Laila Thorp-Rice skrifaði:
Hei. Kan denne modellen strikkes rundt?
07.04.2025 - 05:27DROPS Design svaraði:
Hej Laila, ja det kan du godt :)
08.04.2025 - 15:22
Marilena skrifaði:
Il modello non sembra fatto con ferri numero 5 , ma più piccoli
02.05.2022 - 14:12DROPS Design svaraði:
Buonasera Marilena, deve lavorare con i ferri che le permettono di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!
02.05.2022 - 23:54
Shio skrifaði:
Hallo liebes drops team ich habe probelme mit den randmaschen bzw mit diesen "2 kraus re beidseitig" wird am anfang und am ende jedesmal die randmasche rechts gestrickt? oder wie muß ich das verstehen? habt ihr dafür evtl auch ein video? wäre für eine antwort sehr dankbar lg shio
23.03.2022 - 23:13DROPS Design svaraði:
Liebe Shio, es sind hier 2 Randmaschen kraus rechts, dh so stricken Sie die Hinreichen rechts, und bei den Rückreihen stricken Sie: 2 Maschen rechts, links bis 2 Maschen übrig sind, 2 Maschen rechts, so sind es 2 krausrechte Maschen am Anfang und am Ende der Reihe. Viel Spaß beim stricken!
24.03.2022 - 09:42
Mona skrifaði:
Hei. Jeg feller på armene. etter at jeg har fellt 10 masker midt under armen stikker jeg frem og tilbake samtidig som jeg skal felle 2 masker 3 ganger. Er det 3 ganger totalt el 3 ganger hver side? altså 6masker el 12 masker ?
04.10.2021 - 21:43DROPS Design svaraði:
Hei Mona, Det er 3 ganger i hver side (12 masker). God fornøyelse!
05.10.2021 - 09:05
Bente Madsen skrifaði:
Hvor mange masker skal der tages op rundt i halskanten og hvor mange pinde ret skal der strikkes
12.12.2019 - 19:41DROPS Design svaraði:
Hej Bente, Du strikkede 4 pinde retstrik lige før du lukkede halsmaskerne af, det er dem som er halskanten og der skal ikke strikkes flere masker op til hals. God fornøjelse! :)
16.12.2019 - 15:02
Bente Madsen skrifaði:
Mønster A1 er der 10 masker imellem mønstrene når man skal strikke 2 og flere ved siden af hinanden Eller er der kun 9 masker.
18.11.2019 - 08:51DROPS Design svaraði:
Hej Bente, Ja på 9.pind i A.1 er der 10 masker glatstrik imellem de 2 mønstre. God fornøjelse!
21.11.2019 - 14:48
Karolien skrifaði:
Hallo, Op het rugpand het onderste 'hart' is het midden dus spreekt voor zich waar te beginnen. De 'harten' erboven...hoe weet ik waar ik moet beginnen? Alvast bedankt voor het antwoord.
18.06.2018 - 20:17
Karolien skrifaði:
Hallo, Op het rugpand het onderste 'hart' is het midden dus spreekt voor zich waar te beginnen. De 'harten' erboven...hoe weet ik waar ik moet beginnen? Alvast bedankt voor het antwoord.
18.06.2018 - 20:12DROPS Design svaraði:
Dag Karolien, Dit kun je uittellen m.b.v. de telpatronen. De harten die erboven komen verschuiven 6 steken naar rechts of links t.o.v. het onderste hart.
19.06.2018 - 14:44
Foiratier Christine skrifaði:
Bonsoir Je suis arrivée au devant de cet ouvrage. Les explications disent qu'il faut commencer A2 à 35 cm du début, hors la photo montre que le motif est réalisé après les emmanchures et juste avant de diminuer pour l'encolure. Ma question est : à combien de cm faut-il rebellent commencé A2 SVP. Merci pour votre réponse. Cordialement
18.03.2017 - 21:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Foiratier, on commence A.2 avant les emmanchures, soit en taille S à 35 cm, puis à 40 cm on tricote 2 côtes mousse sur les 5 m de chaque côté et on forme les emmanchures comme pour le dos. Bon tricot!
