DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 165-11
DROPS Design: Mynstur nr bs-084
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál: Lengd fyrir miðju: Ca 73 cm. Breidd: Ca 146 cm.

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300 gr litur nr 4088, bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MÆLING:
Alltaf er mælt frá fyrstu ll sem hekluð var og niður meðfram horni á sjali.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með tbst, skiptið út fyrsta tbst með 4 ll.
Í byrjun á hverri umf með þbst er fyrsta þbst skipt út fyrir 5 ll + 1 ll (til þess að kanturinn verði ekki of stífur) = 6 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.

ÚTAUKNING Á ST-HÓP:
Heklið 2 st í fyrsta st, 1 ll (= horn), hoppið yfir 1 ll, 2 st í næsta st = 2 st fleiri í horni. ATH: Í umf 3 í A.2 er aukið út með tbst í stað st!

ÚTAUKNING:
Í hverri umf með st (og A.2) er aukið út með því að hekla 2 st í fyrstu og síðustu l í hverri umf og hekluð er útaukning á st-hóp í horni á sjali (= 4 st fleiri í umf). ATH: Í umf 3 í A.2 er aukið út um tbst í stað st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið er heklað fram og til baka.

SJAL:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið eftir mynstri A.1 þannig: Heklið 7 ll (= 1 þbst + 1 ll) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, með BabyAlpaca Silk með heklunál nr 3,5. Heklið 1 ll, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í fyrstu ll í umf, heklið 2 ll, setjið eitt prjónamerki (= horn á sjali) – fylgir með til loka, 2 ll, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í fyrstu ll í umf, 1 þbst í fyrstu ll.
UMFERÐ 2: Heklið 8 ll, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll, 1 tbst um næsta ll-boga (= horn), 2 ll, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll, 1 þbst í 6. ll frá fyrri umf.
UMFERÐ 3: Heklið 8 ll, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í síðustu ll frá fyrri umf, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í miðju tbst frá fyrri umf, 4 ll (= horn), (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í sama tbst, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 þbst, 2 ll, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í 6. ll frá fyrri umf, 2 ll, 1 þbst í 6. ll frá fyrri umf.
UMFERÐ 4: Heklið A.Z þannig: 8 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll.
Heklið A.1a þannig: 1 tbst í miðju á 3 tbst, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll. Heklið 1 tbst um næsta ll-boga (= horn).
Eftir það er A.1b heklað þannig: 2 ll, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll, 1 tbst í miðju á næsta 3 tbst.
Heklið A.X þannig: 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll, 1 þbst í 6. ll frá fyrri umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: Hekli A.X þannig: 8 ll, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í síðustu ll frá fyrri umf, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll.
Heklið A.1b þannig: Hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta tbst, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll. Hoppið yfir 1 ll-boga (1 tbst, 4 ll, 1 tbst í miðju tbst á sjali, 4 ll (= horn).
Heklið A.1a þannig: (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í sama tbst, hoppið yfir 1 ll-boga, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta tbst, hoppið yfir 1 ll-boga.
Heklið A.Z þannig: 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í 6. ll frá fyrri umf, 2 ll, 1 þbst í 6. ll.
UMFERÐ 6-11: Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er frá í umf 4 og 5, JAFNFRAMT er heklað A.1a og A.1b yfir nýju útauknu l í A.X og A.Z. Nú eru 5 tbst-hópar á hæðina meðfram horni á sjali og stykkið mælist ca 24 cm – LESIÐ MÆLING!

Heklið A.2 þannig: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið 1 st að síðasta tbst frá fyrri umf (= 1 st fleiri), haldið áfram með 1 st í hvern tbst og 1 st um hverja ll fram að miðja ll-boga (= horn), heklið síðan 1 st um ll-bogann, 2 st í fyrsta af tveimur miðju ll (= 1 st fleiri), 1 ll, 2 st í næstu ll (= 1 st fleiri, 1 st um sama ll-boga). Haldið áfram með 1 st í hvern tbst og 1 st um hverja ll og heklið 2 st í 6. ll frá byrjun fyrri umf (= 1 st fleiri) = alls 4 st fleiri og 156 st í umf (= 78 st hvoru megin við horn).
Haldið síðan áfram frá umf 2 í A.2, JAFNFRAMT heldur áfram sama útaukning – LESIÐ ÚTAUKNING og heklið einn ÚTAUKNING Á ST-HÓP- sjá útskýringu að ofan, með byrjun á st á undan ll í horni á sjali. ATH: Í umf 3 er heklað 1 ll á undan útaukningu á st-hóp og á undan síðustu útaukningu í umf þannig að mynstrið verði samhverft! (Þ.e.a.s. aukið er út um 2 auka st í næstu umf þar sem heklaður er 1 st um þessa 2 auka ll). Þegar allt A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 174 st í umf. Heklið síðan 5 umf í A.2 1 sinni til viðbótar á hæðina alveg eins (= 22 st fleiri) = 198 st.

