Anja skrifaði:
Wow ! Zo mooi ! Heel erg trendy met die ballonmouwen en strepen. Ik vind dat er dit seizoen zoveel moderne patronen bij zitten. Helemaal mee met de mode. Proficiat Drops team! Ik ga dit model wel met Drops Sky maken, ik vind Melody te pluizig. Hoop dat het even mooi wordt.
07.05.2019 - 21:46
Mapi skrifaði:
Bellissimo l'accostamento dei colori! Spero lo traduciate in italiano.
24.02.2019 - 11:37
Vashti skrifaði:
Pity about the puffy arms
30.12.2018 - 23:50
My29 skrifaði:
Très belle association de couleurs. J'aime beaucoup la forme des manches.
26.12.2018 - 09:47
Ann-Carola skrifaði:
Ocean
18.12.2018 - 04:03
Anneli skrifaði:
Moodsad varrukad!
14.12.2018 - 12:10
Blueberry Melody#blueberrymelodysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með blöðruermum og röndum úr DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni: 2 umferðir dökk gallabuxnablár 4 umferðir þoka 2 umferðir dökk gallabuxnablár 2 umferðir þoka 2 umferðir natur 2 umferðir þoka 4 umferðir dökk gallabuxnablár 4 umferðir þoka 8 umferðir natur 2 umferðir þoka 2 umferðir natur 4 umferðir þoka 2 umferðir dökk gallabuxnablár ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka ofan frá og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 72-80-84-92-100-108 lykkjur á prjón 6 með litnum þoka. Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið sléttprjón og í fyrstu umferð er fækkað um 4-6-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 68-74-80-88-96-102 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-4-5-6-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-66-70-76-82-88 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 26-27-28-31-33-36 lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= vinstri öxl), fellið af næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur og prjónið síðan út umferðina. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig. HÆGRI ÖXL: = 26-27-28-31-33-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af bandi á prjóninn = 26-27-28-31-33-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá röngu: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti (passið uppá að axlirnar verði jafn langar). BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykkið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af 2-4-5-6-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-66-70-76-82-88 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 22-23-24-27-29-32 lykkjurnar, setjið þær síðan á þráð (= hægri öxl), fellið af næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur og prjónið út umferðina. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig. VINSTRI ÖXL: = 22-23-24-27-29-32 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. HÆGRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 22-23-24-27-29-326 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu = 21-22-23-26-28-31 lykkjur fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti (passið uppá að axlirnar verði jafn langar). FRÁGANGUR OG KANTUR Í HÁLSMÁLI: Leggið framstykkið að bakstykkinu og saumið axlirnar saman á annarri öxlinni. Byrjið frá réttu með prjón 6 og þoka, prjónið upp ca 68-68-70-74-76-78 lykkjur meðfram öllum kanti í hálsi. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá réttu, látið endann vera ca 30-50 cm langan áður en klippt er frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Notið endann til að sauma saman hliðar í kanti í hálsi, saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið síðan hina öxlina á sama hátt og fyrri öxl. ERMI: Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Prjónið upp 46-48-50-54-58-62 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram handveg með prjón 7 með litnum þoka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 1½-3-3½-4-5-5 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (það er notað við frágang). Haldið áfram þar til ermin mælist 15-15-14-13-12-11 cm frá öxl. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og aukið JAFNFRAMT út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-3-4-4-6½-9 cm millibili alls 8-8-7-6-4-3 sinnum = 62-64-64-66-66-68 lykkjur í umferð. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, prjónið áfram með litnum þoka. Prjónið þar til stykkið mælist 47-47-46-45-44-43 cm frá öxl. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til eftir eru 1-0-2-1-3-2 lykkjur og prjónið þær slétt = 32-32-34-34-36-36 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á prjón 6 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana, byrjið neðst niðri á stroffi og saumið fram að prjónamerki sem var sett 1½-3-3½-4-5-5 cm frá öxl. Frá prjónamerki er saumuð hvor hlið á ermi niður að hvorri hlið á fram-/bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Saumið síðan hlið á framstykki við hlið á bakstykki frá undir ermi og niður að stroffi. Endurtakið í hinni hliðinni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberrymelodysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.