Elke Klünder skrifaði:
Sorry, ich hab Zweifel, ob mein Rückenteil so stimmt. Könnt ihr bitte eine Schnittzeichnung vom Rückenteil anfügen. Ich weiss nämlich nicht, ob mein Knopfloch stimmt. Was bedeutet " hintere Mitte"? Vielen Dank.
31.01.2017 - 07:42DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Klünder, das Knopfloch muss bei der hinteren Mitte gestrickt werden, dh am Ende einer Hinreihe (von dem Schulter/Armausschnitt zur Schlitz. Viel Spaß beim stricken!
31.01.2017 - 09:28
Irene skrifaði:
Als je A1 aan het breien bent, moet je dan 1 tricot steek aan het begin van de naald houden, of wordt het steeds meer door de meerderingen? Als je 1 tricotsteek houd gaan de gaatjes iets verspringen en dat zien ik niet op de foto
02.07.2016 - 10:11DROPS Design svaraði:
Hoi Irene. Ik zou de nieuwe st steeds in tricotst breien en gaandeweg meebreien in het patroon als de st passen en niet het patroon verspringen.
05.07.2016 - 15:08
Corrie Janssen skrifaði:
Kan deze top ook op gewone breinaalden gebreid worden. Zo ja, hoeveel steken moet ik dan op zetten
25.06.2016 - 15:20DROPS Design svaraði:
Hoi Corrie. Kijk hier hoe je een patroon kan aanpassen voor rechte naalden. Veel breiplezier!
27.06.2016 - 11:31
Ernestina Jiménez Barroso skrifaði:
Hola,he empezado el dros 170—24, pero creo que no esta bien,no me queda muy claro en que lado tengo que aumentar o disminuir y tiene una forma extraña,no habria ningún video por el que me pueda guiar? Muchas gracias
25.06.2016 - 04:11DROPS Design svaraði:
Hola Ernestina. El patrón está correcto. En la parte del material tienes el apartado "Vídeos" que te pueden ayudar a solucionar los problemas que surjan durante la realización del modelo. Te recomiendo marcar bien donde trabajas la sisa y donde el escote para no confundirte al trabajar las dism y los aumentos.
26.06.2016 - 09:23
ErnestinaJimenez Barroso skrifaði:
Hola!!!! no entiendo muy bien vuestro sistema, por ejemplo, este jersey me gusta mucho pero no puedo imprimirlo porque mi impresora no funciona, puedo pasarlo a un pendrive para imprimirlo en una copisteria? de que manera? y el precio que está arriba a la derecha es lo que tengo que pagar por el patrón?. me gustan muchos patrones y os agradeceria saber como tenerlos. Muchas gracias
22.05.2016 - 19:36DROPS Design svaraði:
Hola Ernestina. Los patrones de DROPS son todos gratis. Puedes imprimirlos directamente o pasarlos a un pendrive. Bajo el material tienes la pestaña "Patrón imprimir" o "Foto imprimir", sigue los pasos indicados. El precio que ves a la derecha arriba es el precio aprox del material necesario para hacer el modelo.
23.05.2016 - 08:03
Julie West skrifaði:
Hi can you tell me the approximate sizes of L and XL please. Many thanks
16.04.2016 - 19:05DROPS Design svaraði:
Hi Julie, you can find a measurement chart scrolling down the page: compare it with a garment you have and you can find the right size. Happy knitting!
17.04.2016 - 14:48
Anne skrifaði:
De beschrijving van waar het knoopsgat moet komen is onduidelijk. In eerste instantie heb ik deze gebreid in op 1,5 cm in het linker schouderbandje, in plaats van bij de split. Hopelijk veranderen jullie dat in de beschrijving van het patroon, zodat anderen niet dezelfde fout maken. Ik zag bij de opmerkingen dat ik niet de enige was die daar tegenaan gelopen was. Aanpassen dus!
05.03.2016 - 15:05DROPS Design svaraði:
Hoi Anne. Er staat in het patroon: Maak 1 knoopsgat op het linkerachterpand aan de bovenkant van de split middenachter bij een hoogte van 1½ cm
09.03.2016 - 09:39
Anja Karina Kloth skrifaði:
Ich muss Crissi Schöpflin leider uneingeschränkt recht geben. Die Angabe, wo das Knopfloch hinkommt, ist wirklich sehr undeutlich, ich würde sogar so weit gehen und sagen, das ist ein handfester Fehler in der Anleitung. Neulinge können darüber verzweifeln.
25.02.2016 - 21:01DROPS Design svaraði:
Im Infofeld ist genau angegeben, wo das Knopfloch platziert wird: 1 Knopfloch am linken Rückenteil oben am Schlitz an der hinteren Mitte arb, wenn die Arb eine Länge von 1½ cm hat und im Anleitungstext steht an der betreffenden Stelle: Das KNOPFLOCH nicht vergessen.
10.03.2016 - 08:33
Crissi Schöpflin skrifaði:
Nachdem ich die Anleitung noch öfter gelesen habe, ist mir mein Fehler aufgefallen, aber ich finde es ist verwirrend, selbst für mich, die ich über 50 Jahre stricke, wie die Angabe wo das Knopfloch gestrickt werden soll, gerade für Strickneulinge! Wäre es nicht sinnvoller, es in den Text direkt reinzuschreiben, statt oben bei den Tipps? So wie es geschrieben ist, ist man der Meinung, das Knopfloch wird nach dem Anschlag nach 1,5 cm eingearbeitet, was bedeutet, es ist im Träger.
12.02.2016 - 07:17
Crissi Schöpflin skrifaði:
Ich glaube, dass bei der Anleitung die Einarbeitung des Knopfloches falsch ist, denn es sitzt bei mir nach 1,5 cm jetzt im Träger und sollte doch eigentlich weiter unten sein, dort wo die Maschen für den Halsausschnitt angeschlagen wurden.
