Wendie Ranner skrifaði:
Nearly finished, now it says increase each side if the arrows. There’s five arrow 2 of which the pattern is done six time, so that make 15 (markers) where are the other two please. Thank you
30.08.2019 - 01:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ranner, that's right, pattern has been edited, there are 15 markers and then 30 sts increased. Happy knitting!
11.09.2019 - 14:04
Bernadette skrifaði:
Are the tips created in the last row of increases on either side of the 17 markers, the K on WS? Or do those increases occur in either of the stockinette rows? I need clarification please.
10.11.2018 - 11:30DROPS Design svaraði:
Dear Bernadette, the tips are created with the yo's on each side of the stitch with the arrow in diagrams A.7, A.8 and A.9 - + the YO's on each side of the sts with markers when working the last row K from WS before bind off. Happy knitting!
12.11.2018 - 08:55
Loup skrifaði:
A1 ist nach der mittelmasche gemeint, dass man A1 spiegelverkehrt stricken muss? Also zuerst das zusammen stricken Umschlag Masche rechts Umschlag zusammen stricken 3 rechte Maschen gemeint? Vom Foto kann man es nicht ableiten, es würde aber Sinn machen.
04.12.2017 - 20:46DROPS Design svaraði:
Lieber Loup, so können Sie wahrscheinlich auch stricken, dh spiegelverkehrt. Viel Spaß beim stricken!
05.12.2017 - 08:28
Monico Michèle skrifaði:
En ce qui concerne votre modèle châle 0-7718 et plus particulièrement les diagrammes 3,4 et 5 je me trouve dans l'impossibilité de le réaliser car dès la 2ème ligne il manque 2 mailles et ce jusqu'à la fin de ces diagrammes. J'ai testé sur un nombre de maille réduit il s'avère qu'en suivant vos explications le dessin n'a strictement rien à voir avec le modèle. Peut être y a t il une erreur ??? Pourriez vous éclairer ma lanterne ??? A l'avance merci. Michèle
19.09.2017 - 10:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Monico, tricotez ainsi les 183 m: 1 m lis, A.3 (= 1 m), 11 x A.4 (= 11 x 8 m), A.5 (= 1 m), 1 m centrale, A.3 (= 1 m), 11 x A.4 (= 11 x 8 m), A.5 (= 1 m), 1 m lis, soit: 1 + 1 + 88 + 1 + 1 + 1 + 88 + 1 + 1 = 183 m. Bon tricot!
19.09.2017 - 13:26
Swan Lake |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri úr DROPS Alpaca.
DROPS Extra 0-1178 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður slétt, sá seinni er látinn falla niður svo það myndist stórt gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður brugðið, sá seinni er látinn falla niður svo það myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður. SJAL: Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið fyrstu umf þannig (= rétta): 2 l sl í hverja l = 6 l. Prjónið 1 umf slétt til baka. Í næstu umf er prjónað þannig: 2 l sl í hverja l þar til 1 l er eftir, 1 l sl = 11 l. Setjið eitt prjónamerki í 6. l = miðjulykkja. Haldið síðan áfram í GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-1, þannig: 1 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 l sl = 15 l. Haldið áfram að auka út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið og hvoru megin við miðjulykkja með prjónamerki í hverri umf frá réttu til loka – LESIÐ ÚTAUKNING-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar alls 35 l eru á prjóni er prjónað mynstur (kantlykkjur í garðaprjóni og útaukning heldur áfram eins og áður) þannig: A.1 (= 8 l) fram að miðjulykkju, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja, A.1. ATH: lykkjur með mynstri A.1 sem ekki ganga jafnt upp, þ.e.a.s. eftir útaukningu í byrjun umf og á eftir miðjulykkju eru prjónaðar í sléttprjóni þar til nægilega margar l eru í eina nýja mynstureiningu A.1. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað 8 sinnum á hæðina = 163 l. Stykkið mælist ca 23 cm í prjónstefnu. Prjónið nú A.2 (= 8 l) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og miðjulykkju, útaukning heldur áfram eins og áður. ATH: í 5. umf í A.2 eru l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri á undan útaukningu á undan miðjulykkju og í lok umf prjónaðar slétt. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 183 l á prjóni. Prjónið nú mynstur (kantlykkjur og útaukning heldur áfram eins og áður): * A.3 (= 1 l í 1. umf), A.4 (= 8 l) þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.5 (= 1 l í 1. umf) *, endurtakið frá *-* eftir útaukningu hvoru megin við miðjulykkju. Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur innan við kantlykkju og hvoru megin við miðjulykkju er prjónað A.4 yfir þessar útauknar lykkjur (þ.e.a.s. yfir hverja A.3 og A.5). Haldið svona áfram þar til A.3-A.5 hefur verið prjónað 5 sinnum á hæðina = 343 l á prjóni. Prjónið nú A.2 innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og miðjulykkju, útaukning heldur áfram eins og áður. ATH: Í 5. umf í A.2 eru l sem ekki ganga jafnt upp í mynstur á undan útaukningu á undan miðjulykkju og í lok umf prjónaðar slétt. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 363 l á prjóni. Stykkið mælist ca 69 cm meðfram miðjulykkju. Prjónið 1 umf sléttprjón frá réttu (kantlykkja og útaukning heldur áfram eins og áður), JAFNFRAMT er aukið út um 14 l jafnt yfir (þ.e.a.s. 7 l hvoru megin við miðjulykkju) 381 l. Prjónið 1 umf br frá röngu innan við 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Nú er prjónað mynstur (ATH: Kantlykkja með garðaprjón + útaukning teiknuð í mynstri) þannig: A.6 (= 15 l, A.7 (= 26 l) 6 sinnum á breidd, A.8 (= 19 l), A.9 (= 20 l), A.10 (= 26 l) 6 sinnum á breidd, A.11 (= 15 l). Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt mynstrið hefur verið prjónað á hæðina – ATH: Passið vel uppá að auka uppsláttinn hvoru megin við hverja l með ör í mynstri. Þetta er gert til þess að fá horn meðfram brugðnu l í kanti á sjali. Þegar A.6-A.11 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 497 l á prjóni. Setjið nú 1 prjónamerki í hverja l með ör í mynstri (= 15 prjónamerki). Prjónið 2 umf sléttprjón (útaukning heldur áfram eins og áður). Endið á 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við hverja l með prjónamerki í (= 30 l fleiri). Fellið laust af. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1178
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.