20.03.2017 - 09:34
Gio skrifaði:
Mi scuso ma ho postato inavvertitamente la mia domanda tra i commenti...
04.03.2017 - 03:00
Sunny Day#sunnydaysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með V-hálsmáli, gatamynstri og klauf í hlið. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki, við handveg og háls): Fækkið l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram handveg og háls. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á eftir 2 eða 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi þær sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l á undan 2 eða 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkju og prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING (á við fyrir miðju undir ermi): Byrjið á 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er á milli þessa 2 l) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað neðan frá og upp í tveimur stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 75-85-91-101-111-123 l á prjóna nr 4 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 37-42-45-50-55-61 l í umf (séð frá réttu) = 38-43-46-51-56-62 l á prjóni eftir prjónamerki, látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á prjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 8-8-7-7-7-7 cm millibili alls 4-4-5-5-5-5 sinnum í hvorri hlið = 67-77-81-91-101-113 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-16-17-14-15-16 cm prjónið nú mynstur eftir A.1 yfir miðju-l – mynstur byrjar frá réttu á eftir prjónamerki mitt í stykkinu (sjá ör í mynstri) – aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með mynstur út að kanti í hvorri hlið alveg eins – passið uppá að það komi eitt heilt (eða hálft hjarta – sjá A.1A og A.1B, þ.e.a.s. A.1A er prjónað hægra megin við stykki og A.1B er prjónað vinstra megin við stykki), innan við kantlykkju í hvorri hlið. Þær l sem ekki ganga jafnt upp í eitt eða hálft hjarta út að hliðum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 5-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af fyrstu 2-4-5-6-7-8 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (þar sem ekki er pláss fyrir eitt heilt hjarta eða hálft hjarta út við handveg þá eru þær l prjónaðar í sléttprjóni). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg innan við kantlykkjur í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig: Fækkið um 1 l alls 1-4-4-7-10-14 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 61-61-63-65-67-69 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 29-29-31-31-33-33 l í umf (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 23-23-25-25-27-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: Fækkið um 1 l alls 3 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 16-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp og prjónið eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 35-37-38-39-40-42 cm – ATH: A.1 er ekki prjónað á framstykki. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir miðju l – mynstrið byrjar frá réttu eftir prjónamerki mitt í stykki (sjá ör í mynstri) – aðrar l eru prjónaðar eins og áður. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 5-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið eins og á bakstykki (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki. V-HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir miðju 9 l fyrir miðju að framan (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá réttu á eftir garðaprjóni eru felldar af 3 miðju-l við miðju að framan fyrir hálsmáli og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir handveg eins og áður og fækkið JAFNFRAMT l fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig: Fækkið um 1 l alls 13-13-14-14-15-15 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 16-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni – ATH: Fyrsta umf er prjónuð frá miðju að framan (= ranga). Byrjið á að prjóna upp 1 l í fyrstu l frá hinni hliðinni og prjónið hana saman við fyrstu l í umf. Þetta er gert svo ekki myndist “hak” neðst niðri í opi. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-34-36-38-40-40 l á sokkaprjóna nr 4 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón – setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 7-6-10-6-6-12 cm er aukið út um 2 mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 12-14-14-15-17-19 sinnum = 56-62-64-68-74-78 l. Þegar ermin mælist 48-47-46-43-42-41 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 4-8-10-12-14-16 l mitt undir ermi. Ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni JAFNFRAMT er fellt af í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 2-2-3-3-3-3 sinnum og 1 l 1-1-2-4-7-8 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-54-54-54-54-54 cm, fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið síðan af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 54-55-55-55-55-55 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma kant í kant yst í lykkjubogann – byrjið efst við handveg og saumið saman þar til ca 10 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Saumið ermar í – leggið ermina inn undir kant í garðaprjóni meðfram handveg og saumið niður fallega svo að kanturinn með garðaprjóni sjáist. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnydaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.