Coutarel skrifaði:
Comment repartissez vous les augmentations 4 fois 2 mailles, 1 sur chaque devant et 2 dans le dos ?
05.08.2016 - 05:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Coutarel, les augmentations pour le raglan se font avant A.2 (devant gauche), après A.2 et avant A.2 (dos) et après A.2 (devant droit) - vu sur l'endroit - voir aussi comment augmenter sous "RAGLAN" au début des explications. Bon crochet!
05.08.2016 - 09:50
Warm Apricot Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og laskalínu. Hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1286 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Þegar heklað er í hring: Í hverri umf með st er fyrsti st skipt út fyrir 3 ll, umf endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar með 1 kl í 1. ll í byrjun umf. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Heklið þar til 3 st eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 st í næsta st (= 1 st fleiri), heklið 1 st í hvern og einn af næstu 4 st (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), heklið 2 st í næsta st (= 1 st fleiri). LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2. Aukið út um 2 st á UNDAN A.2 þannig: Heklið þar til 2 st eru eftir á undan A.2, heklið 2 st í hvorn af næstu 2 st (= 2 l fleiri). Aukið út um 2 s á EFTIR A.2 þannig: Heklið 2 st í hvorn af fyrstu 2 st á eftir A.2 (= 2 st fleiri). Aukið út um 1 st á UNDAN A.2 þannig: Heklið þar til 1 st er eftir á undan A.2, heklið 2 st í næsta st (= 1 st fleiri). Aukið út um 1 st á EFTIR A.2 þannig: Heklið 2 st í fyrsta st á eftir A.2 (= 1 st fleiri). Aukið er mismunandi út á fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er frá í mynstri. ÚRTAKA: Heklið þar til 4 st eru eftir á undan prjónamerki, heklið næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 st, heklið 1 st í hvern og einn af 4 næstu st (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), heklið næstu 2 st saman (= 1 st færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Heklið 174-179-184-189-194-199 ll með heklunál nr 3,5 með Safran. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 138-142-146-150-154-158 st (= meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki). Hekli síðan næstu umf þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 5 st (= kantur að framan), A.1 yfir næstu 7 st, 1 st í hvern af næstu 11-12-13-14-15-16 st JAFNFRAMT er aukið út um 4-5-5-6-7-8 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= framstykki), A.2 yfir næstu 11 st, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 st í næsta st, A.2 yfir næstu 11 st (= ermi), 1 st í hvern af næstu 36-38-40-42-44-46 st JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-10-12-14-16 st jafnt yfir (= bakstykki), A.2 yfir næstu 11 st, 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 st í næsta st, A.2 yfir næstu 11 st (= ermi), 1 st í hvern af næstu 11-12-13-14-15-16 st JAFNFRAMT er aukið út um 4-5-5-6-7-8 st jafnt yfir, A.1 yfir næstu 7 st (= framstykki), 1 st í hvern af síðustu 5 st (= kantur að framan). Á framstykki eru nú 5 kantlykkjur að framan, A.1 og 15-17-18-20-22-24 st, á ermi eru A.2, 8 st og A.2 og á bakstykki eru 44-48-50-54-58-62 st. Í næstu umf er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. AUKIÐ ÚT Á FRAMSTYKKI OG Á BAKSTYKKI ÞANNIG: Aukið út um 2 st í hverri umf alls 3-4-7-9-13-16 sinnum, síðan 1 st í hverri umf alls 12-12-10-9-6-5 sinnum. AUKIÐ ÚT Á ERMUM ÞANNIG: Aukið út um 2 st í hverri umf alls 0-0-1-3-4-4 sinnum, síðan 1 st í hverri umf alls 15-16-16-15-15-17 sinnum. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a yfir A.1 og A.2a yfir A.2. Eftir alla útaukningu á báðum framstykkjum eru 5 kantlykkjur að framan, A.1 og 33-37-42-47-54-61 st, á báðum ermum er A.2, 38-40-44-50-54-58 st og A.2 og á bakstykki eru 80-88-98-108-122-136 st. Stykkið mælist ca 14-15-16-17-18-19 cm. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 5 st, A.1 eins og áður, 1 st í hvern af næstu 33-37-42-47-54-61 st, heklið 8 ll (= undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju ll, hoppið yfir: A.2a, 38-40-44-50-54-58 st og A.2a (= ermi), heklið 1 st í hvern af næstu 80-88-98-108-122-136 st, 8 ll (= undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju ll, hoppið yfir: A.2a, 38-40-44-50-54-58 st og A.2a (= ermi), heklið 1 st í hvern af næstu 33-37-42-47-54-61 st, A.1a eins og áður, 1 st í hvern af síðustu 5 st = 156-172-192-212-240-268 st (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið), 16 ll og A.1a innan við 5 kantlykkjur-st í hvorri hlið á stykki. Setjið 1 prjónamerki í stykki, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerki vera eftir í stykki, önnur prjónamerki fylgja með áfram í stykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 st í hvern st, 1 st í hvera ll og A.1a eins og áður. Nú eru 88-96-106-116-130-144 st á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 3 cm (mælt frá prjónamerki) fækkið um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki á hæð (= 4 l færri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4-4-3½-4½-4½-4½ cm millibili 3-3-4-3-3-4 sinnum til viðbótar = alls 156-172-188-212-240-264 st (meðtaldar kantlykkjur að framan í hvorri hlið) og A.1a innan við 5 kantlykkjur-st að framan í hvorri hlið á stykki. Nú eru 80-88-96-108-122-134 st á bakstykki. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm (mælt frá prjónamerki) aukið út um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 st fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 1½ cm millibili 6-6-7-6-6-7 sinnum til viðbótar = 184-200-220-240-268-296 st í umf (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) og A.1a innan við 5 kantlykkjur-st að framan í hvorri hlið á stykki. Haldið áfram með 1 st í hvern st og A.1a þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm (mælt frá prjónamerki). Stykkið mælist alls ca 46-48-50-52-54-56 cm frá kanti í hálsmáli. Heklið 1 kant neðst meðfram peysunni þannig: Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm * , endurtakið frá *-* yfir st, heklið A.1a yfir A.1a eins og áður. Stillið af þannig að endað er með 1 fl í síðasta st. Klippið frá og festið enda. KANTUR Á ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið síðan með 1 st í hverja af næstu 3 ll, A.2a eins og áður, 1 st í hvern af næstu 38-40-44-50-54-58 st, A.2a eins og áður, 1 st í hverja af 4 ll undir ermi, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Heklið 1 st í hvern st og A.2a þar til hekluð hefur verið 1 heil mynstureining af A.2a til loka. Heklið síðan 1 st í hvern st, heklið A.2b yfir A.2a = 68-70-74-80-84-88 st. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st JAFNFRAMT er fækkað um 12 st jafnt yfir = 56-58-62-68-72-76 st. Heklið 1 st í hvern st þar til kantur á ermi mælist ca 4 cm. Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda. Heklið kant á sama hátt í kringum hina ermina. HÁLSMÁL: Byrjið við miðju að framan. Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* umf í kringum allan hálsinn, passið vel uppá að kanturinn í hálsmáli verði ekki of stífur. Stillið af að endað er á 1 fl í síðasta st. VASI: Heklið 34 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Safran. Heklið A.3a alls 4 sinnum á breiddina (ATH: Fyrsta fl er hekluð í 2. ll frá heklunálinni), endið með fyrstu l í A.3a í síðustu ll (þannig að það verði alveg eins í báðum hliðum). ATH: Síðasta l er alltaf hekluð eins og fyrsta l í mynstri. Þegar A.3a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.3b yfir A.3a þar til stykkið mælist 7 cm, stillið af að síðasta umf er síðasta umf í A.3b, heklið síðan A.3c yfir A.3b. Klippið frá og festið enda. Heklið annan vasa til viðbótar. FRÁGANGUR: Saumið vasana á peysuna, ca 7 cm frá neðri kanti og ca mitt á framstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan, efsta talan er saumuð í 2 cm frá kanti á hálsmáli, síðan eru aðrar saumaðar með ca 8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2. og 3. st í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1286
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.