Helena Persson skrifaði:
Teckenförklaringen på tredje raden är felaktig jämfört med norska. Ska vara omslag och hål nästa varv.
06.06.2019 - 14:33DROPS Design svaraði:
Hei Helena. Takk for beskjed, symbolforklaringen er nå oppdatert. God fornøyelse
06.06.2019 - 14:52
Caroline Lambrichs skrifaði:
Ik heb onderstaand antwoord gekregen. Op de site vind ik alleen de patronen A1 tot en met A5. Indien mogelijk graag de link tot het volledige telpatroon. Groetjes, Caroline DROPS Design 22.02.2019 kl. 14:10: Dag Caroline, Deze staat helemaal onderaan bij de telpatronen.
22.02.2019 - 21:26
Caroline Lambrichs skrifaði:
Ik mis bij dit patroon de teltekening van A6 tot en met A 8. Waar vind ik deze? Met vriendelijke breigroetjes, Caroline
21.02.2019 - 16:10DROPS Design svaraði:
Dag Caroline,
Deze staat helemaal onderaan bij de telpatronen.
22.02.2019 - 14:10
Květa L. skrifaði:
Nadýchaná krása, hned bych ho brala, nebo si ho uháčkovala👍👏
14.01.2019 - 19:54
Jana Coufalová skrifaði:
Super šátek !!! Šátky miluju :)
13.01.2019 - 22:53
Midnight Mingle#midnightminglewrap |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað með gatamynstri og garðaprjóni.
DROPS 201-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. SJAL: Fitjið upp 9 lykkjur með Sky á hringprjón 5. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 13 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkjuna. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið 2. og 3. umferð 14 sinnum til viðbótar = 73 lykkjur í umferð, passið uppá að síðasta umferð sé umferð prjónuð frá röngu. (Stykkið mælist ca 11 cm mælt meðfram miðjulykkju). Prjónið nú mynstur frá réttu: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu lykkju, A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir næstu 2 lykkjur, 1 lykkja garðaprjón (= miðjulykkjan), A.4 yfir næstu lykkju, A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, A.5 yfir næstu 2 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 – A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 127 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.6 yfir næstu 4 lykkjur, prjónið A.7 þar til 5 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING, prjónið A.8 yfir næstu 5 lykkjur, prjónið 1 lykkju garðaprjón (= miðjulykkja), A.6 yfir næstu 4 lykkjur, prjónið A.7 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju, prjónið A.8 yfir næstu 5 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón = 133 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.6 til A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 157 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 29 cm meðfram miðjulykkju. Prjónið A.1 – A.5 alveg eins og áður í stykkinu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og 1 lykkja garðaprjón mitt í sjali. Þegar allt A.1 – A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 211 lykkjur í umferð. Prjónið A.4, A.5 og A.6 alveg eins og áður í stykkinu – munið eftir að auka út um 1 lykkju í fyrstu umferð í A.7 (bæði á undan og á eftir miðjulykkju = alls 2 lykkjur fleiri í umferð) svo að það sé pláss fyrir 16 mynstureiningar A.7 hvoru megin við miðjulykkjuna = 213 lykkjur. Þegar A.6 – A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 241 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 46 cm meðfram miðjulykkju. Prjónið A.1 – A.5 alveg eins og áður í stykkinu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og 1 lykkja garðaprjón mitt í sjali. Þegar allt A.1 – A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 295 lykkjur í umferð. Prjónið A.6 – A.8 alveg eins og áður í stykkinu – munið eftir að auka út um 1 lykkju í fyrstu umferð í A.7 (bæði á undan og á eftir miðjulykkju = alls 2 lykkjur fleiri í umferð) svo að það sé pláss fyrir 23 mynstureiningar A.7 hvoru megin við miðjulykkjuna = 297 lykkjur. Þegar A.6 – A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 325 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 63 cm meðfram miðjulykkju. Prjónið A.1 – A.5 alveg eins og áður í stykkinu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og 1 lykkja garðaprjón mitt í sjali. Þegar allt A.1 – A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 379 lykkjur í umferð. Prjónið A.6 – A.8 alveg eins og áður í stykkinu – munið eftir að auka út um 1 lykkju í fyrstu umferð í A.7 (bæði á undan og á eftir miðju lykkju = alls 2 lykkjur fleiri í umferð) svo að það sé pláss fyrir 30 mynstureiningar A.7 hvoru megin við miðjulykkjuna = 381 lykkjur. Þegar A.6 – A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 409 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 80 cm meðfram miðjulykkju. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. Endurtakið 1. og 2. umferð 1 sinni til viðbótar (alls 2 sinnum). Fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Sjalið mælist ca 83 cm meðfram miðjulykkju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightminglewrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.