DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10318.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 186-33

#kylienajacket

DROPS Design: Mynstur ai-101
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450 g litur 10, þoka

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 stuðlar og 7 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð, eða 1 mynstureining A.2 verði 8 cm á breidd (A.X = ca 5 cm á hæð).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10318.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð.
Fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í 2 stykkjum sem saumuð eru saman við miðju að aftan. Heklað er fram og til baka, frá miðju að aftan og út að hliðum. Að lokum eru ermarnar heklaðar, ofan frá og niður.

VINSTRA STYKKI:
Heklið 105-116-127 loftlykkjur með heklunál 6 með Air. Snúið og heklið 1 stuðlu í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 5-4-3 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 87-96-105 stuðlar. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið síðan þannig – frá röngu: A.3 (= 3 stuðlar), A.2 (= 9 stuðlar) yfir næstu 81-90-99 stuðla (= 9-10-11 mynstureiningar), endið með A.1 (= 3 stuðlar). Í næstu umferð (= frá réttu) heklið gagnstætt, þ.e.a.s. heklið A.1, A.2 og endið með A.3. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru umferðir 1-4 (= A.X) endurteknar. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.X. Heklið síðan frá réttu – þannig:

Til að peysan verði aðeins stífari yfir handveg er hekluð auka umferð með stuðlum einungis yfir fyrstu lykkjur á peysunni (= kragi). Heklið A.1 + 18 stuðlar yfir fyrstu 2 mynstureiningar af A.2 (sjá A.4 hvernig stuðlarnir eru heklaðir yfir A.2) = 21 stuðull. Klippið frá og byrjið aftur frá byrjun á umferð – frá réttu og frá fyrstu umferð í A.X.

Heklið A.1, heklið A.5 yfir næstu 18 stuðla (= 2 mynstureiningar með 9 lykkjum), heklið 18-27-27 loftlykkjur og hoppið yfir 2-3-3 næstu mynstureiningar af A.2, heklið út umferðina eins og áður (þ.e.a.s. 5-5-6 mynstureiningar af A.2 og A.3). Í næstu umferð (= umferð 2 í A.X) eru heklaðar 2-3-3 mynstureiningar af A.2 um nýju 18-27-27 loftlykkjur sem voru heklaðar. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.2 eins og áður yfir þessar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 61-66-71 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.X. Heklið síðan þannig: A.1, stuðlar yfir 9-10-11 mynstureiningarnar af A.2 (sjá A.4), endið með A.3 = 87-96-105 lykkjur. Heklið alls 2 umferðir með stuðlum eins og útskýrt er í A.4, klippið frá og festið enda.

HÆGRA STYKKI:
Heklið 105-116-127 loftlykkjur með heklunál 6 með Air. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 5-4-3 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 87-96-105 stuðlar. Heklið síðan þannig – frá röngu: A.3 (= 3 stuðlar), A.2 yfir næstu 81-90-99 stuðla (= 9-10-11 mynstureiningar), endið með A.1 (= 3 stuðlar). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er umferð 1-4 (= A.X endurteknar).
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.X. Heklið síðan þannig – frá réttu:

Til að peysan verði aðeins stífari yfir handveg er hekluð auka umferð með stuðlum einungis yfir síðustu lykkjur á peysunni (= kragi – þetta er efst á peysunni þegar stykkin eru saumuð saman). Klippið frá. Hoppið yfir A.1 og fyrstu 7-8-9 mynstureiningar af A.2, heklið 18 stuðla yfir 2 síðustu mynstureiningar af A.2 og endið með A.3 (sjá A.4 hvernig stuðlar eru heklaðir yfir A.2) = 21 stuðlar. Klippið frá og byrjið aftur frá byrjun á umferð – frá réttu og frá fyrstu umferð í A.X.

Heklið A.1, heklið fyrstu 5-5-6 mynstureiningar af A.2, heklið 18-27-27 loftlykkjur og hoppið yfir 2-3-3 næstu mynstureiningar af A.2, heklið A.5 yfir 18 næstu stuðla, endið með A.3. Í næstu umferð (= umferð 2 í A.X) eru heklaðar 2-3-3 mynstureiningar af A.2 um nýjar 18-27-27 loftlykkjur sem voru heklaðar. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.2 heklað eins og áður yfir þessar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.2 heklað eins og áður yfir þessar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 61-66-71 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.X. Heklið síðan þannig: A.1, A.4 yfir 9-10-11 mynstureiningar af A.2, endið með A.3 = 87-96-105 stuðlar. Heklið alls 2 umferðir með stuðla eins og útskýrt er í A.4, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið peysuna saman við miðju að aftan.

