Helen Skauge skrifaði:
Jeg lurer pa hvilken str jeg skal strikke, men jeg kan ikke finne malene pa de ulike str. Hvor finner jeg det?
13.10.2026 - 22:25DROPS Design svaraði:
Hej Helen, du finder måleskitsen nederst i opskriften, nedenunder diagrammerne :)
14.10.2026 - 12:16
Tine skrifaði:
Hei, går det an å gjøre oppskriften om til en jakke/ cardigan? Hvor mye anbefales da å legge opp ( masketall) for forstykkene ? Trekker jeg fra masketall til vrangborden til knappene ( f.eks. 5 masker bredde ) ?
22.08.2026 - 12:46DROPS Design svaraði:
Hei Tine, Ja det er mulig, men da må du plusse på 5 masker til den ene stolpen som skal legges opp på den andre. Hilsen Drops Team.
25.08.2026 - 06:46
Jessie skrifaði:
Når jeg skal til at montere blusen og der står at jeg skal tage 74 masker op til halskanten, er det inkl. eller ekskl. de masker der stadig er på tråd til hals fra forstykket?
29.07.2026 - 18:55DROPS Design svaraði:
Hei Jessie, Det inkluderer maskene på tråden. Hilsen Drops Team.
30.07.2026 - 07:01
Isabelle skrifaði:
Bonjour J’ai laissé de côté un petit moment mon tricot et je suis arrivée au diminutions des emmanchures j’ai fais mon dos je suis au devant je sais qu’il faut que je diminue 4 mailles de ch côté pour commencer mais je me souviens plus si je dois rabattre au début du rang 4x1 m ou 2x2 m ens pour effectuer ses diminutions Merci
02.07.2026 - 16:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, pour les emmanchures vous allez rabattre (en L): 4 m au début des 2 rangs suivants ( = 1 x 4 m de chaque côté), puis 2 m au début des 2 rangs suivants (= 1 x 2 m de chaque côté) et enfin 3 x 1 m au début des 6 rangs suivants (= 3 x 1 m de chaque côté). Bon tricot!
03.07.2026 - 07:22
Mette skrifaði:
Hej, Kan man strikke på rundpind op til ærmegab og så skille arbejdet der? Og samme med ærmer?
30.06.2026 - 09:42DROPS Design svaraði:
Hei Mette. Design avd. har dessverre ikke muligheten til å tilpasse eller gå igjennom oppskriften slik at man kan strikke den rundt (er litt som må justeres), men lese godt igjennom oppskriften og se om maskeantallet og mønstret vil stemme i den str. du ønsker å strikke. mvh DROPS Design
30.06.2026 - 10:59
Alice skrifaði:
Hej. Det verkar vara en enorm storleksskillnad på L och XL. Hur löser man det?
23.06.2026 - 13:05DROPS Design svaraði:
Hei Alice. Hva mener du med "Hur löser man det"? Enten strikker man str. L og da får man de målene som er oppgitt til str. L eller så strikker man str. XL og får de målene som er oppgitt til str. XL. Det er ingen mellomting. Mønstret må gå opp og da trenger man det maskeantallet som er oppgitt i de forskjellige str. mvh DROPS Design
29.06.2026 - 13:19
Isabelle skrifaði:
Merci pour votre réponse Du coup j’ai monté 82 m c’est ce que j’avais compris d’après les explications donc il faut que je démonte toutes mes côtes et que je monte 140 m avec les mêmes diminutions que le dos En fait jusqu’au emmanchures c’est identique Merci
03.06.2026 - 09:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, tout à fait, vous tricotez le devant exactement comme le dos, la seule différence est que l'encolure va être différente: commencée avant pour qu'elle soit plus profonde. Bon tricot!
04.06.2026 - 08:50
Marilena skrifaði:
Vielen Dank für die tolle Anleitung🙏hat alles super geklappt👍 Liebe Grüsse Marilena
02.06.2026 - 21:24
Isabelle skrifaði:
Bonsoir J’ai monté mes 82 m pour mon devant comme il est indiqué de tricoter comme pour le dos jusqu’à 44 cm Du coup il n’y a pas les diminutions au premier rang après les côtes comme le dos Je monte tout droit avec le diagramme jusqu’à 44 cm ? Sans rien faire
02.06.2026 - 21:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, vous tricotez exactement comme pour le dos: vous montez les mailles comme pour le dos, vous tricotez les côtes comme pour le dos, vous diminuez après les côtes comme pour le dos, vous tricotez ensuite le point fantaisie comme pour le dos et vous formez les emmanchures comme pour le dos autrement dit, vous faites tout comme pour le dos jusqu'à ce qu'il reste les 82 m après les emmanchures et vous tricotez jusqu'à 44 cm de hauteur totale pour former l'encolure devant. Bon tricot!
