Fiona skrifaði:
In the section 'Continuing Down the body' on the Back Side, size S, after increasing the chain spaces, I have 27 chain spaces. The next row says to work 4 double crochets (US terms) around each chain space at the same time as increasing 14 double crochets evenly along the row. It appears that the purpose of this row is to end up with 24 chain spaces, so as to work 8 repeats of A.2b in the following section. Where do I place the 14 extra double crochets--in the chain spaces or between them?
05.03.2020 - 20:43DROPS Design svaraði:
Dear Fiona, you will crochet 4 double crochets (US terms) around 13 chain-spaces and 5 double crochets around 14 chain-spaces = you will have increased 14 dc and you get a total of 122 dc, to increase evenly, *work 5 dc in 1st ch-space, 4 dc in next ch-space* and repeat from *-* all the row (13 times) and finish with 5 dc in last ch-space. Happy crocheting!
06.03.2020 - 09:12
Evelyn Rowley skrifaði:
That's OK, I ended up working it out. However, I am on the right front half square now and I think there is a half-treble bar missing between the second to last row of A.5a and A.2b . The pattern is a half-treble with 5 chain between all along the row (apart from the corner of course) but between A.5a and A.2b there are 10 chain spaces without a half-treble between. I have added a half treble after 5 chain when going between the two and it seems to fit the pattern. Thanks for your help.
02.01.2020 - 11:26
Ada skrifaði:
Love your patterns - would be possible to download them as PDF? -
01.01.2020 - 23:21DROPS Design svaraði:
Dear Ada, thank you! you can dowload our pattern choosing to print them and then selecting a virtual printer. Happy crocheting!
02.01.2020 - 16:00
Evelyn Rowley skrifaði:
On the back "Left Side" for size XL I count 70 treble crochets (1+4+[5x5=25]+3+[5x7=35]+2) and "Continuing down the body" after first increases, for size XL there are 33 chain-spaces. Then "Working from the second row work A.2a, work A.2b (=9 repeats for XL). Is this correct as A.2b uses 3 chain-spaces each repeat which makes 11 repeats (3 X 11 = 33)?
23.12.2019 - 15:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Rowley, I'm so sorry, I'm not sure where you are exactly in the pattern, can you please tell us more? Thank you!
02.01.2020 - 10:30
TrudyMannee skrifaði:
Goedendag, Het is wel erg slordig als er bij een uitleg over een haakpatroon (door DROPS Design) staat dat je moet breien! (in opmerking op 26-05-2017)
14.06.2019 - 22:11
Ina Van Den Hoek skrifaði:
Het haken van de hoek klopt zoals u zegt maar elke keer haak je op de 7 losse 2 x 5 stokjes met 3 losse in het midden waardoor je aan elke zijde een blokje van 5 stokjes meer krijgt. Klopt dat? het gaat om de grotere maten waarbij je meer randen van de 5 blokjes moet maken.
26.02.2019 - 10:16DROPS Design svaraði:
Dag Ina,
Ja, dat klopt. De 2 toer van A.3c, dus de 7 lossen is zeg maar de hoekvariant van de 2e toer van A.3a/b
28.02.2019 - 10:50
Ina Van Den Hoek skrifaði:
Ik ben bezig met 178-29. en na ongeveer 20 maal uithalen en weer opnieuw beginnen heb ik het vierkant klaar maar de hoeken A3C krijg ik niet voor elkaar..Na de zoveelste keer heb ik veel te veel steken in de hoeken en krijg het vierkant niet meer in vorm. ik weet niet wat ik fout doe en heb het op verschillende manieren geprobeerd. Kunt u mij helpen met een iets duidelijkere tekening en klopt het dat ik wel of niet meerder op de hoeken. Ik begon met 15 blokjes van 5 stokjes en heb er nu 21
24.02.2019 - 16:58DROPS Design svaraði:
Dag Ina,
Helaas kan ik vanaf hier niet meekijken wat er precies mis gaat, maar als je het vierkant haakt wordt er niet gemeerderd; dit wordt pas gedaan als je naar beneden voor het lijf haakt. Dus voor de vierkanten kun je gewoon precies de teltekeningen volgen. A.3c geeft de hoek aan met steeds 5 stokjes 3 lossen en dan weer 5 stokjes op toer 1 en 3 en op de 2e toer 7 lossen.
26.02.2019 - 09:07
Rama Gh skrifaði:
Hi, Thanks for sharing this Pattern. You did a great work. But when I started working diagram A.1b with A.1a , almost lost the sequence and I feel that from the 4th row of the square, you have something wrong with the diagram. I couldn't complete it as you are showing. I think with no offence, I will have my own way to complete the pattern.