11.02.2016 - 22:06
Holiday Bliss#holidayblisstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, garðaprjóni og klauf við miðju að aftan. Prjónaður ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 170-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að sleppa við göt. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn,prjónið 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo EKKI myndist gat. Prjónið síðan nýjar l með sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 1 hnappagati á vinstra bakstykki efst í klauf við miðju að aftan þegar stykkið mælist 1½ cm þannig: Prjónið 3. og 4. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka í stykkjum, síðan er mynstrið prjónað í hring. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 10-12-12-13-13-14 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, sláið uppá prjóninn (= 1 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-1, prjónið garðaprjón yfir þær 7-9-9-10-10-11 l sem eftir eru og fitjið upp 1 nýja l fyrir hálsmáli í lok umf. Prjónið 1 umf til baka. Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 14-15-15-16-16-17 nýjar l fyrir hálsmáli = 26-29-29-31-31-33 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með útaukningu fyrir handveg, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað og aukið út fyrir klauf fyrir miðju að aftan þannig: HANDVEGUR: Endurtakið útaukningu fyrir handveg í 4. hverri umf 10-12-13-11-6-6 sinnum til viðbótar, síðan í annarri hverri umf 7-5-6-12-24-26 sinnum. KLAUF VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN: Fækkið l fyrir klauf þannig (frá réttu): Prjónið þar til 5 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman,3 l garðaprjón. Endurtakið þessa úrtöku í 4. hverri umf 3 sinnum til viðbótar. Síðan þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm frá þar sem nýjar l voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli er aukið út þannig (frá réttu): Prjónið slétt þar til 3 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l garðaprjón. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 3 sinnum til viðbótar. Þegar allar útaukningar fyrir handveg hafa verið gerðar eru 43-46-48-54-61-65 l á vinstra bakstykki. Síðasta umf er prjónuð frá réttu. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. Geymið stykkið og prjónið hægra bakstykki. HÆGRA BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið er út um l fyrir handveg innan við 3 l garðaprjón í lok umf frá réttu og fitjaðar eru upp l fyrir hálsmáli í lok umf frá röngu. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 43-46-48-54-61-65 l á hægra bakstykki. Stillið af eftir vinstra bakstykki. Síðasta umf er prjónuð frá réttu, fitjið upp 3-4-5-6-6-6 l í lok þessara umf, snúið stykkinu við og prjónið frá röngu þannig: Prjónið garðaprjón yfir nýjar 3-4-5-6-6-6 l, garðaprjón yfir 43-46-48-54-61-65 l frá hægra bakstykki, fitjið upp 1-0-1-1-1-0 nýjar l, prjónið síðan garðaprjón yfir næstu 43-46-48-54-61-65 l frá vinstra bakstykki frá röngu. Fitjið upp 3-4-5-6-6-6 l í lok umf. Nú eru 93-100-107-121-135-142 á bakstykki. Haldið síðan áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 24-25-27-28-30-31 cm frá öxl, passið uppá að síðasta umf er prjónuð frá röngu. Setjið allar l á þráð og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Vinstri öxl: Fitjið upp 10-12-12-13-13-14 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 3 l garðaprjón. Haldið nú áfram með útaukningu fyrir handveg á sama hátt og á hægra bakstykki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-10-10-12-12 cm – passið uppá að síðasta umf sé prjónuð frá röngu, setjið l á þráð og prjónið hægri öxl. Hægri öxl: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri öxl, nema spegilmynd. Aukið út l fyrir handveg á sama hátt og á vinstra bakstykki (þ.e.a.s. innan við 3 l garðaprjón í byrjun umf frá réttu). Þegar stykkið mælist 8-8-10-10-12-12 cm eru fitjaðar upp 31-32-33-35-35-36 l fyrir hálsmáli í lok umf frá réttu, prjónið síðan l af þræði (= vinstri öxl) inn á prjóna. Haldið síðan áfram fram og til baka með garðaprjóni. ATH: Útaukning fyrir handveg heldur áfram eins og áður. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir handveg eru 87-92-97-109-123-130 l í umf. Passið að síðasta umf sé frá röngu, fitjið upp 3-4-5-6-6-6 l í lok umf, snúið við og prjónið sl yfir allar l, fitjið upp 3-4-5-6-6-6 l í lok umf = 93-100-107-121-135-142 l á framstykki. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. Haldið síðan áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 24-25-27-28-30-31 cm frá öxl, stillið af við bakstykki (síðasta umf er prjónuð frá röngu). FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er nú prjónað í hring. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið sl yfir 93-100-107-121-135-142 l á framstykki, prjónið síðan l af þræði á bakstykki inn á sama hringprjón = 186-200-214-242-270-284 l í umf. Setjið eitt prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis (= 93-100-107-121-135-142 l á milli prjónamerkja). Fyrra prjónamerkið er í byrjun umf. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 l sléttprjón, prjónið A.1 (= 7 l) 13-14-15-17-19-20 sinnum á breiddina, 1 l sléttprjón, (prjónamerki er staðsett hér), 1 l sléttprjón, A.1 13-14-15-17-19-20 sinnum á breidd, 1 l sléttprjón. Haldið síðan svona áfram. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á stykki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-3½-4-3 cm millibili 7-8-9-7-6-9 sinnum til viðbótar = 218-236-254-274-298-324 l. Þegar stykkið mælist 31-32-32-33-33-34 cm, stillið af fallega miðað við mynstur, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. Stykkið mælist alls ca 56-58-60-62-64-66 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman garðaprjón undir hvorum handveg í ysta lykkjubogann (= hliðarsaumar). Saumið tölu efst í klauf á hægra bakstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #holidayblisstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.