Nú er haldið áfram með mynstur eins og í byrjun á sjali þannig – sjá útskýringu A.3-A.5:
UMFERÐ 1: Heklið 8 ll, * (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 1 st, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta st (= fyrsti st af 2 miðju st), 4 ll (= horn), (1 tbst, 4 ll, 1 tbst í næsta st (= hinir st af 2 miðju st), ** 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st, hoppið yfir 2 st, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst), ** 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, (= 1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta st **, endurtakið frá **-** 11 sinnum til viðbótar, 2 ll, 1 þbst í síðasta st í umf.
UMFERÐ 2: Heklið 8 ll, hoppið yfir 1 ll-boga * 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll, 1 tbst í miðju á 3 st, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 7 tbst um næsta ll-boga, 2 ll, 1 tbst um næsta ll-boga (= horn) 2 ll, 7 tbst um næsta ll-boga, ** 2 ll, 1 tbst í miðju á 3 st, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 7 tbst um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 11 sinnum til viðbótar, 2 ll, 1 tbst í 6. ll frá fyrri umf.
UMFERÐ 3: Heklið 8 ll, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í síðustu ll frá fyrri umf, * 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta tbst, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 2 ll, 1 tbst í hvern og einn af miðju 3 tbst, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta tbst, 4 ll (= horn), (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í sama tbst, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll, ** hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í næsta tbst, hoppið yfir 1 ll-boga, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst, 2 ll ** endurtakið frá **-** 11 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 1 ll-boga, (1 tbst, 4 ll, 1 tbst) í 6. ll frá fyrri umf, 2 ll, 1 þbst í sömu ll.

Heklið A.2 þannig: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið 1 st til viðbótar í síðasta tbst frá fyrri umf (= 1 st fleiri), haldið áfram með 1 st í hvern tbst og 1 st um hverja ll fram að miðju ll-boga á sjali (= horn), heklið síðan 1 st um ll-boga, 2 st í fyrsta af tveimur miðju-ll (= 1 st fleir), 1 ll, 2 st í næsta ll (= 1 st fleiri), 1 st um sama ll-boga. Haldið áfram með 1 st í hvern tbst og 1 st um hverja ll og heklið 2 st í 6. ll frá byrjun fyrri umf (= 1 st fleiri) = 364 st í umf (= 182 st hvoru megin við horn).
Haldið áfram frá umf 2 í A.2, JAFNFRAMT er haldið áfram með sömu útaukningu og heklið eina ÚTAUKNINGU Á ST-HÓP – sjá útskýringu að ofan, með byrjun á st á undan ll í horni á sjali. ATH: Í umf 3 er hekluð 1 ll á undan útaukningu á st-hóp og á undan síðustu útaukningu í umf þannig að það verði samhverft! Þ.e.a.s. aukið er út um 2 st í næstu umf er heklaður 1 st um þessar 2 ll, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8 st jafnt yfir (þ.e.a.s. 4 st hvoru megin við horn) = 390 st í umf.

Haldið áfram frá ör í mynstri A.3, A.4 og A.5 alveg eins og áður nema nú er heklað A.3 24 sinnum á breiddina á undan A.4 (= útaukning í horni), og A.5 24 sinnum á breiddina á eftir A.4. Þegar A.3-A.5 hefur verið heklað á hæðina heldur mynstrið og útaukning á fram eins og útskýrt er í umf 2-5 í mynstri þar til stykkið mælist alls 75 cm meðfram horni – stillið af að endað er í einni umf eins og 4. umf í mynstri. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.10.2016
Haldið áfram frá umf 2 í A.2, JAFNFRAMT er haldið áfram með sömu útaukningu og heklið eina ÚTAUKNINGU Á ST-HÓP – sjá skýringu að ofan, með byrjun á st á undan ll í horni á sjali. ATH: Í umf 3 er hekluð 1 ll á undan útaukningu á st-hóp og á undan síðustu útaukningu í umf þannig að það verði samhverft! Þ.e.a.s. aukið er út um 2 st í næstu umf er heklaður 1 st um þessar 2 ll, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8 st jafnt yfir (þ.e.a.s. 4 st hvoru megin við horn) = 390 st í umf.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 6 ll
symbols = 1 st
symbols = 1 st um ll-boga
symbols = 1 st er heklaður aftan í l frá réttu, 1 st heklaður framan í l frá röngu
symbols = 1 tbst
symbols = 1 tbst um ll-boga
symbols = 1 tbst um miðju af 3 st
symbols = 1 tbst í l að neðan
symbols = 7 tbst um ll-boga að neðan
symbols = 2 ll, 1 tbst í hvern og einn af miðju 3 tbst, 2 ll
symbols = 1 tbst í l að neðan, 4 ll, 1 tbst í sömu l
symbols = byrjun á umf með ör
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Muriel Lorenzetti wrote:

Quand j'arrive au 11eme rang, si je mesure mon châle verticalement, de la pointe, le long des 5 groupes de DB, mon châle ne mesure que 19 cm et non 24. Est ce normal ? Est ce ainsi que je dois le mesurer ? Merci pour votre réponse Muriel

16.08.2022 - 21:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lorenzetti, effectivement, c'est bien ainsi qu'il faut mesurer - qu'en est-il de votre échantillon? Avez-vous bien vos 22 brides en largeur et 12 rangs de brides pour 10 x 10 cm? Vous pouvez essayer avec un crochet plus gros si besoin ou bien essayer d'étirer davantage vos mailles en longueur. Bon crochet!

