Jocelyne Gascou skrifaði:
Super chaussons de NOEL / Santa Clauss et Rennes
06.10.2021 - 00:20
Cathrine skrifaði:
Jeg forstår ikke ører 2.omgang. Skal jeg hækle i de to masker som også er hæklet til øret?
23.09.2020 - 20:35
Birgitte skrifaði:
Hvad betyder 7-7-8 og 14-14-16 i første omgang og anden omgang af tå med ører?
27.10.2019 - 21:52DROPS Design svaraði:
Hej Birgitte, Du vælger det af disse 3 tal, som modsvarer den størrelse du strikker i :)
28.10.2019 - 12:46
Marjo skrifaði:
Yksinkertainen, mutta aivan ihana lahjaidea
06.12.2018 - 05:38Sue skrifaði:
Is it possible to download these patterns? Easier than keep looking on screen!
03.12.2018 - 14:10DROPS Design svaraði:
Dear Sue, our patterns can only be printed, but using a virtual printer can let you save them as a .PDF file. Happy crocheting!
03.12.2018 - 16:08
Apikin skrifaði:
Excellente idée !
03.12.2018 - 12:42
The Rudolphs#therudolphsslippers |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar tátiljur í DROPS Snow. Tátiljur með hreindýrs höfði og dúskum. Stærð 35 – 43. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1429 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Heklið 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá tá og upp, með eyrum. Síðan er heklað fram og til baka fram yfir hæl. Kantur er heklaður með hornum í kringum opið. Augu og nef er gert sér og er fest á tátiljuna sem skraut í lokin. TÁ, MEÐ EYRUM: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 6 með litnum ljós beige, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Byrjun á umferð = mitt undir fæti. UMFERÐ 1: Heklið 7-7-8 fastalykkjur um hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 14-14-16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 21-21-24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju jafnframt því sem aukið er út um 3-3-4 fastalykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 24-24-28 fastalykkjur. Skiptið yfir í móbrúnn – sjá LITASKIPTI og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkjur þar til heklaðar hafa verið 7-8-10 umferðir með litnum móbrúnn (= alls 11-12-14 umferðir). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Klippið ekki frá, heldur heklið eyru í hring þannig: EYRU: UMFERÐ 1 (umferð með eyrum): Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 9-9-11 fastalykkjum. Heklið * 6 loftlykkjur, snúið og heklið til baka í þessar loftlykkjur þannig: 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju frá heklunál, 1 stuðull í næstu loftlykkju, 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í næstu loftlykkju, 1 hálfur stuðull í síðustu loftlykkju * (= eyra). Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6-6-6 fastalykkjum (= mitt á fæti), heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= eyra) og heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 9-9-11 fastalykkjum. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, passið uppá að eyrun liggi á framhlið á meðan það er heklað. Nú mælist stykkið ca 11-12-13 cm. Klippið frá og festið þráðinn. HÆLL: Nú skiptist stykkið og heklað er fram og til baka með litnum móbrúnn. Byrjið á að hekla í 16.-16.-18. fastalykkju frá byrjun á umferð (þ.e.a.s. byrjun á umferð flyst nú í hlið á fæti). Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 18-18-22 fastalykkjum (= 6 fastalykkjur mitt á fæti er ekki heklað yfir). Heklið fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist alls 22-24-27 cm. Brjótið tátiljuna og leggið hana flata, heklið saman við miðju að aftan með einni umferð fastalykkjum í gegnum bæði lögin frá röngu. Klippið frá og festið þráðinn. KANTUR MEÐ HORNUM: Heklaður er kantur í kringum op á tátilju með litnum dökk brúnn, jafnframt er heklað horn í 2. umferð. UMFERÐ 1: Byrjið við miðju aftan á hæl og heklið næstu umferð þannig: Heklið 10-11-14 fastalykkjur jafnt yfir í umferð á fyrri hliðinni, 1 fastalykkja í hverja og eina af 6 fastalykkjum fyrir miðju að framan, heklið 10-11-14 fastalykkjur jafnt yfir í umferð á seinni hlið = 26-28-34 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 2 (umferð með horni): Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 10-11-14 fastalykkjum. Heklið * 4 loftlykkjur, snúið og heklið til baka í þessar loftlykkjur þannig: 1 fastalykkja og 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju, heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja og 1 hálfur stuðull í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 keðjulykkja í næstu loftlykkju og heklið 1 keðjulykkju í síðustu loftlykkju frá fyrstu 4 loftlykkjum * ( horn). Heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6-6-6 fastalykkjum (mitt á fæti), heklið frá *-* 1 sinni (= horn) og heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 10-11-14 fastalykkjum. Klippið frá og festið enda. AUGU: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 6 með litnum dökk brúnn (látið endann vera ca 10 cm langan, það á að nota hann síðar fyrir frágang), 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, skiptið yfir í litinn natur og heklið 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í loftlykkju sem er í botni á stuðli, heklið 4 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð með litnum natur. Klippið frá (látið endann vera ca 10 cm langan, það á að nota hann síðar fyrir frágang). Festið endana sem ekki á að nota fyrir frágang: Heklið annað auga á sama hátt. Saumið augun framan á tátilju – staðsetjið þau þannig að það verða 2 umferðir með litnum móbrúnn yfir augun og ca 1 cm bil á milli augna. NEF: Gerið einn dúsk með litnum rauður ca 5 cm að þvermáli og festið dúskinn fyrir miðju framan á tátilju – staðsetjið dúskinn mitt á milli umferðar með litnum ljós beige og litnum móbrúnn. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #therudolphsslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1429
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.