Janne Ytterland Jemne skrifaði:
Jeg fant en feil i mønster A.10, mangler en gelling på nest siste omgang på begynnelsen av omgangen.
13.10.2015 - 16:13
Mariska skrifaði:
Beeldig truitje!
02.10.2015 - 13:25
Johanna G skrifaði:
Love this! The simple and discreet colour paired with the more intricate front is really beautiful! I hope I get to make it =)
09.06.2015 - 15:17
Mimi skrifaði:
Mon modèle préféré, très beau, bel effet en alpaca
09.06.2015 - 06:50
Ellis skrifaði:
Very nice, is the lace also at the back? Hope so. Will make this whith double knitted or picot edges
08.06.2015 - 22:15
Traude skrifaði:
Sehr hübsch!
07.06.2015 - 14:03
Anna skrifaði:
Love the subtle blue/grey colour, the fluffiness of the wool and the diamond design. Not done much lace knitting and would be very tempted to try with this one!
31.05.2015 - 13:01
HLB skrifaði:
Romantique, aérien, délicat et féminin. Coupe actuelle et col parfait.
29.05.2015 - 13:51
Irish Dove#irishdovesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-41 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2/A.4. Á fram- og bakstykki eru útaukningar teiknaðar inn í mynstur A.3 og A.5. Á ermum er aukið út þannig: Aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf – það eiga að myndast göt. Aukið út í annarri hverri umf 23-29-35 sinnum, en 0-3-7 sinnum (ca í 0.-10.-5. hvert sinn sem aukið er út) prjónið 2 l slétt saman á eftir uppslætti í byrjun á ermi og á undan uppslætti í lok á ermi. Í þessari umf er engin útaukin l á ermi, en gataumferð heldur áfram eins og áður. Aukið er út um alls 23-26-28 l í hvorri hlið á hvorri ermi. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: LESIÐ FYRSTA KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! Fitjið upp 86-86-86 l á stutta hringprjóna nr 5 með einu þræði Kid-Silk og einum þræði Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað þannig – frá vinstri laskalínu á bakstykki: Prjónið A.2 (= 12 l), A.3 (= 5 l), A.4 (= 12 l), (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2, A.3, A.4 (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT sem útaukning fyrir LASKALÍNA á ermi heldur áfram í annarri hverri umf – sjá útskýringu að ofan. Ermin er prjónuð í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: Prjónið A.2, A.5 A (= 13 l), A.5 B (= 12 l) og A.5 C (= 14 l) A.4, (= bakstykki), prjónið ermi, A.2, A.5 A, A.5 B. A.5 C, A.4, (= framstykki), prjónið ermi. Prjónið A.5 alls 1-2-3 sinnum á hæðina. Fyrir hvert skipti sem A.5 er prjónað á hæðina er prjónuð 1 A.5 B fleiri á milli A.5 A og A.5 C. Prjónið þar til 1 umf í A.5 er eftir (= 75-87-99 l á fram/bakstykki og 60-66-70 l á hvorri ermi). Næsta umf er prjónuð þannig (þetta er síðasta umf í A.5): Prjónið 75-87-99 l (= bakstykki), setjið næstu 60-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, prjónið 75-87-99 l (= framstykki), (= framstykki), setjið næstu 60-66-70 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja = 166-190-218 l. Berustykkið mælist ca 21-26-32 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið þannig: A.2, A.6 A (= 13 l), A.6 B yfir næstu 24-36-48 l, A.6 C (= 14 l), A.4, prjónið A.7 yfir nýjar 8-8-10 l undir ermi, A.2, A.6 A, A.6 B yfir næstu 24-36-48 l, A.6 C, A.4, prjónið A.7 yfir nýjar 8-8-10 l undir ermi. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: A.2, A.8 A (= 14 l), A.8 B yfir næstu 24-36-38 l, A.8 C (= 15 l), A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 8-8-10 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, A.8 A, A.8 B yfir næstu 24-36-48 l, A.8 C (= 15 l), A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 8-8-10 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Í fyrstu úrtöku í A.8 er byrjað 1 l á undan A.8, fellið af þannig: Takið síðustu l í A.2 óprjónaða, prjónið 2 fyrstu l í A.8 A slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Í lok A.8 er fellt af þannig: Prjónið 3 l slétt saman (2 síðustu l frá A.8 og fyrstu l frá A.4). Síðasta l í A.2 og fyrsta l í A.4 hefur nú fækkað, haldið áfram með 11 l eins og áður í A.2/ A.4 = 162-186-214 l. Í annarri hverri umf er aukið út um 1 l hvoru megin við A.7 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.7 – þetta er gert JAFNFRAMT því að fækka lykkjum í A.7 (úrtaka er teiknuð inn í mynstur). Fjöldi l er sá sami allan tímann, nema fjöldi l í A.7 og fjöldi l í A.8 fækkar. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: A.2 (= 11 l), A.9 A (13 l), A.9 B yfir næstu 12-24-36 l, A.9 C (= 14 l), A.4 (= 11 l), sláið uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 20-20-22 l, sláið uppá prjóninn, A.2, A.9 A, A.9 B yfir næstu 12-24-36 l, A.9 C, A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 20-20-22 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið A.9 1-2-3 sinnum á hæðina, prjónið síðan þannig: A.2 (= 11 l), A.10 (= 27 l), A.4 (= 11 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 32-44-58 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, A.10, A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.7 yfir næstu 32-44-58 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Þegar A.10 hefur verið prjónað eru 5 l eftir í A.10 og 54-66-80 l í hverju mynstri A.7. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 4 l yfir hvert mynstur A.2/A.4, og fækkið um 2-2-6 l jafnt yfir í umf = 144-168-192 l. Prjónið A.11 yfir allar l, 1 sinni á hæðina. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 58-68-80 cm frá öxl. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið 60-66-70 l inn af þræði á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 8-8-10 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8-8-10 l = 68-74-80 l. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 1-1½-1½ cm millibili 15-16-17 sinnum til viðbótar = 36-40-44 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 38-35-31 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 4-0-4 l jafnt yfir = 40-40-48 l. Prjónið A.11 yfir allar l, 1 sinni á hæðina. Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 44-41-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #irishdovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.