13.08.2018 - 03:39DROPS Design svaraði:
Dear Rama Gh, just repeat A.1b in the round, at the end of 4th row in A.1b (= 3 chains), start again the next repeat of A.1b with 4 chains, 1 sc (US-crochet terminology) around the 1 chain from previous round ... ie you will have a 7-ch-space (= 3 ch from end of A.1b + 4 ch from beg of next A.1b). Happy crocheting!
13.08.2018 - 10:15
Tove Nydam skrifaði:
Skal pilene i A1 læses som pile eller tredobbelt stangmaske? Mvh
25.04.2018 - 07:15DROPS Design svaraði:
Hej Tove, pilene i A.1 er pile og viser hvor du starter :)
26.04.2018 - 09:20Katie Bell skrifaði:
I liked designing this neck style because it is just so simple in construction! Ideal for newbies and for those who make Gran Pieces. You can implement this bag style to all kinds of Gran Pieces as well, so hopefully this style will inspire
15.03.2018 - 15:08
Forever Lace#foreverlacevest |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað vesti með ferningi og gatamynstri, heklað ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-29 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkju er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með hálfum stuðli er fyrsta hálfa stuðli skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með stuðli er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með þríbrugðnum stuðli er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju. ÚTAUKNING: Aukið út í hvorri hlið með því að hekla auka loftlykkjuboga (= 6 loftlykkjur og 1 fastalykkja) um fyrsta og síðasta loftlykkjubogann í umferð (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklaði ferningurinn á bakstykki er heklaður í hring. Síðan er heklað fram og til baka í stykkjum og í lokin eru stykkin sett saman. BAKSTYKKI: HEKLAÐUR FERNINGUR: Byrjið með heklunál 3 og Cotton Light. Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið í hring frá umferð með ör þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) – LESIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 21 x 21 cm. Heklið keðjulykkjur fram að 4. fastalykkju á undan næsta horni (= 3 loftlykkjubogar frá horni – sjá stjörnu í A.1b). Byrjið á umferð 3 í mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.2a í fastalykkju (sýnir hvernig umferð byrjar og endar), heklið A.2b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, * heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjuboga (= 3 mynstureiningar) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2c í horni og endið á A.2b yfir næstu 6 loftlykkjuboga (= 2 mynstureiningar) í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 34 x 34 cm. Nú er ferningurinn í stærð S og M lokið. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er haldið áfram þannig: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.3a (sýnir hvernig umferð byrjar og endar), heklið A.3b umferðina hringinn en í hvert horn er heklað A.3c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 39 x 39 cm og ferningurinn í stærð L og XL er lokið. Í stærð XXL og XXXL eru 2 síðustu umferðirnar í umferð A.3 heklaðar 1 sinni til viðbótar á hæðina (= alls 2 sinnum á hæðina). Heklaði ferningurinn mælist ca 43 x 43 cm og stærð XXL og XXXL er lokið. Klippið frá. HÆGRI ÖXL: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið öxlina fram og til baka þannig: Heklið A.4a um loftlykkjuboga í horni A – sjá mynsturteikningu, heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðlana (4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4a um bilið á milli næstu 2 stuðla. Snúið og haldið svona áfram þar til mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina. Heklið umferð 2-5 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina (= alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina). Öxlin mælist ca 8-8-8-12-12-12 cm frá heklaða ferning. Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL: Hoppið yfir 35-35-35-35-45-45 stuðla fyrir hálsmáli á eftir hægri öxl = 20-20-25-25-25-25 stuðlar fyrir vinstri öxl. Í bilið á milli næstu 2 stuðla er þráðurinn festu með 1 fastalykkju (= A.4a). Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.4a (eins og útskýrt er frá að ofan), heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðla (= 4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4a um loftlykkjuboga í horni B - sjá mynsturteikningu. Snúið við og heklið síðan eins og hægri öxl. VINSTRI HLIÐ (á milli horna B og C – sjá mynsturteikningu): Hoppið yfir 15 stuðla í öllum stærðum frá loftlykkjuboga í horni B. Byrjið á umferð 2 í mynsturteikningu og heklið A.4c yfir næstu 10 stuðla, heklið A.4b yfir næstu 50-50-60-60-70-70 stuðla, endið með A.4a um loftlykkjuboga í horni C á heklaða ferningnum (= 12-12-14-14-16-16 loftlykkjubogar). Snúið við og heklið fram og til baka þar til 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú hefur fækkað um 1 loftlykkjuboga í A.4c = 