Helen Johnston skrifaði:
Are there 5 or 6 rounds? Not counting the ring at the beginning, the first is a round with double crochets, the next is groups of double treble crochets with chains, all in one colour (rounds 1-2). Then the next round is double crochets into the chain spaces, (round 3), the next round is a series of chain stitches anchored in the previous row of double crochets (round 4). Then there are two more rounds of trebles and chains . So is the fifth round in off-white and the sixth in beige?
16.11.2024 - 13:45DROPS Design svaraði:
Dear Helen, there should be 6 rounds, not counting the ring. The first double crochet round (round 1), the 4 chain stitches and double treble crochet clusters round (round 2), the 2nd double crochet round (round 3), the double crochet + chains round (round 4), and the 2 treble crochet rounds + chains (rounds 5 and 6). The cast on, the first double crochet round, the 4 dtr cluster and chain stitches round and the 2nd double crochet round are in the flower colour, then the double crochet + chains round and the first treble crochet round is in off white and the last round is in light beige. Happy crochetting!
17.11.2024 - 23:08
Daniela skrifaði:
Salve! ho un dubbio su un punto del bordo "1 maglia alta nella 5° catenella dall’uncinetto" non capisco in quale catenella è. c'è magari un video che lo spiega? Grazie!
12.05.2023 - 22:41DROPS Design svaraði:
Buongiorno Daniela, deve contare 5 catenelle da quel punto e lavorare in quella catenella. Buon lavoro!
14.05.2023 - 13:43
Pastel Dreams#pasteldreamsblanket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi með hekluðum ferningum úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Barnateppi.
DROPS Children 35-7 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. (= teikning sem sýnir staðsetningu á ferningum í mismunandi litum). LITIR: FERNINGUR-1: Uppfitjun (4 loftlykkjur + 1 keðjulykkja) + UMFERÐ 1-2: ljós gulur. UMFERÐ 3-4: natur. UMFERÐ 5: ljós beige. FERNINGUR-2: Uppfitjun (4 loftlykkjur + 1 keðjulykkja) + UMFERÐ 1-2: pistasía. UMFERÐ 3-4: natur. UMFERÐ 5: ljós beige. FERNINGUR-3: Uppfitjun (4 loftlykkjur + 1 keðjulykkja) + UMFERÐ 1-2: stálblár. UMFERÐ 3-4: natur. UMFERÐ 5: ljós beige. FERNINGUR-4: Uppfitjun (4 loftlykkjur + 1 keðjulykkja) + UMFERÐ 1-2: ljós bleikur. UMFERÐ 3-4: natur. UMFERÐ 5: ljós beige. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru heklaðir 35 ferningar í mismunandi litum. Ferningarnir eru heklaðir saman og að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið LITIR – sjá útskýringu að ofan og mynstur hringinn þannig: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með Merino Extra Fine og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Haldið síðan áfram með mynsturteikningu A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið heklað til loka á ferningurinn að mælast ca 13 cm x 13 cm. Heklið alls 35 ferninga, þ.e.a.s 9 st FERNINGUR-1, 9 st FERNINGUR-2, 9 st FERNINGUR-3 og 8 st FERNINGUR-4 FRÁGANGUR: Staðsetjið ferningana með 5 ferninga á breidd og 7 ferninga á hæð eins og útskýrt er í A.2. Ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á breiddina og síðan á lengdina. Leggið 2 ferninga saman með rönguna að hvorum öðrum og heklið þá saman í gegnum bæði lögin með ljós beige þannig: * 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í hornið, 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 5 loftlykkjur og 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í hornið, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* þar til ferningarnir í 1 röð hafa verið heklaðir saman. Haldið áfram með 2. og 3 röðina o.s.frv. alveg eins. Heklið síðan raðirnar saman á lengdina alveg eins. BLÚNDU KANTUR Í KRINGUM ALLT TEPPIÐ: Byrjið í einu horninu og heklið með ljós beige þannig: 1 fastalykkja í loftlykkjuboga í hornið, * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í 5. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* í kringum allt teppið (passið uppá að það verði 1 loftlykkjubogi í hverju horni á teppinu) og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pasteldreamsblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 35-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.