Geschwentner skrifaði:
Hallo, ich komme mit den Zahlen unten am Diagramm nicht klar. Sollen 50-55-58-64-70-77 Angaben in cm für die jeweiligen Größen sein? Wenn ja, was sind dann die Zahlen 88-89-92-94-96-97? Maschen können es nicht sein, weil von S nach M nur eine Masche mehr wäre, was unmöglich 5 cm ausmachen kann. Ich finde die Zahlen leider auch nicht in der Beschreibung.
21.05.2016 - 11:08DROPS Design svaraði:
Hallo Frau Geschwentner, in der Schnittübersicht finden Sie jeweils die Masse in cm angegeben und die Zahl bezieht sich auf den mit kleinen Strichen markierten Bereich. Die 88-89-92-94-96-97 cm sind die gesamte Breite von Ärmelbündchen zu Ärmelbündchen.
23.05.2016 - 09:14
Margit skrifaði:
Liebes Drops-Team,es fällt mir mit dieser feinen Wolle sehr schwer, die seitlichen Maschen neu anzuschlagen. Gibt es dabei vielleicht einen Trick, dass die Ränder des Strickstückes schön gleichmäßig und sauber bleiben? Bei mir ist es entweder zu locker, und es entstehen ungleichmäßige Schlaufen, oder, wenn ich fester arbeite, ist es sehr mühsam, die (neuen) Maschen abzustricken. Auf eine Antwort von Ihnen freue ich mich sehr. Liebe Grüße
09.03.2016 - 20:32DROPS Design svaraði:
Liebe Margrit, haben Sie die Maschen zu aufgenommen, wie in usnerem Video gezeigt? Achten Sie in jedem Fall darauf, dass Sie nicht zu fest anschlagen, sonst wird die Naht zu stramm.
10.03.2016 - 08:26
Betina skrifaði:
Hejsa. SUPER FLOT MODEL!!!! Jeg vil høre: hvordan finder jeg lige min størrelse. Jeg har et brystmål på 112. Eller er det ikke det jeg skal bruge for at finde den størrelse jeg gerne vil lave? Mvh Betina P.s har et lille ønske til at der var nogen af jeres designer der måske kunne lave nogen flotte kjolemodeller med det såkaldte empiresnit, da det vil se rigtig godt ud til den slags 'model' jeg og forhåbentlig også andre er.
26.02.2016 - 12:23DROPS Design svaraði:
Hej, Størrelse L bliver 116 cm i brystmål hvis du overholder strikkefastheden. Vi skal lade dit ønske gå videre til design. God dag!
02.03.2016 - 15:17
Nancy Bisgaard Rasmussen skrifaði:
Hej håber snart opskriften bliver lagt ind, da jeg gerne vil i gang med at strikke modellen. Den tiltaler mig rigtig meget. På forhånd tak. Mvh. Nancy
05.02.2016 - 22:27
Nancy Bisgaard Rasmussen skrifaði:
Hej håber snart opskriften bliver lagt ind, da jeg gerne vil i gang med at strikke modellen. Den tiltaler mig rigtig meget. På forhånd tak. Mvh. Nancy
05.02.2016 - 22:26
Sabine skrifaði:
J'ai hâte de l'avoir sur mes aiguilles!
18.01.2016 - 21:08
Nancy Bisgaard Rasmussen skrifaði:
Den ser rigtig spændende ud
15.01.2016 - 09:32
Annie skrifaði:
Très joli, je me réjouis d'avoir les explication
15.12.2015 - 13:16
Monika skrifaði:
So leicht und leger - man kann schon spüren, wie ein Hauch von Mohair und Seide auf der Haut schwebt!
13.12.2015 - 12:27
Sanna skrifaði:
Käytännöllinen ja kaunis!
11.12.2015 - 22:59
Blue Mist#bluemistsweater |
|
|
|
Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Kid-Silk í garðaprjóni, með opi að framan og böndum. Stærð S- XXXL.