17.08.2022 - 08:11

country flag Silvia wrote:

Als A2 een keer in de hoogte is gehaakt, zijn er 174 stk op de toer. A2 nog een keer is 22 stk gemeerderd. 174 + 22 = 196 stk totaal en geen 198 stk wat in het patroon staat.

05.07.2022 - 19:05

country flag Takako wrote:

Thank you for answering! I am looking at US version and is part of it says “double dc” INC dc-GROUP and INCREASE TIP. Sorry I am now more confused. About increasing 22 sts, as your team answered to other people’s question, I figured out that 22 sts includes extra 2 sts on 3rd row of A.2.(4, 4, 6, 4, 4)increasing sts counts. So increasing 24 sts eventually, increase 6 sts on 4th row(next row of 3rd row)? Thank you very much.

30.10.2021 - 08:54

DROPS Design answered:

Dear Takako, double dc is a separate stitch, it's a dc with 2 yarn overs (instead of 1, which would be the normal dc). 22 stitches is the total amount of increased stitches after working 5 rows of A.2. Happy knitting!

01.11.2021 - 13:45

country flag Takako wrote:

Sorry for multiple posts, but what is double dc as mentioned at the INC dc-GROUP and INCREASE TIP? Are those same as 2 dcs together?

29.10.2021 - 17:08

DROPS Design answered:

Dear Takako, which version are you reading (British or US?) Happy Stitching!

30.10.2021 - 03:28

country flag Takako wrote:

Hello, I need a help with first A.2, how can you get 198 sts, after increased 22 sts to 174 sts? Not 196 sts? Thanks for your help in advance!

29.10.2021 - 17:01

DROPS Design answered:

Dear Takako, when doing the A.2 pattern, did you counted the increase h enote mentions? ("NOTE: On 3rd work 1 ch before inc tr-group and before the last inc on row so that the pattern is symmetrical. (I.e. 2 extra tr are inc on next row when 1 tr is worked around these 2 extra ch). " That might be the missing 2 stitches. Happy Stitching!

30.10.2021 - 03:25

country flag Esperanza wrote:

Trabajo terminado, con dudas con el patrón, pero al final preguntando y probando pude terminarlo

01.07.2021 - 18:40

country flag Sanne wrote:

Nu har jeg hæklet utallige indviklede sjaler, da der skal være udfordring i det. det må man sige der er her. Aldrig har jeg oplevet en mere rodet og uoverskuelig opskrift. hækle ihver af de trdbst som ikke findes. men hvor mange af de midterste. 3, 5 eller 1. man roder rundt i diagrammer, som ikke er ordentligt beskrevet. er nået til 3 række, og er allerede dybt frustreret. har sat teksten i dokument, så den kunne splittes og blive bare en anelse overskuelig.\r\ner ellers habil hækler

17.01.2021 - 12:08

country flag Esperanza wrote:

Al hacer A2 por segunda vez, una vez hecha la quinta vuelta pone continuar con A2 a partir de la segunda vuelta, para después continuar con el trabajo has el final según los diagramas A3,A4 y A5, todo eso lo entiendo, pero si veo la foto del chal, parece que el segundo grupo de A2 solo se trabaja las 5 vueltas sin continuar a partir de la segunda vuelta de A2.¿ que es lo correcto?

02.01.2021 - 00:26

DROPS Design answered:

Hola Esperanza. El patrón es correcto. La foto es solo para dar una visión general de la prenda. Tienes que trabajar según las explicaciones del patrón.

03.01.2021 - 16:28

country flag Malene wrote:

Hejsa, jeg har hæklet mange sjaler, tæpper mv men denne opskrift har jeg forsøgt forfra på 4 gange og jeg kan stadig ikke få teksten til at gå logisk op med hvordan mønstret ser ud. Synes ikke at det hænger sammen og synes den er kringlet forklaret bare de første 5 rækker så nu er jeg tilbage ved række 1, men tager nok snart en anden opskrift...

24.11.2020 - 21:26

country flag Esperanza wrote:

Con respecto a mi duda anterior, he visto que hace referencia a A.1a y A.1b en la explicación de la vuelta 4.. lo entendí.. lo que no lo veía era en el diagrama

22.11.2020 - 21:43