiken? Graag uw advies.
25.03.2020 - 15:43DROPS Design svaraði:
Dag An,
Er zijn geen 16 bollen nodig hoor, maar voor iedere maat staat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt, dus als er 50-50-50-100 staat heb je 50 gram (= 1 bol) nodig voor de eerste 3 maten, en 2 bollen voor de grootste maat in die kleur. Vergeleken met soortgelijke sloffen heb je ongeveer 200-200-300-300 gr. nodig om ze in een kleur te maken. TIP: Vraag je verkooppunt of je eventueel overgebleven bollen terug kunt sturen.
27.03.2020 - 13:18
Greta Halseth skrifaði:
Det står at det skal strikkes 20 1/5 cm glattstrikk etter hæl,stemmer det..eller skal dette være inkl hæl.?synes det ser svært lang ut
29.12.2019 - 17:59DROPS Design svaraði:
Hei Greta. Husk at disse tøfflene skal toves og da krypmer målene. Fotens lengde etter toving: 22 – 24 – 27 – 30 cm Fotens lengde før toving: ca 29½ -32½-37-40 cm mvh DROPS design
27.01.2020 - 12:43
Tova skrifaði:
The pattern is beautiful, however , the length in cm does not make any sense. The slippers are huge according to the length in the pattern. Can please check ?
16.11.2019 - 15:44DROPS Design svaraði:
Dear Tova, slippers will be felted, so that they should measure: before felting: Length: approx. 29½ -32½-37-40 cm and then after felting: Foot length 22 – 24 – 27 – 30 cm. Happy knitting!
18.11.2019 - 11:20
Birgitta skrifaði:
Väntar på detta mönster
30.09.2019 - 11:15
Jeanett skrifaði:
Väntar med spänning på mönstret
22.09.2019 - 08:22
Rosita skrifaði:
Sehr schön, unbedingt die Anleitung einstellen, Danke
11.09.2019 - 12:47
Anne Davidsen skrifaði:
Hvornår lægger i denne opskrift op så man kan gå i gang med at strikke ?
03.09.2019 - 12:26
Sorbet Slippers#sorbetslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar þæfðar tátiljur úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki sem síðan er saumað saman fyrir þæfingu. Stærð 35-46.
DROPS 203-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, er það saumað saman og þæft í þvottavél. KANTUR AÐ AFTAN: Fitjið upp 23-25-26-28 lykkjur á prjón 5,5 með litnum grár. Prjónið 16 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HÆLL: Prjónið nú stuttar umferðir til að forma hælinn, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). Skiptið yfir í litinn brúnn, byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, * snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við *, prjónið frá *-* þar til 5-5-6-6 lykkjur eru eftir að miðju á stykki (nú hefur verið snúið við 9-10-10-11 sinnum í hvorri hlið). Nú á að prjóna yfir 1 lykkju fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið aftur yfir allar lykkjur = 23-25-26-28 lykkjur. NEÐRA STYKKI: Skiptið yfir í litinn rúbínrauður. Prjónið sléttprjón og í fyrstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 19-21-22-24 lykkjur. Prjónið sléttprjón í alls 19-20½-24½-27 cm. TÁ: Prjónið nú stuttar umferðir til að forma tá, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). Skiptið yfir í litinn brúnn, byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, * snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við *, prjónið þar til 5-5-6-6 lykkjur eru eftir að miðju á stykki ( það hefur verið snúið við 7-8-8-9 sinnum í hvorri hlið). Nú er prjónað yfir 1 lykkju fleiri í hverri umferð sem snúið er við þar til prjónað hefur verið aftur yfir allar lykkjur = 19-21-22-24 lykkjur. EFRI HLIÐ: Skiptið yfir í litinn kórall. Prjónið sléttprjón í 9-10-12-13 cm, í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út með uppslætti sem prjónaður er snúinn brugðið í næstu umferð) = 23-25-26-28 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til prjónaðir hafa verið 19-20½-24½-27 cm í sléttprjóni og næsta umferð er frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN: Skiptið yfir í litinn grár og prjónið 2 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Prjónið síðan stuttar umferðir þannig, með byrjun frá réttu: Prjónið 3 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 6 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 3 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 6 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stykkið við tá, þannig að efri hlið liggi ofan á neðri hlið. Passið uppá að hlið á uppfitjunarkanti og hlið á affellingarkanti liggi kant í kant (uppfitjunarkantur og affellingarkantur mynda gatið þar sem fóturinn fer í tátiljuna). Saumið í ystu lykkjubogana, byrjið í hlið á uppfitjunarkanti/affellingarkanti og saumið fram að tá. Endurtakið í hinni hliðinni. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sorbetslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.