DROPS 168-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið framstykki, síðan er prjónað yfir axlir og niður yfir bakstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-35-37-41-45-49 l á hringprjóna nr 5,5 með Kid-Silk. Prjónið 2 umf garðaprjón (1. umf = rétta), setjið eitt prjónamerki hér sem sýnir hvað sé rétta á stykkinu. Síðan eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf þannig: Fitjið upp 2 l í hverri umf 7-8-9-11-12-14 sinnum í hvorri hlið og 1 l í hverri umf 5-6-7-7-10-12 sinnum í hvorri hlið, fitjið síðan upp 1 l í lok annarrar hverrar umf 9-8-7-6-4-2 sinnum í hvorri hlið = 87-95-101-111-121-133 l. Stykkið mælist 18 cm. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir klauf í hlið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 32-34-34-36-36-38 cm. Í næstu umf frá réttu er stykkið skipt upp þannig að það verði op að framan þannig: Prjónið fyrstu 43-47-50-55-60-66 l og setjið þær á þráð fyrir vinstra framstykki, fellið af næstu l fyrir opi að framan, prjónið síðan þær 43-47-50-55-60-66 l sem eftir eru (= hægra framstykki). HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka yfir l fyrir hægra framstykki þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm. Fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 2 l 4-4-4-4-6-7 sinnum, 3 l 3-3-3-3-1-0 sinnum og 14-11-11-7-6-2 l 1 sinni = 74-75-78-79-81-82 l. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm fellið af fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6-6-6-6-7-7 l, síðan eru felldar af umf frá hálsi 2 l 2 sinnum í allar stærðir og 1 l 1-1-2-2-2-2 sinnum = 63-64-66-67-68-69 l. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Setjið eitt prjónamerki hér = öxl. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið nú áfram fram og til baka á bakstykki þar til stykkið mælist 3 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l innan við 1 l garðaprjón við hálsmál – LESIÐ ÚTAUKNING = 64-65-67-68-69-70 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Setjið l á þráð og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka 43-47-50-55-60-66 l af þræði á hringprjóna. Byrjið frá röngu (= við op) og haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf í hlið þannig: Fitjið upp 2 l 4-4-4-4-6-7 sinnum, 3 l 3-3-3-3-1-0 sinnum og 14-11-11-7-6-2 l 1 sinni = 74-75-78-79-81-82 l. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm fellið af fyrir hálsmáli í næstu umf frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 6-6-6-6-7-7 l. Fellið síðan af í hverri umf frá hálsi 2 l 2 sinnum í öllum stærðum og 1 l 1-1-2-2-2-2 sinnum = 63-64-66-67-68-69 l. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Setjið eitt prjónamerki í stykkið = öxl. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l innan við 1 l garðaprjón við hálsmál = 64-65-67-68-69-70 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Prjónið nú yfir allar l áður en fitjaðar eru upp 21-21-23-23-25-25 l fyrir hálsmáli, prjónið síðan 64-65-67-68-69-70 l af þræði inn á prjóninn = 149-151-157-159-163-165 l. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm er fellt af fyrir ermum í hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 14-11-11-7-6-2 l 1 sinnum, 3 l 3-3-3-3-1-0 sinnum, 2 l 4-4-4-4-6-7 sinnum = 87-95-101-111-121-133 l. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir klauf í hvorri hlið). Fækkið síðan l í byrjun umf þannig: Fækkið um 1 l í annarri hverri umf 9-8-7-6-4-2 sinnum í hvorri hlið, fækkið síðan um 1 l í hverri umf 5-6-7-7-10-12 sinnum í hvorri hlið og að lokum 2 l í hverri umf 7-8-9-11-12-14 sinnum í hvorri hlið = 31-35-37-41-45-49 l eftir. Prjónið 2 umf garðaprjón og fellið laust af. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl – þar sem prjónamerkin eru. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt í ysta lykkjubogann niður að klauf. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Klippið frá og festið enda. SNÚRA: Klippið 6 þræði ca 270 cm, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút í hvorn enda að óskaðri lengd og klippið endana til (snúran á myndinni er ca 135 cm). Þræðið snúruna í kross í gegnum l frá röngu yfir of á peysu eins og útskýrt er í A.1. ATH: Strikaða línan sýnir snúruna frá röngu á flíkinni! |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluemistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.