DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mountain Holiday

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri, kúlum, köðlum og perluprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-28
DROPS Design: Mynstur ai-202
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-500-550-600 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 102-120-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið stroff svona í 6 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 45-45-45-45-51-51 lykkjur) og stroff eins og áður yfir þær 57-75-75-87-93-105 lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 104-122-124-136-148-160 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið A.3 (= 47-47-49-49-55-55 lykkjur), prjónið 57-75-75-87-93-105 lykkjur sléttprjón – fækkið um 4-8-4-8-6-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 100-114-120-128-142-156 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 50-54-56-58-64-68 lykkjur, setjið 1 prjónamerki eftir næstu 47-53-57-61-69-75 lykkjur, nú eru 3-7-7-9-9-13 lykkjur fram að byrjun á umferð. Prjónamerkin merkja hliðar, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan eftir A.3 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (stillið af þannig að næsta umferð sem er prjónuð sé umferð með gati í A.3) skiptist stykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 53-61-63-67-73-81 lykkjur. Byrjið í hlið frá réttu og prjónið fram og til baka með A.3 og sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 41-45-47-49-53-57 lykkjur eins og áður og setjið síðustu 29-29-31-31-33-33 lykkjur eru prjónaðar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið þær 12-16-16-18-20-24 lykkjur eins og áður.
Prjónið 1 umferð frá réttu yfir fyrstu 12-16-16-18-20-24 lykkjur eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá og setjið lykkjur á þráð.
Prjónið 1 umferð frá réttu yfir síðustu 12-16-16-18-20-24 lykkjur í umferð eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu.
Klippið frá. Setjið til baka allar lykkjur á sama prjón = 53-61-63-67-73-81 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3-7-7-9-9-13 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-1-1-0-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.4 (= 47-47-49-49-55-55 lykkjur), endið með 3-7-7-9-9-13 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-1-1-0-0-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Prjónið þar til A.4 er lokið á hæðina = 51-57-57-63-69-75 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig – frá réttu: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með A.1 (= 3 lykkjur). Prjónið stroff svona í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (fellið e.t.v. af með grófari prjónum). Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

BAKSTYKKI:
= 47-53-57-61-69-75 lykkjur. Byrjið í hlið og prjónið fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 38-41-44-46-51-54 lykkjur eins og áður og setjið síðustu 29-29-31-31-33-33 lykkjur sem prjónaðar voru á þráð fyrir hálsmáli, prjónið þær 9-12-13-15-18-21 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir fyrstu 9-12-13-15-18-21 lykkjur eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá. Setjið lykkjur á þráð.
Prjónið 1 umferð frá réttu yfir síðustu 9-12-13-15-18-21 lykkjur í umferð eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið frá.
Setjið allar lykkjur á hringprjón 8 = 47-53-57-61-69-75 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-4-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 51-57-57-63-69-75 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig – frá réttu: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með A.1 (= 3 lykkjur). Prjónið stroff svona í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (fellið e.t.v. af með grófari prjónum). Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.

ERMI:
Fitjið upp 24-24-24-30-30-30 lykkjur á sokkaprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið * 3 lykkjur slétt, A.1 (= 3 lykkjur) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið stroff svona í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 24-26-26-30-30-30 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 8. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6½-6½-5½-6-5-4 cm millibili alls 7-7-8-7-8-9 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-50-50-48-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (fellið e.t.v. af með grófari prjónum).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, skiljið eftir 26-27-28-29-30-31 cm fyrir hálsmáli. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.04.2019
Leiðrétting - FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-120-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * A.1 (= 3 lykkjur), 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið stroff svona í 6 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 45-45-45-45-51-51 lykkjur) og stroff eins og áður yfir þær 57-75-75-87-93-105 lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 104-122-124-136-148-160 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið A.3 (= 47-47-49-49-55-55 lykkjur), prjónið 57-75-75-87-93-105 lykkjur sléttprjón – fækkið um 4-8-4-8-6-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 100-114-120-128-142-156 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt þannig að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt fram og til baka í sömu lykkju þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir þessar 4 lykkjur, prjónið síðan 4 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja)
symbols = Þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram að fyrstu umferð í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Véronique Kuyle wrote:

RE Bonjour , Désolée , je n'avais pas bien lu !!!!! Je vais faire les manches avec des aiguilles circulaires ! Merci pour vos si jolis modèles et vos tutos qui me sont d'une grande utilité ! Cordialement .

26.06.2022 - 09:11

country flag Véronique Kuyle wrote:

Bonjour , Je me demande à quoi servent les aiguilles DOUBLES POINTES ??? Pour les rangs en aller/retour , je pensais utiliser des aiguilles droites normales ! En vous remerciant par avance , cordialement , Véronique .

25.06.2022 - 19:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kuyle, les manches se tricotent ici en rond, sur les aiguilles doubles pointes, vous pouvez utiliser une aiguille circulaire ou la technique du magic loop si vous préférez. Bon tricot!

27.06.2022 - 08:27

country flag Lorena wrote:

En el frente, falta un dato, si tengo 53 puntos (talla S) debería decir "tejer 12 puntos como antes, colocar los siguientes 29 puntos tejidos en un hilo para el escote, y tejer los 12 puntos restantes como antes. ¿o no? además me queda una duda, cuando dice "Cortar el hilo y colocar los puntos en 1 hilo" quiere decir que a partir de ahí tejo con 1 hebra? o debo traspasar los puntos a un hilo como el video en cuyo caso queda una parte mas corta y los laterales mas largos ..