ERMI:
Heklið í kringum handveg þannig – byrjið mitt undir ermi: 1 fastalykkja, * 4 loftlykkjur, hoppið fram ca 2 cm, 1 fastalykkja, * endurtakið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju = ca 12-18-18 loftlykkjubogar. Heklið síðan 45-64-64 stuðlar jafnt yfir um loftlykkjubogana (heklið 3 eða 4 stuðla um hvern boga). Heklið síðan þannig – frá miðju undir ermi:
A.1 (= 3 stuðlar) yfir 9-14-14 fyrstu stuðla, A.2 yfir næstu 27-36-36 stuðla, A.3 (= stuðlar) yfir síðustu 9-14-14 stuðla. MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGUM! Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, stykkið er síðan mælt héðan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið með 5-3½-3½ cm millibili alls 9-14-14 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 27-36-36 stuðlar eftir í umferð, nú eru heklaðir stuðlar yfir allar lykkjur (sjá A.4). Haldið áfram þar til stykkið mælist 55-55-55 cm, klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

1 stuðull = 1 stuðull
1 loftlykkja = 1 loftlykkja
1 fastalykkja í lykkju = 1 fastalykkja í lykkju
heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í sama stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í sama stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul um miðju loftlykkjuna í stuðlahópnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni = heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul um miðju loftlykkjuna í stuðlahópnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sömu loftlykkju, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
heklið 1 stuðlahóp um loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull um sama loftlykkjuboga = heklið 1 stuðlahóp um loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull um sama loftlykkjuboga
1 fastalykkja um loftlykkjuboga = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
heklið einn stuðul á milli 2 stuðla þannig: Heklið 1 stuðul + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull á milli 2 stuðla = heklið einn stuðul á milli 2 stuðla þannig: Heklið 1 stuðul + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull á milli 2 stuðla
þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð
heklstefna = heklstefna
Diagram for DROPS 186-33
Diagram for DROPS 186-33
Diagram for DROPS 186-33
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #kylienajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Anne skrifaði:

Het antwoord begrijp ik niet. Na een hele herhaling van A.x ga je toch verder met de eerste toer A.1? En de eerste toer A.1 begint met 3 vasten. Waar komen die 3 stokjes dan vandaan?

11.04.2019 - 12:28

DROPS Design svaraði:

Dag Anne,

A.x begint met 3 vasten, maar A.1 begint met 3 stokjes. Nadat je 18-20-22 cm hebt gehaakt, haak je A.1 + 18 stokjes over de eerste 2 herhalingen van A.2. (= een extra toer van stokjes over alleen de eerste steken op het vest om te zorgen dat het vest wat steviger is bij het armsgat).

11.04.2019 - 15:00

country flag Blandine skrifaði:

Je ne comprends pas ce qu'il faut faire lorsque l'ouvrage mesure 22 cm pour le côté gauche. Quand vous dites pour que les emmanchures soient plus fermés on crocheté un rang de brides supplémentaires pour le col. Je suis complètement perdue

07.04.2019 - 14:59

DROPS Design svaraði:

Bonjour Blandine, on va crocheter un rang de brides sur les premières mailles pour que les épaules aient un peu plus de tenue: crochetez A.1 + 18 brides (21 brides au total), coupez le fil et crochetez comme avant en reprenant au début du rang. Bon crochet!

08.04.2019 - 09:46

country flag Anne skrifaði:

Na 18-20-22 cm: Haak A.1 + 18 stokjes = 21 stokjes. Maar de eerste toer A.1 begint met 3 vasten, dus A.1 + 18 stokjes = 3 vasten en 18 stokjes. Of is het de bedoeling om de 3 vasten van de eerste toer A.1 te vervangen door 3 stokjes?

26.03.2019 - 11:09

DROPS Design svaraði:

Dag Anne,

Het werk moet ongeveer 18-20-22 cm meten, maar dit moet je aanpassen tot na een hele herhaling van A.x. Op die manier heb je 3 stokjes aan het begin.

28.03.2019 - 13:12

country flag Anita Dirx skrifaði:

Sorry ik heb mijn vraag verkeerd gesteld. Ik begrijp niet wat er tussen a2 en A3 komt. Want zoals ik het begrijp krijg ik dan 12 stokjes achter elkaar.

