DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 199-26
DROPS Design: Mynstur ml-032
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-250-250-300-300 g litur 02, þoka
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 07, dökk gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff og garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni:
2 umferðir dökk gallabuxnablár
4 umferðir þoka
2 umferðir dökk gallabuxnablár
2 umferðir þoka
2 umferðir natur
2 umferðir þoka
4 umferðir dökk gallabuxnablár
4 umferðir þoka
8 umferðir natur
2 umferðir þoka
2 umferðir natur
4 umferðir þoka
2 umferðir dökk gallabuxnablár

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka ofan frá og niður.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 72-80-84-92-100-108 lykkjur á prjón 6 með litnum þoka. Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið sléttprjón og í fyrstu umferð er fækkað um 4-6-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 68-74-80-88-96-102 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-4-5-6-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-66-70-76-82-88 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 26-27-28-31-33-36 lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= vinstri öxl), fellið af næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur og prjónið síðan út umferðina. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
= 26-27-28-31-33-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRI ÖXL:
Setjið til baka lykkjur af bandi á prjóninn = 26-27-28-31-33-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá röngu: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti (passið uppá að axlirnar verði jafn langar).

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykkið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af 2-4-5-6-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-66-70-76-82-88 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 22-23-24-27-29-32 lykkjurnar, setjið þær síðan á þráð (= hægri öxl), fellið af næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur og prjónið út umferðina. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
= 22-23-24-27-29-32 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti.

HÆGRI ÖXL:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 22-23-24-27-29-326 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti (passið uppá að axlirnar verði jafn langar).

FRÁGANGUR OG KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Leggið framstykkið að bakstykkinu og saumið axlirnar saman á annarri öxlinni.
Byrjið frá réttu með prjón 6 og þoka, prjónið upp ca 68-68-70-74-76-78 lykkjur meðfram öllum kanti í hálsi. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá réttu, látið endann vera ca 30-50 cm langan áður en klippt er frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Notið endann til að sauma saman hliðar í kanti í hálsi, saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið síðan hina öxlina á sama hátt og fyrri öxl.

ERMI:
Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Prjónið upp 46-48-50-54-58-62 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram handveg með prjón 7 með litnum þoka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 1½-3-3½-4-5-5 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (það er notað við frágang). Haldið áfram þar til ermin mælist 15-15-14-13-12-11 cm frá öxl. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og aukið JAFNFRAMT út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-3-4-4-6½-9 cm millibili alls 8-8-7-6-4-3 sinnum = 62-64-64-66-66-68 lykkjur í umferð. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, prjónið áfram með litnum þoka. Prjónið þar til stykkið mælist 47-47-46-45-44-43 cm frá öxl. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til eftir eru 1-0-2-1-3-2 lykkjur og prjónið þær slétt = 32-32-34-34-36-36 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á prjón 6 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana, byrjið neðst niðri á stroffi og saumið fram að prjónamerki sem var sett 1½-3-3½-4-5-5 cm frá öxl. Frá prjónamerki er saumuð hvor hlið á ermi niður að hvorri hlið á fram-/bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Saumið síðan hlið á framstykki við hlið á bakstykki frá undir ermi og niður að stroffi. Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Elin Meijnen wrote:

Er staat: Meerder TEGELIJKERTIJD 1 steek aan de binnenkant van de 1 steek aan elke kant. Ik begrijp dit niet.

23.08.2022 - 14:49

DROPS Design answered:

Dag Elin,

Aan elke zijkant, dus aan elke kant op het begin en einde van de naald meerder je naast de eerste/laatste steek, dus naast de kantsteek.

23.08.2022 - 19:19

country flag Katia Montani wrote:

Buongiorno ho difficoltà a trovare il colore nebbia 02 in Italia (tutti i rivenditori dicono che è esaurito) mi consigliate qualche sito dove ordinarlo? Grazie mille

19.05.2022 - 21:42

DROPS Design answered:

Buonasera Katia, a questo link può trovare tutti i rivenditori italiani o esteri che spediscono in Italia. Buon lavoro!

22.05.2022 - 18:33

country flag Céline Adelon wrote:

Bonjour, Merci pour ce très beau modèle! J'aimerais augmenter l'effet ballon vers le milieu des manches , pouvez-vous me donner un conseil ? Sachant que je voudrais le réaliser en taille L. Merci d'avance

06.02.2022 - 04:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Adelon, peut-être pouvez-vous augmenter davantage de mailles pour rajouter du "bouffant" en bas? Consultez nos autres modèles avec manches bouffantes, l'un d'eux pourra peut-être vous inspirer. Bon tricot!

07.02.2022 - 09:54

country flag Tanja wrote:

4 Maschen für die Armausschnitte beidseitig, d.h. am Anfang der nächsten 2 Reihen, abketten . was bedeutet das ? erste Hinreihe 2 Maschen abketten ,Reihe beenden und in der Rückreihe wieder 2 Maschen abketten ?

14.12.2021 - 09:56

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, ja ganz genau so (in S), so haben Sie 2 Maschen beidseitig abgkettet (und 2 Reihen = 1 Hin- + 1 Rückreihe) gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2021 - 16:47

country flag Tanja wrote:

Muss man beim vorderteil , nach dem Bündchen ,in der hin runde abnehmen oder in der rückrunde ?

13.12.2021 - 16:17

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, so wichtig ist es nicht, bei einer Hinreihe stricken Sie 2 Maschen rechts zusammen, bei einer Rückreihe stricken Sie 2 Maschen links zusammen. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2021 - 07:35

country flag Tanja wrote:

48 Maschen innerhalb 1 Masche aus dem ganzen Armausschnitt mit Nadel Nr. 7 mit nebel auffassen. was bedeutet das ?

08.12.2021 - 19:42

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, die Ärmel werden von oben nach unten gestrickt, die Maschen werden rund das Armloch aufgefassen - siehe dieses Video - mit der Farbe Nebel. Kann das Ihnen helfen?

09.12.2021 - 07:26

country flag Margu wrote:

Knitting for the first time in many years. I am On third row of rib for front of jumper and the rib doesn’t look right. Could be the fluffy wool however don’t want to continue without advice ( have already ripped out and started again) Is the garter stitch at each end of the row? So k1 , k2,P2 till last 3 stitches k3? I have never done garter stitch at edge so I may be knitting wrongly. Many thanks Margaret

11.11.2021 - 02:21

DROPS Design answered:

Dear Margu, yes, 1 edge stitch (garter, that is knit every row) then knit 2, purl 2 until the last 3 stitch, knit 2 (s it is symmetric) and edge stitch with garter. Happy Stitching!

11.11.2021 - 07:43

country flag Karoline Lorenzen wrote:

Hvad mener i med "sy" skulder sammen?

06.05.2021 - 07:43

DROPS Design answered:

Hej Karoline, du syr bagstykket og forstykket sammen øverst på skulderen. Der er mange måder at gøre det på, her kommer en: Sy sammen Og her finder du flere : Montering - sy sammen - bluser

06.05.2021 - 11:06

country flag Pilar wrote:

No he visto las instrucciones para las mangas en este patrón.BLUEBERRY MELODY. Por favor, podrian darme indicacion sobre el numero de puntos a seguir? Muchas gracias!!

05.01.2020 - 02:34

country flag Anne wrote:

Strikkes denne med enkel eller dobbel tråd?

30.08.2019 - 15:36

DROPS Design answered:

Hei Anne. Denne oppskriften strikkes med enkel tråd. God fornøyelse!

31.08.2019 - 09:03