11.08.2021 - 20:55

DROPS Design answered:

Hola Lorena, en la talla S, trabajas 41 puntos, y de estos 41, los 29 últimos los dejas en un gancho auxiliar para el escote. Después trabajas los 12 que te quedaban del frente. Por otro lado, colocar los puntos en 1 hilo es lo mismo que pasarlos a una aguja auxiliar, se sigue tejiendo con 2 hebras.

16.08.2021 - 20:26

country flag Annita Van Den Bosschee wrote:

Ik zou graag een patroon met beschrijving hebben voor maat 48

15.05.2020 - 12:06

DROPS Design answered:

Dag Annita,

Onze patronen zijn aangegeven in de volgende maten: S - M - L - XL - XXL - XXXL. De maat XL zou dan ongeveer overeen moeten komen met maat 48. Maar je kunt het beste even een bestaande trui erbij pakken die lekker zit en deze vergelijken met de maten die onderaan in de schematekening staan.

20.05.2020 - 09:25

country flag Elisabeth wrote:

Grüß Gott. Rumpfteil: Ich verstehe nicht warum man in Rippen strickt. Es sind 3 rechte Maschen angegeben die man dann 6 cm in Rippen stricken sollte. Für mich ist eine Rippe immer abwechselnd rechte und linke Masche. Danke im Voraus!

06.02.2020 - 22:33

DROPS Design answered:

Liebe Elisabeth, bei diesem Modell wird man das Bündchen mit 3 Maschen im Perlmuster anstatt 3 Maschen recht, dh hier stricken Sie (3 Maschen im Perlmuster (= A.1), 3 Maschen rechts). Viel Spaß beim stricken!

07.02.2020 - 07:55

country flag Eli wrote:

Grüsse! Ich verstehen nicht das Rippenmuster was in der Anleitung erwähnt wird für den Rumpfteil. Neben dem Perlmuster - Sind das jetzt nur rechte Maschen oder rechts links abwechselnd (also Rippe)?

06.02.2020 - 21:37

DROPS Design answered:

Liebe Eli, das Rippenmuster besteht aus 3 Maschen im Perlmuster (= A.1) und 3 Maschen glatt rechts (wie beim normalen Bündchen). Rumpfteil wird in Runden gestrickt, so stricken Sie immer (A.1, 3 Maschen rechts). Diagram lesen Sie von der unteren rechten Kante nach links bei jeder Runde. Viel Spaß beim stricken!

07.02.2020 - 07:53

country flag Maria wrote:

Hola, el diagrama muestra las vueltas como se ven por lado derecho o son las vueltas de derecho? Gracias

21.01.2020 - 18:49

DROPS Design answered:

Hola Maria. Todos los diagramas de Drops muestran todas las filas del patrón vistas por el lado derecho.

29.02.2020 - 23:04

country flag åse wrote:

Jeg forstår ingen ting av de svarte firkantene i m3.Det går da ikke an å bare strikke i mønsterfeltet framme? Jeg strikker jo på rundpinne. Er det ikke glatt strikk jeg skal strikke der hvor det er svarte firkanter? Kunne det ikke like godt stått det? Ser at en også har spurt om dette, men jeg forstår ikke deres forklaringer. Kan du forklare dette på en annen måte?

28.11.2019 - 17:38

DROPS Design answered:

Hei Åse! De midterste maskene i diagram A.3 strikkes over 12 omganger, mens de resterende maskene strikkes over 10 omganger. Når 10 omganger er strikket skal resten maskene i A.3 som ikke strikkes over 12 omganger strikkes fra første omgang i A.3 igjen. Mens de midterste maskene fortsetter å strikkes på 11. og 12 omgang i mønsteret. Når alle omgangene er strikket vil de midterste maskene starte på omgang 1, når de andre maskene vil da starte på omgang 3 i diagram A.3. Lykke til!

29.11.2019 - 10:44

country flag åse wrote:

Når det står at oppskriften er rettet, må jeg da se på rettelsen eller kan jeg bare følge oppskriften? Jeg sjekker og sammenligner, men.....

26.11.2019 - 21:07

DROPS Design answered:

Hei Åse! Selve oppskriften er rettet og oppdatert, men det er mulig å se selve rettelsen ved å klikke på "klikk her for å se selve rettelsen". Lykke til!

27.11.2019 - 09:26

country flag Charlotte Pagh Andersen wrote:

Lækker trøje! Mønster A 3 - da forstår jeg ikke, hvordan jeg skal gøre ift de to rækker med både mønster og de sorte firkanter, hvor der som forklaring står: 'denne rude er ingen maske, gå direkte videre til første række i diagrammet'. Hvordan kan jeg strikke noget af rækken og gå videre til første række på andre masker?

22.10.2019 - 16:35

DROPS Design answered:

Hej Charlotte, jo det midterste stykke i diagrammet går over 12 pinde i højden, men maskerne på hver side går kun over 10 pinde i højden, du starter altså forfra i diagrammet for hver 10.pind og de midterste for hver 12 pind. God fornøjelse!

23.10.2019 - 13:59