Ice Skating Set |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað hálsskjól, vettlingar og húfa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með köðlum og kúlum.
DROPS 192-46 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.7. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.8 og A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja) takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 210-240 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið stroff (= 4-5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) í 4 cm. Prjónið síðan þannig: Prjónið * A.1 (= 14-16 lykkjur), A.2 (= 21-24 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað til loka eru 174-198 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan A.3 (= 12-14 lykkjur) yfir A.1 og A.4 (= 17-19 lykkjur) yfir A.2. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (= 12 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona til skiptis hægra og vinstra megin við hverja brugðnu einingu með 4-3 cm millibili alls 5-7 sinnum = 114-114 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 25-28 cm – stillið af að þetta sé ekki umferð með kaðli í A.4, þ.e.a.s. ekki 3. til 5. umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð með úrtöku þannig: * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið, 9 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum = 108-108 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) þar til stykkið mælist 30-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-6 cm. Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.5 (= 18 lykkjur), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 55-55 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 26 lykkjur slétt (= í lófa), A.5 (= 25 lykkjur) og 4 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 65-67 lykkjur. Nú eru settar 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 55-55. Haldið áfram þar til vettlingurinn mælist 25-27 cm – stillið af að þetta sé ekki umferð með snúningi í kaðli í A.6, þ.e.a.s. ekki í 3. til 5. umferð (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 3 cm til loka). Prjónið nú A.7 yfir A.6, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 47-47 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki eftir 24 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki eftir 24 lykkjur. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 23-23 lykkjur. Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið síðan lykkjurnar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið 11-13 þumallykkjur á þráð yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn sjálfur mælist ca 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm til loka). Prjónið 1-0 lykkju slétt, prjónið síðan lykkjur slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur. Prjónið síðan lykkjur slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 22. lykkju í umferð. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 136-144 lykkjur á hringprjón 3 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * A.8A (= 19 lykkjur), A.9A (= 15-17 lykkjur) * , prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Endurtakið A.8A og A.9A á hæðina þar til stroffið mælist 3 cm. Aukið nú út í mynstri með því að prjóna næstu umferð þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.9B yfir A.9A, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður = 140-148 lykkjur. Prjónið síðan A.8B (= 19 lykkjur) yfir A.8A og A.9C (= 16-18 lykkjur) yfir A.9B. Endurtakið síðan A.8B og A.9C á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 20-23 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Nú fækkar lykkjum í topp á húfunni með því að prjóna þannig: A.8C (= 19 lykkjur) yfir A.8B og A.9D (= 16-18 lykkjur) yfir A.9C. Prjónið þar til A.8C og A.9D er búið á hæðina = 20-20 lykkjur. Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 10-10 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Stykkið mælist ca 25-28 cm ofan frá og niður. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Anna wrote:
Dzień dobry, Prosiłabym o przesłanie wzoru DROPS 192-46. Z góry dziekuje i pozdrawiam Anna
11.12.2022 - 12:17DROPS Design answered:
Witaj Aniu, klikając na ikonę drukarki we wzorze (pod materiałami) otrzymasz możliwość zapisania wzoru jako pdf na swoim komputerze. Pozdrawiamy!
12.12.2022 - 08:39Hofmann Alfa wrote:
Model 192-46 Kragenschal Auf der Anleitung habe ich dieses Muster nicht gefunden. Wie strickt man im Diagramm A.3 die letzten 4 Maschen. Dach oben und unten. Freundliche Grüsse Alfa Hofmann
29.04.2022 - 07:59DROPS Design answered:
Liebe Frau Hofmann, die letzten 4 Maschen in A.3 werden mit den Zöpfen von 4. + 3. Symbol gestrickt, dh bei der 1. Reihe stricken Sie zuerst 4. dann 3. Symbol, bei der3. Reihe stricken Sie 3. dann 4. Symbol. Viel Spaß beim stricken!
29.04.2022 - 08:30Susanne wrote:
Ich freue mich sehr über diese schöne Anleitung, glaube aber, einen Fehler gefunden zu haben. Im Diagramm A.9 M/L müsste in der ersten Zeile von D eine Abnahme erfolgen, tut es aber nicht. Ich arbeite einfach so, als wäre es unterhalb des ersten Diagonalstrichs schwarz schraffiert und stricke 2 Maschen zusammen.
08.01.2022 - 18:31Giovanna wrote:
Ho realizzato lo scaldacollo nella taglia L/XL ma le misure indicate sono un po’ piccole anche se ho usato lane Karisma e aghi indicati; comunque è venuto molto bene e comodo da usare
17.12.2020 - 18:23DROPS Design answered:
Buongiorno Giovanna, aveva lavorato il campione prima di cominciare? Corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!
18.12.2020 - 09:03Gianna wrote:
Ho realizzato lo scaldacollo con la lana Karisma nuova nella taglia L/ XL ma è ancora un po’ stretto di spalle,forse perché quando lavoro ho il punto un po’ stretto Vorrei rifarlo più grande di quante maglie devo ingrandirlo per mantenere lo schema.?di trenta? Per fortuna ho comprato un gomitolo in più Grazie
22.11.2020 - 14:52DROPS Design answered:
Buonasera Gianna, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
22.11.2020 - 17:41Ilona wrote:
Moi! Aloitin tekemään lapasta tällä ohjeella. En ole ennen neulonut neulepiirroksesta mitään. Miten A.5 piirros tehdään?
12.09.2020 - 18:30DROPS Design answered:
Hei, piirrosten yläpuolelta löydät merkkien selitykset. Esim. tyhjä ruutu on oikea silmukka oikealta puolelta ja ruutu, jossa on musta ympyrä neulotaan nurin oikealta puolelta. Suljettua neuletta neulottaessa kaikki piirroksen kerrokset luetaan oikealta vasemmalle. Piirros luetaan alhaalta ylös.
22.09.2020 - 17:25Danielle wrote:
Thank-you for the response, I basically wanted to know if it would be possible to make this with the 3 repeats instead of 4 and if I would be ok for the rest of the pattern keeping with the 3 only. I Have made several Drops patterns and I love them. Also you are the best in answering questions and for help so thank-you.
21.11.2019 - 17:44Danielle wrote:
Hello the # of sts to cast on for the hat 136 = 24.5 “ I need a true small 18-19” hat I calculated 102 sts for a 3 repeat ** of the pattern however I need help with the rest of the pattern. Can you help with what to do next? My daughter fell in love with this hat I’d hoped to make it for Christmas. Thanks so much for your help.
21.11.2019 - 05:05DROPS Design answered:
Dear Danielle, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every request, but if working over 3 repeats might fit, then you can just continue working the pattern as explained, you will simply work over less stitches/repeats in width. Do not hesitate to contact the store where you bought the yarn for any further individual assistance (even per mail). Happy knitting!
21.11.2019 - 09:28Jolyane wrote:
Je veux savoir si dans le diagramme A3 il faut faire les torsade avec 2 mailles sur l\'aiguille auxiliaire et on tricote deux mailles ou juste une maille sur l\'aiguille auxiliaire et on tricote une maille ?
24.11.2018 - 02:06DROPS Design answered:
Bonjour Jolyane, les torsades de A.3 se font chacune sur 2 mailles - cf 3ème et 4ème symbole de la légende. Bon tricot!
26.11.2018 - 11:10Monique wrote:
Sehr schöne Kombination. Hätte ich gerne.
13.07.2018 - 15:05