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar. Heklið umferð 3 og 4 í A.4a og A.4b 0-1-1-2-3-4 sinnum á hæðina (= 3-5-5-7-9-11 umferð með loftlykkjubogum). Nú eru 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar fyrir vinstri hlið. Heklið umferð 3 frá röngu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b alls 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd, heklið 3 loftlykkjur og 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga. Klippið frá. ATH: Þessi umferð er hekluð til að hliðin verði aðeins skálaga út neðst niðri. Festið enda með 1 fastalykkju um efsta loftlykkjubogann í hlið séð frá réttu (þ.e.a.s. loftlykkjubogann yst við handveg), heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 4 stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið 5 stuðla um hvern og einn af næstu 4-4-5-5-6-6 loftlykkjubogum (= fram að síðasta loftlykkjuboga sem var heklaður í fyrri umferð), heklið 3 stuðla um næsta loftlykkjuboga (nú þegar er ein fastalykkja um þennan loftlykkjuboga), haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern og einn af næstu 6-6-7-7-8-8 loftlykkjuboga og heklið 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum) = 55-55-65-65-75-75 stuðlar. Nú er vinstri hlið tilbúin. Klippið frá og festið enda. HÆGRI HLIÐ (á milli horn A og D – sjá mynsturteikningu) Hægri hlið er hekluð alveg eins og vinstri hlið nema spegilmynd. Heklið frá röngu og hoppið yfir 15 stuðla frá loftlykkjuboga í horni A. Klippið ekki þráðinn frá þegar síðasta umferð með stuðlum hefur verið hekluð til loka. ÁFRAM NIÐUR YFIR FRAM- OG BAKSTYKKI: STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið nú áfram yfir fram- og bakstykki yfir neðsta kantinn í hliðum og heklaða ferningi. Byrjið frá röngu og heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a, heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í hægri hlið, haldið síðan á fram með A.4b yfir 75-75-85-85-95-95 stuðlar á heklaða ferningi (á milli horns D og C), heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í vinstri hlið og endið með A.4a = 21-23-25-27-31-33 loftlykkjubogar. Heklið umferð 3 og 4 í mynsturteikningu 3 sinnum (= alls 7 umferðir með loftlykkjubogum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið í hvert skipti sem umferð 4 er hekluð – LESIÐ ÚTAUKNING = 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 7 cm. Heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT er aukið út um 14-6-13-5-4-11 stuðla jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið A.2a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar á beidd), heklið A.2a. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 15-25-20-30-35-30 stuðla jafnt yfir = 137-147-157-167-187-197 stuðlar. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 15 cm. Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b þar til 1 stuðull er eftir í umferð, heklið A.4a (= 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar). Heklið umferð 3 og 4 þar til heklaðar hafa verið alls 5-7-5-5-5-7 umferðir með loftlykkjubogum á hæðina. Stykkið mælist ca 20-22-20-20-20-22 cm. Heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga JAFNFRAMT sem auknir eru út 14-6-13-5-4-11 stuðlar jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Byrjið á umferð 2 í mynsturteikningu og heklið A.2a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd), heklið A.2a. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 70-70-75-79-83-85 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda. HÆGRA FRAMSTYKKI: HÁLFUR FERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið fram og til baka frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.1b alls 2 sinnum, heklið A.1c (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hálfi ferningurinn ca 21 x 11 cm. Byrjið á umferð 3 í mynsturteikninu og heklið þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjuboga (= 3 mynstureiningar), heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, endið með A.5b. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hálfi ferningurinn ca 34 x 18 cm. Nú er hálfi ferningur í stærð S og M lokið. Í stærð L, XL, XXL og XXXL haldið áfram þannig: Byrjið á næst síðustu umferð í mynsturteikningu og heklið A.5a (hálfur stuðull í næst síðustu umferð er heklaður um bilið á milli 3. og 4. stuðuls), heklið síðan A.3b umferðina hringinn en í hverju horni er heklað A.3c, endið með A.5b (ATH: 1. hálfi stuðullinn er heklaður um bilið sem er á milli þegar 9 stuðlar eru eftir í umferð og 2. Hálfi stuðullinn er heklaður um bilið á milli þegar 4 stuðlar eru eftir í umferð). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hálfi ferningurinn ca 39 x 20 cm og hálfi ferningur í stærð L og XL er lokið. Í stærð XXL og XXXL eru síðustu 2 umferðirnar heklaðar 1 sinni til viðbótar á hæðina (= alls 2 sinnum á hæð). Hálfi ferningurinn mælist ca 43 x 22 cm og stærð XXL og XXXL er lokið. Klippið frá. HÆGR ÖXL: Hoppið yfir 19-19-19-19-24-24 stuðla frá miðju að framan og heklið öxl alveg eins og vinstri öxl á bakstykki. HÆGRI HLIÐ: Heklið hægri hlið alveg eins og vinstri hlið á bakstykki. ÁFRAM NIÐUR YFIR FRAM- OG BAKSTYKKI: STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Byrjið frá réttu, yst við hægri hlið og heklið frá umferð 2 þannig: Heklið A.4a, heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti á hægri hlið, haldið síðan áfram með A.4b yfir næstu 35-35-40-40-45-45 stuðla, heklið A.4b yfir þá 3 stuðla sem eftir eru og endið með A.4a = 11-12-13-14-16-17 loftlykkjubogar. Heklið umferð 3 og 4 í mynsturteikningu 3 sinnum (= alls 7 umferðir með loftlykkjubogum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 loftlykkjuboga á hægri hlið eins og á bakstykki = 14-15-16-17-19-20 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 7 cm. Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 5 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT í stærð M og XXL er fækkað um 5-2 stuðla jafnt yfir og í stærð L er aukið út um 5 stuðla jafnt yfir = 70-70-85-85-93-100 stuðlar. Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.2a 1-1-1-1-0-1 sinni, heklið A.5a 0-0-0-0-1-0 sinnum, heklið A.2b 4-4-5-5-5-6 sinnum, heklið A.5b. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er lykkjufjöldinn jafnaður til 70-75-80-85-95-100 stuðla. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 15 cm. Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b þar til 1 stuðull er eftir í umverð, heklið A.4a (= 14-15-16-17-19-20 loftlykkjubogar). Heklið umferð 3 og 4 þar til heklaðar hafa verið alls 5-7-5-5-5-7 umferðir með loftlykkjubogum á hæðina. Stykkið mælist ca 20-22-20-20-20-22 cm. Heklið eina umferð með stuðlum frá röngu þannig: Heklið 5 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT í stærð M og XXL er fækkað um 5-2 stuðla jafnt yfir og í stærð L er aukið út um 5 stuðla jafnt yfir = 70-70-85-85-93-100 stuðlar. Snúið við og heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.2a 1-1-1-1-0-1 sinnum, heklið A.5a 0-0-0-0-1-0 sinnum, heklið A.2b 4-4-5-5-5-6 sinnum, heklið A.5b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 70-72-75-79-83-85 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda. KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið kant framan á hægra framstykki þannig: Byrjið fyrir miðju að framan frá röngu, þ.e.a.s. frá hálsi og festið enda með 1 fastalykkju. Heklið * 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2½ cm, heklið 1 fastalykkju um kantinn *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kantinum, snúið við og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.4a. Snúið stykkinu og heklið umferð 2-4. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið vinstra framstykki alveg eins og hægra framstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. öxlin er hekluð eins og hægri öxl á bakstykki. Helkið síðan eins og hægri hlið á bakstykki. Þegar heklað er niður yfir fram- og bakstykki, heklið fyrstu umferð með loftlykkjubogum frá réttu eins og á hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar síðasta umferð í A.4a, A.4b og A.5c hafa verið heklaðar til loka er heklað frá réttu þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b 4-4-5-5-5-6 sinnum, A.5b 0-0-0-0-1-0 sinnum, A.2a 1-1-1-1-0-1 sinnum. Stillið af eftir hægra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Leggið síðan framstykki að hlið á bakstykki og heklið hliðarnar saman frá réttu þannig: Byrjið með 1 fastalykkju í fyrsta stuðul að handvegi, heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í stuðul í gangstæðri hlið, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju í stuðul/um loftlykkjuboga í hinni hliðinni *, endurtakið frá *-* niður meðfram allri hliðinni. Klippið frá og festið enda. Heklið saman hina hliðina alveg eins. Saumið tölur í vinstri kant að framan í gegnum síðustu umferð með stuðlum sem heklaðir voru á kanti að framan. Saumið fyrstu töluna ca 3 cm frá hálsi, síðan eru hinar 2 tölurnar saumaðar með ca 7 cm millibili. Hneppið tölunum í gegnum loftlykkjubogana á kanti að framan. KANTUR HANDVEGUR: Byrjið með 1 fastalykkju mitt undir handvegi, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* hringinn allan handveginn, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Endurtakið í kringum hinn handveginn á sama hátt. KANTUR HÁLSMÁL: Byrjið mitt framan á kanti að framan á hægra framstykki og heklið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 1 fastalykkju, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Fjöldi loftlykkjuboga á að vera á oddatölu. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* að síðasta loftlykkjuboga, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju í byrjun fyrri umferðar. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foreverlacevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.