Elisabeth skrifaði:
Hej. Hur mycket ökar jag när jag gör i herrstorlek. Tacksam för svar.
06.12.2018 - 12:38
Marga Brinks skrifaði:
Zou graag een matentabel willen ontvangen om wanten te breien. Heb de sokkentabel ook van u en gebruik deze al jaren
20.09.2018 - 20:30
Christina skrifaði:
Dejligt at der også er taget hensyn til os venstrehåndede.
22.08.2018 - 11:14
Mamiclo skrifaði:
J'adore l'idée, je sent que ça va faire des cadeaux pour Noël
21.08.2018 - 17:23
Carina skrifaði:
Om man gör båda vantarna likadana, då kan man tamme17 sticka om vintern.
18.07.2018 - 13:20
Carmen skrifaði:
Braucht man dazu wirklich ne Anleitung ?? Einfach abketten und neu aufnehmen...
04.07.2018 - 09:47Radwa skrifaði:
Nice solution :)
23.06.2018 - 14:19
Aurore skrifaði:
Super idée
17.06.2018 - 17:42
Marleen skrifaði:
Love this idea! I am left handed. Could the pattern be written such a way that I could make this for me too?
09.06.2018 - 15:53
Keep in Touch#keepintouchmittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Nepal. Snjallsíma vettlingar með op fyrir þumal og vísifingur.
DROPS 192-52 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um efst á vettling): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Þessir vettlingar eru flottir fyrir snjallsímanotkun og eru prjónaðir með einföldu opi fyrir þumal og vísifingur. Ef ekki er óskað eftir opi fyrir þumla og vísifingur er bara að halda áfram að prjóna hringinn án affellingar. Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi og upp. HÆGRI VETTLINGUR MEÐ OPI Á ÞUMLI OG VÍSIFINGRI: Fitjið upp 39-42 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir op fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING = 2 lykkjur fleiri. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum = 46-50 lykkjur. Í næstu umferð eru settar 11 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í fyrstu umferð = 36-40 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist 15-16 cm er gert op á vísifingri þannig (ef ekki er óskað eftir opi á vísifingri á hægri vettling er prjónað sléttprjón hringinn eins og áður yfir allar lykkjur): Prjónið 2 lykkjur slétt, fellið af 4 lykkjur fyrir op og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 4 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 36-40 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til vettlingurinn mælist ca 21-22 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 3 cm til loka, prjónið að óskaðri leng). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 18-20 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2 sinnum = 16-20 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-10 lykkjur eftir á prjóni. Endurtakið síðustu umferð einu sinni til viðbótar = 4-5 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-25 cm ofan frá og niður. ÞUMALL HÆGRI VETTLINGUR: Byrjið að innan verðu á þumli beint eftir 11 lykkjur á þræði, prjónið upp 4-5 lykkjur meðfram opi á þumli og prjónið síðan sléttar lykkjur yfir 11 lykkjur af þræði = 15-16 lykkjur. Deilið lykkjunum á sokkaprjón 4. Í næstu umferð er gert op á þumli þannig (ef ekki er óskað eftir að hafa op á hægri þumli er prjónað sléttprjón hringinn eins og áður): Prjónið 10-11 lykkjur slétt, fellið af 4 lykkjur fyrir opið og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð eru fitaðar upp 4 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 15-16 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til þumallinn mælist ca 5-5½ cm (mátið vettlinginn, nú eru eftir ca ½ cm til loka, prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR MEÐ OPI Á ÞUMLI OG VÍSIFINGRI: Fitjið upp 39-42 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-2 lykkjur jafnt yfir = 36-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð fyrir op fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING = 2 lykkjur fleiri. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum = 46-50 lykkjur. Í næstu umferð eru settar 11 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í fyrstu umferð = 36-40 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist 15-16 cm er gert op á vísifingri þannig (ef ekki er óskað eftir opi á vísifingri á hægri vettling er prjónað sléttprjón hringinn eins og áður yfir allar lykkjur): Prjónið 30-34 lykkjur slétt, fellið af 4 lykkjur fyrir opið og prjónið 2 lykkjur slétt sem eftir eru. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 4 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 36-40 lykkjur á prjóni. Afgangur af vettling er prjónaður á sama hátt og hægri vettlingur. ÞUMALL VINSTRI VETTLINGUR: Byrjið að innan verðu á þumli beint á undan 11 lykkjur á þræði, prjónið 11 lykkjur af þræði, prjónið 11 lykkjur af þræði slétt og prjónið upp 4-5 lykkjur meðfram opi fyrir þumal = 15-16 lykkjur. Skiptið þessum lykkjum á sokkaprjón 4. Í næstu umferð er gert op fyrir þumal þannig (ef ekki er óskað eftir að hafa op á hægri þumli er prjónað sléttprjón hringinn eins og áður): Prjónið 1 lykkju slétt, fellið af 4 lykkjur að opi og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 4 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 15-16 lykkjur. Afgangur af þumli er prjónaður á sama hátt og hægri þumall. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #keepintouchmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.