Anneliese skrifaði:
Angeschlagen werden 50-56-60 ----nach 1 Runde rechts sollen auf den Nadeln 54-54-58 Maschen sein. Woher kommen die Unterschiede - in meinem Fall mttlerer Wert - also 2 Maschen weniger als beim Anschlag?
27.06.2017 - 22:13DROPS Design svaraði:
Liebe Anneliese, nach dem Bündchen strickt man 1 Rd re und dabei wird die Maschenanzahl zu 54-54-58 angepasst. Viel Spaß beim stricken!
28.06.2017 - 08:07
Anastasia skrifaði:
Str 38-40. Det står at når en er ferdig med felling fra hælen så skal en ha 50m totalt. Har jeg forstått det riktig? I så fall får jeg ikke det til å stemme. Skal en ikke ha det opprinnelige antall m som før hælen? I mitt tilfelle 54. Hvorfor 50m og hvor skal de resterende 4m gå? Tåfelling : 24 m under foten + 24m over = 48m, igjen forsvinner 2m uten forklaring på hvor hen. Er det mulig at det er feil i oppskriften til akkurat denne størrelsen?
18.01.2017 - 14:42DROPS Design svaraði:
Hej Anastasia. Jeg tror det er en generel fejl. Du skal lukke af i hver side 12 ganger til (saa i alt 13 ganger), saa du har 46-48-52 m (og ikke 48-50-54) - saa passer det ogsaa til taaen. Vi skal faa det rettet. Tak for din henvendelse.
18.01.2017 - 15:33
Irenele skrifaði:
3 file di gettati esattamente sovrapposti su tre righe non danno il risultato che si vede nell'immagine dei calzini azzurri. Peccato non avere un vs. indirizzo mail per potervi mandare le foto. Grazie mille comunque per l'attenzione. Alla prima occasione ne parlerò al mio negozio di fiducia. Buon pomeriggio e buon lavoro a tutte/i!!
24.09.2016 - 14:54
Irenele skrifaði:
Ciò che intendevo dire è che seguendo il diagramma del modello non si ottiene il risultato della foto. Se c'è il modo vi posso mandare una foto.
24.09.2016 - 12:06DROPS Design svaraði:
Buongiorno Irenele. Il diagramma è corretto. Per ogni aiuto più personalizzato, può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
24.09.2016 - 12:31
Irenele skrifaði:
Non mi sembra che il diagramma nel modello corrisponda all'immagine dei calzini. Potete dirmi dove trovare quello dell'immagine? Grazie mille.
24.09.2016 - 09:29DROPS Design svaraði:
Buongiorno Irenele, il diagramma di questo modello è in fondo alla pagina: si ricordi che i diagrammi si leggono da destra verso sinistra, dal basso verso l'alto. Buon lavoro!
24.09.2016 - 09:42
Katrin skrifaði:
Die Söckchen finde ich toll und werde sie bestimmt für mich und meine Freundinnen stricken!
16.03.2016 - 20:30
Splash!#splashsocks |
||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||
Prjónaðir stuttir sokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS Extra 0-1244 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-5-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-4-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-4-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-13-15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 50-56-60 l á sokkaprjóna nr 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 2-2-3 cm, prjónið síðan 1 umf slétt þar sem l fjöldinn er jafnaður til 54-54-58 l. Haldið síðan eftir fyrstu 21-21-25 l á prjóni fyrir hæl og hinar 33 l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 merki fyrir miðju á hæl – stykkið er nú mælt héðan! Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-15 l hvoru megin við hæl og 33 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 72-74-78 l. Setjið 1 merki hvoru megin við 33 lykkjur fyrir miðju ofan á fæti. Haldið áfram í sléttprjóni undir fæti, yfir 33 l ofan á fæti er prjónað eftir A.1. JAFNFRAMT er l fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan 33 l fyrir miðju ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og prjónið 2 fyrstu l á eftir miðju 33 l ofan á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 12-12-12 sinnum (13-13-13 sinnum alls) = 46-48-52 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá merki á hæl (= ca 4-5-5 cm að loka máli). Setjið 1 merki í 1 l í hvora hlið þannig að það verða 23-24-26 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin þannig – byrjið 2 l á undan l með merki: 2 l slétt saman, 1 l sl (merkið er staðsett í þessari l), 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 4-7-6 sinnum og síðan í hverri umf 6-4-6 sinnum = 8-6-6 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #splashsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1244
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.