22.11.2018 - 15:04

DROPS Design svaraði:

Dag Anita,

Je hoeft niets tussen A.2 en A.3 te haken. De eerste toer in het telpatroon, dus de toer met het sterretje hoef je overigens niet te haken, deze toer geeft aan hoe je de volgende toer in de steken haakt. A.2 heeft (herhalingen van) 9 steken en gelijk daar achteraan haak je de 3 stokjes van A.3.

25.11.2018 - 16:19

country flag Anita Dirx skrifaði:

Als ik A2 en erna A3 moet haken moet ik dan in principe 9 stokjes achter elkaar haken of zie ik dit fout ?

21.11.2018 - 17:26

DROPS Design svaraði:

Dag Anita

Nee A.2 is 9 stokjes. A.2 is het gedeelte van het telpatroon dat je steeds herhaalt in de breedte. Je begint en eindigt steeds met A.1 of A.3 (staat aangegeven in het patroon) en daartussen zitten dus een aantal herhalingen van A.2

22.11.2018 - 11:13

country flag Donna T skrifaði:

Thank you for the explanation. That means the picture of A4 is incorrect showing 2 rows of double crochet, when it should only be 1 row of double crochet following your explanation. Or is it suppose to be 2 rows of double crochet? After A1 AX Row 1, at the end of A5 Row 1 (working right to left twice), after that last dc group ch 3, I assume you sc in last dc? Then 27 chains, skip 3 repeats of A.2 then continue next repeats as before (= 1st row in A.X).

03.10.2018 - 16:34

DROPS Design svaraði:

Dear Donna, at this step you only work 1 row treble crochets as shown in A.4. The 2 rows in A.4 will be worked later at the end of left piece. Happy crocheting!

04.10.2018 - 09:41

country flag Donna T skrifaði:

On left piece after it is 8 inches, 21 dc over A2, cut strand and start from beginning of row again from right side. This is for the second row of dc. If this is all dc, why does it say . . . and from the first row in AX which is single crochet's? Then when you finish those 21 dc, I assume you turn to work A1 (3 dc), work A5 over the 18 dc? When you turn again you start second row of A5. At the end of those 2 rows of 21 dc, how do you stop that row to start the 27 chain stitches?

02.10.2018 - 22:53

DROPS Design svaraði:

Dear Donna, adjust the length after a complete repeat of A.X - ie work some more/fewer rows if required. Then you will work an extra row over the first sts on jacket towards collar (like short rows), ie: A.1 + 18 dc over the first 2 repeats of A.2 = 21 dc. Cut the strand and continue working from RS with 1st row in A.X (work A.5 over the first 2 repeats), 27 chains and skip 3 repeats of A.2 then continue next repeats as before (= 1st row in A.X). Happy crocheting!

03.10.2018 - 07:52

country flag Sandrine skrifaði:

Bonjour, Je ne comprends pas, au début, on a "87-96-105 brides" et ensuite "Crocheter ensuite ainsi – sur l'envers: A.3 (= 3 brides), A.2 (= 9 brides) au-dessus des 81-90-99 brides suivantes". Comment passe-t-on de 87 à 86 brides ?

26.07.2018 - 10:23

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sandrine, on crochète bien les 87 brides: A.3 = 3 brides, 9 x A.2 = 81 brides et 1 x A.1 = 3 brides soit 3+81+3= 87 brides. Bon crochet!

26.07.2018 - 12:04

Claire skrifaði:

Just wondering as I see a difference in the pattern vs the diagram. The pattetn repeats the first row in the other direction. On the first diagram there is a row with lots of chain stitches. I cannot figure out where this row has to be crocheted. I hope you can clarify. Thank you

20.06.2018 - 14:03

DROPS Design svaraði:

Dear Claire, you will start reading diagrams A.3,A.2 and A.1 from the WS, ie from the bottom corner on the left side and you read towards the right. On the right side rows, read from the right towards the left, ie: A.1, A.2 and A.3. Happy crocheting!

20.06.2018 - 16:05

country flag Evelyn skrifaði:

Hallo, könnte man auch das Garn Sky für die Anleitung verwenden? Wieviel Gramm würde man davon benötigen? Vielen Dank!

13.05.2018 - 20:30

DROPS Design svaraði:

Liebe Evelyn, Sky gehört zur Garngruppe B und Air (in diesem Modell) zur Garngruppe C so daß SKy ist hier keine Garnalternative. Hier lesen Sie mehr über Garnalternative. Viel Spaß beim häkeln!

14.05.2018 - 11:09