Susanne skrifaði:
Visst måste diagrammet upprepas oftare än 8 ggr när man kommer "högre" upp? Jag är på varv 7 och det blir ändå för tajt, den blir inte plan. Varv 7 A1 är heller inte beskrivet i symbolförklaringen men i en kommentar här ovanför.
02.03.2020 - 12:31DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, Du måste virka relativt löst (9stolpar och 5 varv på 10 cm) i DROPS Eskimo. Alla varv finns med i diagrammet och nu är sista symbolförklaringen också med i mönstret. :)
03.03.2020 - 15:10
Barbro skrifaði:
Förstår inte vad den hel svarta symbolen är i början av varv 7 och 9.
18.05.2019 - 13:38DROPS Design svaraði:
Hei Barbro. Dette er symbol 4 i symbolforklaringen: = Omgangen starter med 4 luftmasker og avsluttes med 1 kjedemaske i 4.luftmaske. God fornøyelse
20.05.2019 - 09:16
Lisa Lennartsson skrifaði:
Hur ska man veta hur många stolpar man ska göra runt luftmaskbågen, hur ska man räkna ut det själv....??? Jag förstår inte det, det brukar ju vara hela diagram, kanske jag som inte är så haj på det här ... Tacksam för svar
29.06.2018 - 21:12DROPS Design svaraði:
Hej, du ska upprepa diagram A.2 totalt 8 gånger på varvet. Diagram A.1 visar hur varvet börjar och slutar.
02.07.2018 - 14:22
Water Ripples#dropswaterripples |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar þæfðar sessur með röndum, heklað í hring úr DROPS Snow.
DROPS 178-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. (A.1 sýnir hvernig umferð byrjar og endar). RENDUR-1 (natur með bláfjólubláum röndum): UMFERÐ 1-2 + UPPFITJUN: Natur UMFERÐ 3: Bláfjólublár UMFERÐ 4-5: Natur UMFERÐ 6: Bláfjólublár UMFERÐ 7: Natur UMFERÐ 8: Bláfjólublár UMFERÐ 9: Natur UMFERÐ 10: Bláfjólublár RENDUR-2 (bláfjólublár með natur röndum): UMFERÐ 1-2 + UPPFITJUN: Bláfjólublár UMFERÐ 3: Natur UMFERÐ 4-5: Bláfjólublár UMFERÐ 6: Natur UMFERÐ 7: Bláfjólublár UMFERÐ 8: Natur UMFERÐ 9: Bláfjólublár UMFERÐ 10: Natur LITASKIPTI: Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í 1./3./4./5. loftlykkju frá byrjun umferðar, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni (klippið þráðinn frá fyrri umferð og dragið í gegnum lykkjuna). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SESSUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. SESSA: Byrjið með heklunál 8 og litnum natur. Heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið RENDUR-1 og LITASKIPTI – sjá útskýringu að ofan og með mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 alls 8 sinnum í umferð. A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynstureining A.1 og A.2 hefur verið hekluð til loka á hæðina, mælist sessan ca 45 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra sessu á sama hátt, nema nú er heklað með gagnstæðum litum, þ.e.a.s. heklið RENDUR-2- sjá útskýringu að ofan. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropswaterripples eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.