Christine skrifaði:
When we work the back section how come it is only 117 sts 265-(69X2)= 127 not 117 would you please explain more
28.02.2018 - 05:07DROPS Design svaraði:
Dear Christine, you leave 5 sts unworked for armhole on each piece: front pieces are worked over 64 sts (= 5 sts unworked for armhole) and back piece is worked over 117 sts (= 5 sts unworked for armhole on each side), so that you have: 64 sts (front piece), 10 sts unworked (armhole), 117 sts (back piece), 10 sts unworked (armhole), 64 sts (front piece) = 64+10+117+10+64= 265 sts. Happy crocheting!
28.02.2018 - 10:17
SYLVIE PERRIER skrifaði:
Mon échantillon est le même que le modèle, mais lorsque je crochète , en taille M , j'ai 10 cm de plus que le modèle. Est ce qu'il y aurait une erreur dans le nombre de brides à faire? Sinon pour que je puisse continuer combien fait la largeur de la manche pour que je recalcule. Merci de otre réponse
29.08.2016 - 00:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Perrier, vérifiez bien le nombre de mailles crochetées pour le dos et les devants, on monte 367 ml mais on doit avoir seulement 293 B au 1er rang. À la fin des augmentations de la manche, vous avez 101 B soit 36 cm de large. Bon crochet!
29.08.2016 - 12:22Gloria skrifaði:
No veo ninguna pestaña que diga "vídeos"
09.04.2016 - 00:17DROPS Design svaraði:
Hola Gloria. Cada patrón tiene "Videos" explicativos, para acceder a ellos hay que marcar la pestaña "Videos" al lado de la pestaña "Materiales" en la parte superior del patrón
10.04.2016 - 17:24
Karen Strickholm skrifaði:
Elegant! I too would like to see set-in sleeves. Also I hope there is some subtle waist shaping... Lovely design, and particularly flattering for larger bodied women like me!
19.06.2015 - 15:17
Anja Steinhaus skrifaði:
Möchte ich sofort stricken . . . wunderschön!!!!
14.06.2015 - 13:54Fe Canas skrifaði:
Is this crochet or knit?
11.06.2015 - 08:13
Ellis skrifaði:
Please give me an option to make set-in sleeves because I like this cardigan a lot but will not wear clothes that do not fit. I have a larger size clothing and need therfore have patterns that fit
08.06.2015 - 21:45
Kirchhoff skrifaði:
Wunderschönes Muster, elegant und genial schlicht zugleich
05.06.2015 - 14:59
Rebecca Gibbs skrifaði:
Very elegant! thank you.
28.05.2015 - 21:21
Jannicke Thom skrifaði:
Vakker og anvendelig
27.05.2015 - 20:00
Vintage Honeycomb#vintagehoneycombcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca með gatamynstra ferningum og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með sl, skiptið út fyrsta st með 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = kemur í stað fjórða st frá kanti með 1 ll. Í næstu umf eru kantlykkjur að framan heklaðar eins og áður (1 st er heklaður um ll). Heklið hnappagöt þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 10, 18 og 26 cm. STÆRÐ M: 11, 19 og 27 cm. STÆRÐ L: 12, 20 og 28 cm. STÆRÐ XL: 13, 21 og 29 cm. STÆRÐ XXL: 12, 21 og 30 cm. STÆRÐ XXXL: 13, 22 og 31 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 332-367-402-437-472-507 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 2,5 með Alpaca. Heklið fyrstu umf (= frá röngu) þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 st í hverja og eina af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 265-293-321-349-377-405 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu þannig (umf 1 = frá röngu): Heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 st (= vinstri kantur að framan), A.3 (= 9 l), endurtakið A.2 (= 14 l) alls 17-19-21-23-25-27 sinnum, A.1 (= 8 l), endið á 1 st í hvern af næstu 5 st (= hægri kantur að framan). Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.x endurtekið. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að síðasta umf sé frá röngu, heklið nú framstykki og bakstykki til loka fyrir sig. Setjið 1 prjónamerki 69-76-83-90-97-104 l inn frá hvorri hlið (= 127-141-155-169-183-197 l á bakstykki). HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið (frá réttu) mynstrið eins og áður þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki (= handvegur) = 64-71-78-85-92-99 l – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 eru heklaðar með st. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2 (síðasta umf = frá röngu). Síðustu 44-51-56-63-67-74 l inn við handveg (= öxl) er ekki lengur heklaðar yfir. Heklið síðan kraga yfir fyrstu 20-20-22-22-25-25 l frá réttu þannig: * Heklið 1 st (heklið í st, en um ll) í hverja af fyrstu 12-12-13-13-14-14 l, 1 hst í hvora af næstu 2 l, 1 fl í hverja af næstu 6-6-7-7-9-9 l, snúið við og heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6-6-7-7-9-9 fl – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, 1 hst í hvora af næstu 2 l, 1 st í hverja af næstu 12-12-13-13-14-14 l, snúið við *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 5-5-6-6-7-7 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Ekki er heklað yfir fyrstu 5 l í fyrstu umf frá réttu. Heklið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2 (síðasta umf = frá röngu). Klippið frá. Fyrstu 44-51-56-63-67-74 l við handveg (= öxl) er ekki lengur heklaðar yfir. Heklið kraga yfir síðustu 20-20-22-22-25-25 l með byrjun frá réttu þannig: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6-6-7-7-9-9 l, 1 hst í hvora af næstu 2 l, 1 st í hverja af næstu 12-12-13-13-14-14 l, snúið við, 1 st í hverja af fyrstu 12-12-13-13-14-14 l, 1 hst í hvora af næstu 2 l, heklið 1 fl í hverja af næstu 6-6-7-7-9-9 fl, snúið við *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 5-5-6-6-7-7 cm lengst inn þar sem hann er minnstur. Klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI: Heklið mynstur eins og áður yfir miðju 117-131-145-159-173-187 l (= 5 l inn í hvorri hlið fyrir handveg) – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 eru heklaðar með st. Þegar stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm – stillið mynstrið þannig af að næsta umf er 4. umf í A.x (nú eru eftir 3 umf), er ekki heklað lengur yfir miðju 27-27-31-31-37-37 st (= halsmál), hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig = 45-52-57-64-68-75 l fyrir öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðust 3 umf (ATH: hver ll í mynstri yfir hálsmál er skipt út fyrir 1 st) – í fyrstu umf er fækkað um 1 st við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA = 44-51-56-63-67-74 l. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 67-72-75-77-82-85 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 2,5 með Alpaca. Heklið fyrstu umf þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), heklið síðan 1 st í hverja af næstu 3-3-1-3-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 53-57-59-61-65-67 st. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: 1 st í hverja af fyrstu 4-6-7-1-3-4 st, A.1, A.2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, A.3, endið á 1 st í hvern af næstu 4-6-7-1-3-4 st. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.x endurtekið. Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-8-8 cm aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið á stykki í 3. hverri umf 16-14-7-3-0-0 sinnum til viðbótar, síðan í annarri hverri umf alls 4-7-16-21-25-22 sinnum og í hverri umf alls 0-0-0-0-0-5 sinnum = 95-101-107-111-117-123 l. Þegar stykkið mælist 49-48-46-45-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan kant í kant og saumið síðan við hálsmál á bakstykki. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið ermasauma kant í kant neðan frá og upp. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vintagehoneycombcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.