Lydia skrifaði:
Verstehe ich es also richtig, dass die Rückseite des Ponchos genau so wie die Vorderseite (Foto) aussieht, also dieses tiefe spitze Ende hat?
02.03.2018 - 16:23DROPS Design svaraði:
Liebe Lydia, ja genau, Sie stricken 2 ähnlichen Teilen und nähen Sie sie zusammen wie im Video gezeigt. Viel Spaß beim stricken!
02.03.2018 - 16:38Elfriede skrifaði:
Hi can you please email pattern?
24.01.2018 - 00:20DROPS Design svaraði:
Dear Elfriede, you can print this pattern clicking on the "Print" button and either send it to your printer or to a virtual printer to save it as a .pdf. You can also add it to your favorites. Happy knitting!
24.01.2018 - 09:32
Claudine Piers skrifaði:
Zitten er 10 naalden tussen de slakken
07.12.2017 - 18:56DROPS Design svaraði:
Hallo Claudine, Wat bedoel je met de slakken? :) Na de rand in ribbelsteek herhaal je steeds de telpatronen A.1 tot en met A.5 in de hoogte, volgens de beschrijving in het patroon en A.2 heeft 24 naalden.
11.12.2017 - 12:55
Linda Lawrence skrifaði:
I left a comment on Nov 13, recommending a correction. Am not sure if that was the correct way to notify you!
14.11.2017 - 21:13DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lawrence, yes thank you, your feedback has been forwarded your design team. They will add a correction if needed. Happy knitting!
15.11.2017 - 08:47
Linda Lawrence skrifaði:
Correction: After the 3 ridge border, instructions are to increase 10 sts evenly on last row, then begin pattern. However, after pattern is complete, thee is no instruction to DECREASE 10 STS on first row of 3 ridge border. Should read: Change to circular needle size 4.5 mm/US7 and work 3 ridges, decreasing 10 sts evenly across first row.
13.11.2017 - 16:21
Bernadette Desloovere skrifaði:
Ik zoe het breiboek " drops design nr.184" willen kopen
24.10.2017 - 23:28DROPS Design svaraði:
Hallo Bernadette, De breiboeken kun je bij je verkoppunt kopen, waar je ook de garens koopt.
25.10.2017 - 09:38
Francesca skrifaði:
Che bella questa signora! E come valorizza il modello! Complimenti per la scelta!
12.09.2017 - 12:40
Winter's Heart#wintersheartponcho |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað poncho með köðlum, kúlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað með 2 þráðum DROPS BabyMerino.
DROPS 184-5 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Hvort stykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. FYRRA STYKKI: Fitjið upp 98-106-114 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum BabyMerino. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 108-116-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 8 lykkjur) yfir næstu 8-16-16 lykkjur, A.2 (= 44 lykkjur), A.1 yfir næstu 8-8-16 lykkjur, A.3 (= 15 lykkjur), A.4 (= 11 lykkjur), A.5 (= 12 lykkjur) og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 82-88-95 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 6 umferðir garðaprjón, í fyrstu umferð er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir. Fellið síðan af. Stykkið mælist 84-90-97 cm. SEINNA STYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og fyrra stykki. FRÁGANGUR: Leggið affellingarkantinn á fyrra stykki að hægri langhlið á seinna stykki – neðst niðri að uppfitjunarkanti og ca 56-60-65 cm upp – passið uppá að strekkja ekki mikið á stykkinu. Saumið saman bæði stykkin með smáu spori. Saumið síðan affellingarkantinn á seinna stykki að hægri hlið á fyrra stykki alveg eins. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersheartponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.