Jane skrifaði:
Hvad er bryst målene
10.03.2022 - 14:00DROPS Design svaraði:
Hei Jane, Du finner en målskisse til alle størrelsen på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
11.03.2022 - 07:07
Jane skrifaði:
Hvad er bryst målene
10.03.2022 - 13:59
Huguette Thenadey skrifaði:
Bonjour modele drops 187-6 je souhaiterais tricoter ce modele avec des aiguilles droites et non circulaires,possibilites svp merci
03.06.2021 - 13:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thenadey, bien volontiers, ce modèle se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles - vous trouverez ici plus d'infos sur les aiguilles circulaires et comment adapter un modèle. Bon tricot!
03.06.2021 - 13:56
Chantal skrifaði:
Bonjour, je suis étonnée que l'encolure du dos ne fasse que 10 cm. Est ce bien ça ? Merci de votre réponse
17.03.2021 - 01:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Chantal, tout à fait, si votre tension est exacte, vous aurez bien 10 mailles rabattues pour l'encolure dos = 10 cm. Veillez à bien rabattre ces mailles souplement pour que l'encolure puisse joliment s'étirer quand on porte le pull. Bon tricot!
17.03.2021 - 08:51
Verónica skrifaði:
Muchísimas gracias por la respuesta!!! Muy amables!!!
24.07.2020 - 20:52
Verónica skrifaði:
Hola, no entiendo porque si tengo que usar aguja circular en el patrón la indicación es montar la delantera separada de la espalda. Gracias y saludos.
24.07.2020 - 01:12DROPS Design svaraði:
Hola Veronica. Este modelo se trabaja de ida y vuelta, el delantero y la espalda por separado. La aguja circular en este caso se utiliza para trabajar más cómodo debido al elevado número de puntos y el grosor de lana.
24.07.2020 - 20:10
Hanne Mortensen skrifaði:
Den her vil jeg også gerne strikke. Den er hurtig og nem, fin til weekend og feriestrikning. Og først og fremmest fin og smart, tidløs.
21.02.2019 - 15:25
Early Riser#earlyrisersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 56-60-64-68-72-76 lykkjur á hringprjón 9 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós sægrænn (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er fitjuð upp 1 lykkja í lok næstu 2 umferða (merkir klauf) = 58-62-66-70-74-78 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 6 lykkjur í umferð, JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 56-60-64-68-72-76 lykkjur. Haldið síðan áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, sléttprjóni og garðaprjóni yfir miðju 6 lykkjur í umferð þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 6 lykkjur (síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Setjið síðustu 28-30-32-34-36-38 lykkjur (séð frá réttu) á þráð fyrir hægra framstykki og prjónið vinstra framstykki yfir fyrstu 28-30-32-34-36-38 lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á undan skiptingu fyrir hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi). Prjónið til baka frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 5-5-6-6-7-7 sinnum = 23-25-26-28-29-31 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til handvegur mælist ca 16-17-18-19-20-21. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 9. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 3 lykkjur garðaprjón (= frá hálsi), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón í hlið. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 5-5-6-6-7-7 sinnum = 23-25-26-28-29-31 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm – stillið af við vinstra framstykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp 56-60-64-68-72-76 lykkjur á hringprjón 9 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós sægrænn (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12 cm er fitjuð upp 1 lykkja í lok næstu 2 umferða (merkir klauf) = 58-62-66-70-74-78 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 56-60-64-68-72-76 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Prjónið nú næstu umferð þannig – frá réttu: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 20-22-23-25-26-28 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 16-16-18-18-20-20 lykkjur, prjónið eins og áður yfir næstu 20-22-23-25-26-28 lykkjur. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Axlirnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjóni við handveg og 3 lykkjur garðaprjón við hálsmál. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur – stillið af við framstykki. Fellið af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 30-30-32-32-34-34 lykkjur á hringprjón 9 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós sægrænn (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-5-5-4-4-4 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 7-8-8-6-6-4 cm millibili alls 2-3-3-4-4-5 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-31-30-29-28-27 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og hliðarsaum niður að klauf (þar sem fitjuð var upp ein ný lykkja). Endurtakið í hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlyrisersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.