DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 170-18
DROPS Design: Mynstur nr w-587
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M/L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
500-600-700-750-800 g nr 16, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í tveimur hlutum. Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 91-103-115-127-139 l á hringprjóna nr 3,5 með Paris. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 og endið á 3 kantlykkjum í garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Í 7. umf í mynstri er prjónuð 1 l í A.1 í sléttprjóni í lok umf.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, endurtakið A.2A yfir næstu 72-84-96-108-120 l (= 6-7-8-9-10 mynstureiningar 12 l), prjónið A.2B (= 13 l) og endið á 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er aftur prjónað A.1 alveg eins og síðast með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næst síðustu umf í A.1 (þ.e.a.s. frá réttu), endar klaufin og fitjuð er upp 1 ný l í lok þessarar umf (kantlykkja fyrir saum). Prjónið síðustu umf í A.1, fækkið JAFNFRAMT 6 l jafnt yfir í öllum stærðum og fitjið upp 1 nýja l í lok umf (kantlykkja fyrir saum) = 87-99-111-123-135 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur þannig (1. umf = rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.4A yfir næstu 15-21-27-33-39 l, prjónið A.3A (= 55 l), endurtakið A.4B yfir næstu 15-21-27-33-39 l og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3A hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er endurtekið A.3B yfir miðju 55 l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36 cm fitjið upp 5 nýjar l í lok 2 næstu umf fyrir ermar = 97-109-121-133-145 l á prjóni. Haldið síðan áfram með mynstur þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur á ermum), endurtakið A.4A yfir næstu 18-24-30-36-42 l (passið uppá að mynstur passi núna), haldið áfram með A.3B yfir næstu 55 l eins og áður, endurtakið A.4B yfir næstu 18-24-30-36-42 l og endið á 3 kantlykkjum í garðaprjóni (= kantur á ermum). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 54-56-58-60-62 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið A.1 fram og til baka með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63 cm fellið af miðju 27-27-31-31-31 l fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið um 1 l fyrir hálsmáli í byrjun á 2 næstu umf frá hálsi = 33-39-43-49-55 l eftir á öxl. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt LAUST af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm. Setjið nú miðju 15-15-19-19-19 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið l fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fækkið um 2 l 2 sinnum og 1 l 4 sinnum = 33-39-43-49-55 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á prjóna nr 3,5 og prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við kant á ermum. Þegar A.1 hefur verið prjónað er fellt LAUST af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður að klauf.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 94 til 114 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 3,5 með Paris. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Fellið síðan laust af með sl.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Aliceopays wrote:

Bonjour, quelqu'un aurait des photos du mod_le en gros plan sur les differentes parties de la dentelle ? je traville mieux au visuel et le modele est photographié trop loin, c'est difficile avec seulement le diagramme ! Merci

16.06.2023 - 12:40

DROPS Design answered:

Bonjour Aliceopays, nous avons ajouté quelques photos supplémentaires, elles pourront peut-être vous aider. Retrouvez également ici comment lire un diagramme. Bon tricot!

27.07.2023 - 09:14

country flag Jb wrote:

If i start with 127 stiches on the needles and row 7 in chart A1 says to knit 2 together accross the row how can i still have over 100 sriches for the next direction?

11.07.2021 - 05:07

DROPS Design answered:

Dear Jb, work the 127 sts as follows: 3 sts in garter stitch, repeat (K2 tog, yarn over) a total of 60 times (= over the next 120 sts) until 4 sts remain, knit 1stitch and end with 3 sts in garter stitch = there are still 127 sts on needle Happy knitting!

12.07.2021 - 07:35

country flag Yasmine wrote:

Merci pour ce très joli modèle ! Après avoir monté les mailles, je tricote le 1er rang qui se trouve à l’envers de l’ouvrage Par conséquent, comment l’avant dernier rang est-il à l’endroit de l’ouvrage (d’après vos explications) Merci de m’éclairer ! Par ailleurs, que signifie « NOTE: Au 7ème rang du diagramme, tricoter la 1ère m de A.1 en jersey à la fin du rang. » Merci pour votre aide !

11.05.2021 - 19:54

DROPS Design answered:

Bonjour Yasmine, dans ce modèle, le premier rang se tricote sur l'endroit comme indiqué, avec le 1er rang du diagramme = sur l'endroit (rangs pairs = envers). Au 7ème rang de A.1, vous répétez A.1 jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles, tricotez 1 maille jersey (= à l'endroit sur l'endroit) et 3 mailles point mousse. Bon tricot!

12.05.2021 - 07:01

country flag Deli Ehwald wrote:

Wie fasse ich die Maschen am Halsausschnitt auf? Ist die strickarbeit dabei auf der rechten Seite? Und fasse ich die zuvor abgeketteten Maschen vorn oder hinten auf?

10.04.2021 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehwald, die Maschen vom Feden stricken Sie so, dann fassen Sie die Maschen so quer und so seitlich. Viel Spaß beim stricken!

12.04.2021 - 08:30

country flag Deli Ehwald wrote:

Werden bei drops 170-18 keine Randmaschen gestrickt?

11.03.2021 - 14:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehwald, bei diesem Modell werden die 3 ersten und die 3 letzten Maschen jeder Reihe (= Hin- sowie Rückreihe) kraus rechts gestrickt, dh keine extra Randmaschen sind anzuschlagen. Viel Spaß beim stricken!

11.03.2021 - 14:37

country flag Deli Ehwald wrote:

Bei drops 170-18 werden im Muster A1 in der 7. REIHE immer 2 Maschen zusammen gestrickt. Dadurch halbiert sich die Maschenanzahl auf der Nadel. Aber das kann doch nicht sein.

10.03.2021 - 23:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ehwald, bei der 7. Reihe in A.1 stricken Sie die ganze Reihe (2 Maschen rechts zusammen, 1 Umschlag), so bleibt die Maschenanzahl gleich, denn der Umschlag die Abnahme ausgleichen. Viel Spaß beim stricken!

11.03.2021 - 08:21

country flag Dea wrote:

Grazie mille, siete gentilissimi

19.05.2020 - 16:56

country flag Dea wrote:

Buongiorno, anche questo modello è bellissimo, vorrei sapere se si può lavorare in tondo senza spacchi laterali e fino a dove? Grazie

19.05.2020 - 10:33

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Può lavorare in tondo, senza spacchi laterali, fino a quando non vengono avviate le 5 maglie ai lati per le maniche. Buon lavoro!

19.05.2020 - 13:19

country flag Ros-Marie wrote:

Hej! Har beställt garn till denna objekt, undrar hur jag räknar maskorna, vill sticka del hel till armhålan? Alltså runt på en rundsticka. Mvh Ros-Marie

22.07.2019 - 07:39

country flag Gunda Poll wrote:

Einfach fantastisch, diese Kollektion, wo soll ich nur anfangen, eins schöner als das andere, herrlich, danke, tausendmal danke!!!

10.02.2016 - 09:23