Hanne Svare Lassen skrifaði:
Hvorfor laves der en farvekombination - og så er grundfarven 800 udgået hos jer
26.06.2015 - 20:43
Ingrid skrifaði:
Mooi patroon en leuke kleuren!
19.06.2015 - 15:19
Andrea Krawinkler skrifaði:
Endlich eine Decke mit großen Grannies. Hab mich in die Decke verliebt und würde am liebsten gleich anfangen. Freue mich schon auf die Anleitung!
31.05.2015 - 00:39
Andrea Krawinkler skrifaði:
Endlich eine Decke mit großen Grannies. Hab mich in die Decke verliebt und würde am liebsten gleich anfangen. Freue mich schon auf die Anleitung!
31.05.2015 - 00:39
Lenhardt skrifaði:
Es gefällt mir alles sehr gut
29.05.2015 - 15:54
Beryl Drake skrifaði:
Lovely mix of colours and very interesting design. Great for a sofa throw.
29.05.2015 - 03:11
C.p. skrifaði:
Interessante Farb-und Wollmischung....schön!
28.05.2015 - 20:07
Anja Fix-Boerdijk skrifaði:
Ik vind het patroon mooi; alleen de kleuren minder sprekend. Zou hiervoor een ander garen kiezen.
28.05.2015 - 12:41
Diane T skrifaði:
Love it!
28.05.2015 - 02:16
Elfrid Haara Leikvoll skrifaði:
Så flott! Ønsker meg garn og oppskrift til dette teppe
27.05.2015 - 19:13
Winter Garden#wintergardenblanket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi úr 3 þráðum DROPS Fabel með hekluðum ferningum.
DROPS 163-3 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITASAMSETNING: Heklaðar eru 5 mismunandi ferningar. Heklið 4 ferninga í hverri litasamsetningu (alls 20 ferningar): FERNINGUR 1: Uppfit + UMFERÐ 1-2: 1 þráður natur + 2 þræðir vínrauður. UMFERÐ 3: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður rautt chili UMFERÐ 4-5: 1 þráður natur + 1 þráður rautt chili + 1 þráður vínrauður UMFERÐ 6-8: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður vínrauður. FERNINGUR 2: Uppfit + UMFERÐ 1-2: 1 þráður natur + 2 þræðir bláfjólublár UMFERÐ 3. 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður bleikvínrauður UMFERÐ 4-5: 1 þráður natur + 1 þráður bleikvínrauður + 1 þráður bláfjóllublár UMFERÐ 6-8: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður bláfjólublár FERNINGUR 3: Uppfit + UMFERÐ 1-2: 1 þráður natur + 2 þræðir lautarferð UMFERÐ 3: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður strönd UMFERÐ 4-5: 1 þráður natur + 1 þráður strönd + 1 þráður lautarferð UMFERÐ 6-8: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 lautarferð FERNINGUR 4: Uppfit + UMFERÐ 1-2: 1 þráður natur + 2 þræðir bleikvínrauður UMFERÐ 3: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður strönd UMFERÐ 4-5: 1 þráður natur + 1 þráður strönd + 1 þráður bleikvínrauður UMFERÐ 6-8: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður bleikvínrauður FERNINGUR: Uppfit + UMFERÐ 1-2: 1 þráður natur + 2 þræðir strönd UMFERÐ 3: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður blár/brúnn/sinnep UMFERÐ 4-5: 1 þráður natur + 1 þráður blár/brúnn/sinnep + 1 þráður strönd UMFERÐ 6-8: 1 þráður natur + 1 þráður ljós perlugrár + 1 þráður strönd ST-HÓPUR: 1 st um/í næstu ll/fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), 1 st um/í sömu ll/fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 3 l = 1 l á heklunálinni (= 1 st-hópur). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af hekluðum ferningum sem saumaðir eru saman í lokin. FERNINGUR: Heklið 4 ll með 3 þráðum Fabel – SJÁ LITASAMSETNING – með heklunál nr 9 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. Sjá mynsturteikningu A.1. UMFERÐ 1: 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 1 st um ll-hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 8 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 2: 3 ll (= 1 st), heklið 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan – í fyrstu af þeim 3 ll, heklið síðan 1 st-hóp um hverja ll og 1 st-hóp í hvern st = 16 st-hópar. UMFERÐ 3: Skiptið um lit. Heklið 4 ll, * 3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið á 2 st í síðustu ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 16 st-hópar. UMFERÐ 4: Skiptið um lit. 1 ll, 1 fl um fyrstu ll, * 3 ll, 1 fl um næstu ll, 3 ll, 1 fl um sömu ll, 3 ll, 1 fl um næstu ll, 3 ll, 1 fl um næstu ll, 7 ll, 1 fl um sömu ll, 3 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-*, en síðasta skiptið er endað með 1 kl í 1. fl frá byrjun umf (í stað síðustu fl). UMFERÐ 5: 1 ll, 1 fl í fyrstu fl frá fyrri umf, * hoppið yfir 1 ll-boga, um næsta ll-boga er heklað þannig: 4 st, 1 ll, 4 st. Hoppið yfir næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, hoppið yfir næsta ll-boga, um næsta ll-boga er heklað þannig: 6 st, 2 ll, 6 st (= horn). Hoppið yfir næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-*, en síðasta skiptið er endað á 1 kl í 1. fl frá byrjun umf (í stað síðustu fl). UMFERÐ 6: Skiptið um lit. * 1 st (= kemur í stað 3 ll í fyrsta skiptið) í fyrstu /næstu fl, 3 ll, 1 fl um næstu ll, 3 ll, 1 st í næstu fl, 5 ll, í horni (um ll-boga) heklið 1 fl + 3 ll + 1 fl, 5 ll *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið * 4 st (= koma í stað 1. st með 3 ll í fyrsta skiptið) um fyrsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga, 5 st um næsta ll-boga, í horni (um ll-boga) er heklað þannig: 3 st + 2 ll + 3 st, heklið 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 8: 1 ll, 1 fl í hvern og einn af næstu 15 st, * í horni (um ll-boga) er heklað þannig: 1 fl + 1 ll + 1 fl, heklið 1 fl í hvern og einn af næstu 24 st * endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 fl + 1 ll + 1 fl um ll-boga í horni, heklið 1 fl í hvern og einn af síðustu 8 st, endið á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Klippið frá. Festið alla enda. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á lengd og síðan á breidd. Leggið ferningana 2 og 2 ofan á hvern annan og heklið þá saman með 2 þráðum í litnum natur og einn þráð í litnum ljós perlugrár (= 3 þræðir) með heklunál nr 9 þannig: Heklið 1 fl efst í hornið í gegnum síðustu l á báðum ferningunum, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í gegnum síðustu l á báðum ferningum *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í horni á báðum ferningum. ATH: Passið að skiptingarnar verði fallegar á milli ferninga þegar ferningarnir eru heklaðir saman á lengdina. Heklið kant í kringum allt teppið með 2 þráðum í litnum natur og einum þræði í litnum ljós perlugrár (= 3 þræðir) með heklunál nr 9 þannig: Heklið 1 fl efst í hornið á teppinu, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í 1. fl. Passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintergardenblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.