03.06.2026 - 08:46
Isabelle skrifaði:
Super ouf mon dis est terminé merci pour votre réponse j’ai bien effectué l’épaule avec vos indications et c’était ok J’ai commencé mon devant donc votre aide me sera encore précieuse pour progresser Merci
02.06.2026 - 21:12
Footprints in the Sand#footprintsinthesandsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með öldumynstri úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-3 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) mínus kanta að framan (= 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 3,38. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 124-132-140-156-172-180 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 3 cm með stroffi – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 36-38-40-44-50-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA (jafnt yfir) = 88-94-100-112-122-130 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur – veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð þannig: 1 kantlykkja með garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 5-8-11-13-18-22 lykkjurnar, A.1 yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, A.2 yfir næstu 57-57-57-63-63-63 lykkjur (= 3 mynstureiningar á breidd), A.3 yfir næstu 10-10-10-11-11-11 lykkjur, 5-8-11-13-18-22 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 5-8-11-13-18-22 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 76-76-76-84-84-84 lykkjur (= 4 mynstureiningar á breidd), 5-8-11-13-18-22 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er haldið áfram með mynstur þannig, þ.e.a.s. prjónað er í annað hvert skipti með A.1, A.2 og A.3 eins og útskýrt er í byrjun á stykki og í annað hvert skipti eru prjónaðar 4 mynstureiningar A.2 á breidd, þannig að öldumynstrið færist til í hvert skipti sem prjónuð er ein mynstureining á hæðina. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá þar sem stroff í byrjun á stykki beygist niður á við) fellið af fyrir ermum í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-3-3-4 sinnum (= 5-8-9-11-15-18 lykkjur felldar af í hvorri hlið) = 78-78-82-90-92-94 lykkjur. Þegar handvegurinn mælist ca 13-14-15-16-17-18 cm frá þar sem affelling fyrir handveg byrjar (nú eru eftir ca 3 cm til loka) fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur af í umferð frá réttu, jafnframt eru 2 fyrstu og 2 síðustu lykkjur af þessum 26-26-28-28-30-30 lykkjum prjónaðar slétt saman áður en þær eru felldar af (= 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli) = 26-26-27-31-31-32 lykkjur fyrir öxl í hvorri hlið. Haldið áfram með eins margar mynstureiningar af mynstri og pláss er fyrir á breiddina og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 25-25-26-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Þegar handvegur mælist 16-17-18-19-20-21 cm prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 2-2-3-3-3-2 lykkjur jafnt yfir = 23-23-23-27-27-29 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið mynstur og fellið af fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 78-78-82-90-92-94 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm frá uppfitjunarkanti er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 31-31-33-37-37-38 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16-16-16-16-18-18 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (= 14-14-14-14-16-16 lykkjur) og setjið þessar 14-14-14-14-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, prjónið mynstur eins og áður yfir þær 31-31-33-37-37-38 lykkjur sem eftir eru. Prjónið síðan hvora öxl fyrir sig. Haldið áfram með eins margar mynstureiningar af mynstri og pláss er fyrir á breiddina og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum = 25-25-26-30-30-31 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar sem fækkað er um 2-2-3-3-3-2 lykkjur jafnt yfir = 23-23-23-27-27-29 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. Fitjið upp 54-54-58-62-66-66 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona þar til prjónaðir hafa verið 3 cm með stroffi – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar sem fækkað er um 12-10-12-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón til baka frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. Prjónið mynstur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1-2-3-2-3-3 lykkjur sléttprjón, A.1 – yfir næstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur, A.2 yfir næstu 19-19-19-21-21-21 lykkjur, A.3 yfir næstu 10-10-10-11-11-11 lykkjur, 1-2-3-2-3-3 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 mynstureiningar á breidd af A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir 38-38-38-42-42-42 lykkjur í mynstri. Þegar 2 mynstureiningar með A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur A.1, A.2 og A.3 eins og áður yfir 38-38-38-42-42-42 lykkjur með mynstri. Haldið áfram með mynstur svona, þ.e.a.s. prjónið í annað hvert skipti á hæðina með A.1, A.2 og A.3 og í annað hvert skipti með A.2 (2 mynstureiningar á breidd). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-8-7-7-6-6 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING (á við um ermar). Aukið út í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Aukið út í 8. hverjum cm alls 5 sinnum. Stærð M: Aukið út til skiptis í 5. og 6. hverjum cm alls 7 sinnum. Stærð L: Aukið út til skiptis í 5. og 6. hverjum cm alls 7 sinnum. Stærð XL: Aukið út til skiptis í 4. og 5. hverjum cm alls 8 sinnum. Stærð XXL: Aukið út í 4. hverjum cm alls 9 sinnum. Stærð XXXL: Aukið út í 3. hverjum cm alls 11 sinnum. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru = 52-58-60-64-68-72 lykkjur í umferð. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 45-45-44-42-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) heldur mynstrið áfram eins og áður og lykkjur eru felldar af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 0-2-2-2-2-4 sinnum, 2 lykkjur 2-2-4-5-6-5 sinnum og 4 lykkjur 2-2-1-1-1-1 sinnum = 12-14-16-16-16-20 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 52-53-53-52-52-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið saum undir ermum og hliðarsaum í eitt. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt ofan á öxl og prjónið upp 74-74-82-82-88-88 lykkjur með Brushed Alpaca Silk og hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #footprintsinthesandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.