Mrs Alice Campbell skrifaði:
I am 88 still knitting and crochet and cross stitch LOVE your site Iwaslooking at video for gents scarf as I am deaf person had 14 hour brain tumour operation But nothing coming up for me to read am I doing something wrong Thank You. From BONNIE. SCOTLAND. Alicex
06.02.2019 - 23:23DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Campbell, thank you and congratulations! You will find all our scarf patterns for men here. You can also remove the filter "men", some patterns for woman can also be worn by a man. Happy knitting!
07.02.2019 - 10:02
Nicole skrifaði:
Could you tell me how much yarns is needed for doing these completely in same colour. Thank uou
05.02.2019 - 18:18DROPS Design svaraði:
Hi Nicole, it depends on your size. I would say 200-250 g. Happy knitting!
28.02.2019 - 17:58
Calentito#calentitoslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar og þæfðar tátiljur úr DROPS Snow. Prjónað fram og til baka með röndum. Stærð 35-44.
DROPS 198-16 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Þegar rendur eru prjónaðar er mikilvægt að endarnir sem verða hangandi eftir litaskipti verði ca 7 cm langir. Þeir eru notaðir þegar sauma á tátiljuna saman. Prjónið * 2 umferðir í litnum karrí, 2 umferðir í litnum natur, 2 umferðir í litnum dökk bleikur, 2 umferðir í litnum ljós vínrauður, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljan er prjónuð í eitt stykki með saum fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan, byrjað er efst, mitt á rist – sjá TEIKNING með máli að neðan! TÁTILJA: Fitjið upp 3-3-5-5 lykkjur á prjón 8 með litnum ljós vínrauður DROPS Snow. Prjónið sléttprjón fram og til baka svona á meðan aukið er út fyrir tá og hæl þannig: Prjónið sléttar lykkjur og fitjið upp 4 lykkjur í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu = 7-7-9-9 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur og fitjið upp 4 lykkjur í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fitjið upp 14-18-18-22 lykkjur í lok umferðar frá röngu = 25-29-31-35 lykkjur. Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna, prjónið sléttar lykkjur út umferðina og fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu = 28-32-34-38 lykkjur. Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur út umferðina og fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu = 31-35-37-41 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur og fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Eftir allar útaukningar eru 33-37-39-43 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Héðan er prjónað áfram í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er prjónað áfram með litnum dökk bleikur. Þegar stykkið mælist 14-15-15-17 cm eru prjónaðar stuttar umferðir frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 21-25-25-29 lykkjurnar, snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Þegar stykkið mælist 18-20-20-22 cm er sett eitt merki = fyrir miðju undir fæti. Prjónið þar til stykkið mælist 22-25-25-27 cm og endurtakið stuttar umferðir hér. Þegar prjónað hefur verið jafn langt á eftir merki og eins og á undan merki þá er haldið áfram með rendur eins í hinni hliðinni á fæti, en í öfugri röð þannig að rendurnar verði eins í hvorri hlið á sólanum. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er prjónað áfram með litnum ljós vínrauður JAFNFRAMT eru lykkjum fækkað frá röngu þannig: Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu = 31-35-37-41 lykkjur. Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu, prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær brugðið saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu = 28-32-34-38 lykkjur. Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu, prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær brugðið saman = 25-29-31-35 lykkjur. Snúið og fellið af fyrstu 14-18-18-22 lykkjur frá réttu og prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina = 11-11-13-13 lykkjur. Fækkið um 4 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 7-7-9-9 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fækkið um 4 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu = 3-3-5-5 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá röngu. FRÁGANGUR: Auðveldast er að sauma tátiljuna saman frá röngu. Teikning sýnir brotið mitt að neðan og hliðar sem sauma á saman að framan og að aftan (= A á að sauma við B). Brjótið uppá tátiljuna mitt undir fótinn (við merki). Byrjið með að hnýta þræði sem hanga eftir frá röndum á annarri hlið saman við þræði sem hanga eftir frá hinni hliðinni. Passið uppá að rendurnar passi fallega saman (athugið jafnóðum frá réttu), en saumið einnig nokkur spor áður en endarnir eru festir tryggilega. Notið litinn ljós vínrauður til að sauma tátiljuna saman þar sem ekki eru rendur (= efst og neðst framan á fæti). Saumið mitt aftan og reynið að sauma þannig að saumurinn verði flatur og sjáist eins lítið og mögulegt er frá réttu. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #calentitoslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.