Wilma Jansen skrifaði:
Hallo, Brei ik de hiel minderingen met 1 kleur? Of......
24.08.2020 - 23:36DROPS Design svaraði:
Dag Wilma,
Nee, als je gaat minderen voor de hiel brei je tegelijkertijd verder in patroon A.5
26.08.2020 - 14:26
Ylva Davidsson skrifaði:
Det måste vara fel på mönstret. Det är väl inte maskorna över A2 A3 o A2 som ska vara kvar på stickan ? Blomman ska ju vara fram Tycker mönstret är otydligt o det känns som bitar saknas. Mvh ylva
22.06.2020 - 15:40
Sabine skrifaði:
Ich bin mir nicht sicher wo ich bei den Diagrammen beginnen soll. Wegen der Abnahmen in Diagramm A4 habe ich geschlossen, dass der Beginn unten sein muss aber ob von rechts oder links weiß ich immer noch nicht. Ich fände es gut wenn das als genereller Hinweis unter "MUSTER" mit aufgenommen würde. Ansonsten finde ich diese Seite wunderbar 🤗
03.02.2019 - 12:38DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, die Muster werden generell von unten nach oben gelesen, Beginn ist unten rechts. Wenn Sie in Runden stricken, wird jede Runde von rechts nach links gelesen, wenn Sie in Hin- und Rück-Reihen stricken, werden die Hin-Reihen von rechts nach links, die Rück-Reihen von links nach rechts gelesen. Viel Spaß beim Weiterstricken - und weiterhin viel Spaß beim Stöbern in den Anleitungen! :-)
04.02.2019 - 12:33
Malla Oulusta skrifaði:
Kaunis sisäsukkamalli,kiva tehdä,kainis jalassa,olentehnyt useamman parin
13.01.2019 - 10:55Pam skrifaði:
When I get to the 31 stitches to work rows for heel the pattern tells me to knit the row but this is a purl side and does not seem to work using the 2 colours if I knit all rows
28.05.2018 - 14:52DROPS Design svaraði:
Dear Pam, when you work heel over the 31 last sts on row work first row from WS (= Purl sts following diagram, ie *1 st with picnic, 1 st with off white*, repeat from *-* and finish with 1 st with picnic until heel measures 5 cm adjust so that next row is worked from RS to start heel decrease - P all sts as in diagram from WS and K all sts as shown in diagram from RS. Happy knitting!
28.05.2018 - 15:17
Flower Music#flowermusicsocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu mynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 178-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjóna 2,5 með litnum lautarferð. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 6-0-0 lykkjur jafnt yfir = 66-72-72 lykkjur og í síðustu umferð er fækkað um 0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 66-70-70 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram þannig: A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 25-29-29 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 35 lykkjur) – fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 62-66-66 lykkjur á prjóni. (Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.3 endurtekið áfram). Setjið nú fyrstu 31-35-35 lykkjurnar á þráð (= lykkjur yfir A.2 + A.3 + A.2) = 31 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með A.5 yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki í síðustu umferð, prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er prjónað sléttprjón í hring: Prjónið fyrst A.5 yfir 15 hællykkjur, prjónið upp 12-13-14 lykkjur í A.5 í hlið á hæl, prjónið A.2 og A.3 eins og áður yfir lykkjur af þræði og prjónið upp 12-13-14 lykkjur í A.5 í hinni hliðinni á hæl = 70-76-78 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum hvoru megin við 31-35-35 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan 31-35-35 lykkjum ofan á fæti slétt saman og 2 lykkjur á eftir 31-35-35 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 58-64-66 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5 cm eftir). Prjónið síðan þannig: A.2 eins og áður yfir lykkjur á hvorri hlið, A.5 yfir 25-29-29 lykkjur ofan á fæti og 27-29-31 lykkjur undir fæti – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við A.2 í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt saman. Prjónið A.2, síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 3-6-6 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 5-3-3 sinnum = 22-24-26 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum lautarferð = 11-12-13 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flowermusicsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.