Anne Andreasen skrifaði:
Jeg mener, at der er fejl i opskriften. På ryggen, efter, at der er slået op til ærmerne og der skal laves mønster over disse masker, skal der i størrelse xxl netop begyndes med diagram A1, som der også er gjort i starten af ryggen, ellers vil mønstret blive forskudt en halv gang.... Og det er nok ikke meningen.
04.03.2016 - 20:57DROPS Design svaraði:
Hej Anne, ja det lyder til at du har ret, det er selvfølgelig vigtigt at mønsteret passer over det tidligere mønster. Vi skal se på den så kommer vi tilbage. Fint at du selv kan rette det. God fornøjelse!
07.03.2016 - 16:04
Delestinne skrifaði:
Bjr qui peu me dire sur le site la taille xxl et xxxl corespond a quelle taile svp mille merci
31.05.2015 - 11:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delestinne, vous trouverez en bas de page un schéma avec toutes les mesures en cm pour chaque taille, comparez ces mesures avec celles d'un vêtement analogue que vous avez et dont vous aimez la forme pour trouver la taille adéquate pour chacun de nos modèles. Bon tricot!
01.06.2015 - 09:54
Always Ethereal Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaður kimono úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1120 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 3 l garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KIMONO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-99-118-118-137-137 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 2 umf sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6-6-7-7-8-8 l jafnt yfir = 93-93-111-111-129-129 l. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 9 l) alls 1-1-0-0-1-1 sinni, A.2 (= 18 l) alls 4-4-6-6-6-6 sinnum á breiddina, A.3 (= 10 l) alls 1-1-0-0-1-1 sinni, 0-0-1-1-0-0 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 83-83-99-99-115-115 l á prjóni. Endurtakið síðan A.X 1 sinni á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú áfram með A.Z 1 sinni á hæðina – JAFNFRAMT í lok síðustu umf frá réttu eru fitjaðar upp 27-27-27-27-19-19 l fyrir ermi = 110-110-126-126-134-134 l (stykkið mælist ca 41 cm). Snúið við og prjónið 4 l sl, br yfir þær l sem eftir eru áður en fitjaðar eru upp 27-27-27-27-19-19 l fyrir hina ermina = 137-137-153-153-153-153 l. Prjónið nú A.x þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 (= 8 l) alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, A.2 (= 16 l) alls 8-8-8-8-9-9 sinnum, A.3 (= 9 l) alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, 1-1-0-0-1-1 l l sléttprjón, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið A.X alls 2 sinnum á hæðina JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 59-60-61-62-63-64 cm prjónið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 53-53-61-61-61-61 l, garðaprjón fyrir hálsmáli yfir næstu 31 l, mynstur ein og áður yfir næstu 53-53-61-61-61-61 l – ATH! Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur A.2 við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir 31 l eru miðju 25 l felldar laust af fyrir hálsmáli (nú eru 3 l garðaprjón eftir hvoru megin við l sem felldar voru af) og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er felld af 1 l innan við 3 l garðaprjón við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA. Nú eru 56-56-64-64-64-64 l eftir. Þegar A.X hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina mælist stykkið ca 62 cm í öllum stærðum. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið og 3 l garðaprjón við hálsmál. Þegar stykkið mælist 63-64-65-66-67-68 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið laust af. Stykkið mælist ca 64-65-66-67-68-69 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 56-56-66-66-75-75 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið + 7 kantlykkjur í kant að framan) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 2 umf sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 2-2-3-3-3-3 l jafnt yfir = 54-54-63-63-72-72 l. Prjónið 1 umf til baka. Prjónið nú þannig: A.4 (= 7 kantlykkjur að framan), A.2 (= 18 l) alls 2-2-3-3-3-3 sinnum á breiddina, A.3 (= 10 l) alls 1-1-0-0-1-1 sinnum, 0-0-1-1-0-0 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 49-49-57-57-65-65 l á prjóni. Endurtakið síðan A.X 1 sinni á hæðina. Haldið nú áfram með A.Z 1 sinni á hæðina – JAFNFRAMT í lok síðustu umf í mynstri frá réttu eru fitjaðar upp 27-27-27-27-19-19 l fyrir ermi = 76-76-84-84-84-84 l (stykkið mælist ca 41 cm). Snúið við og prjónið 4 l sl, br yfir næstu 65-65-73-73-73-73 l, kantlykkjur á kanti að framan eru prjónaðar eins og áður. Prjónið nú A.X þannig: 7 kantlykkjur að framan í A.4, A.2 (= 16 l) alls 4 sinnum, A.3 (= 9 l) alls 0-0-1-1-1-1 sinnum, 1-1-0-0-1-1 l sléttprjón, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið A.X alls 2 sinnum á hæðina JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-51-51-53-53-53 cm prjónið garðaprjón fyrir hálsmál yfir fyrstu 19 l frá réttu. ATH! Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur A.2 við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir 19 l eru felldar af fyrstu 16 l fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu (nú eru 3 l garðaprjón eftir við hálsmál) = 60-60-68-68-68-68 l. Fellið síðan af fyrir hálsmáli innan við 3 l garðaprjón – MUNIÐ EFTIR ÚRTAKA – þannig: Fellið af 1 l í hverri umf frá hálsi alls 4 sinnum = 56-56-64-64-64-64 l eftir fyrir öxl. Þegar A.X hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina mælist stykkið ca 62 cm í öllum stærðum. Prjónið síðan sléttprjón innan við l í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 63-64-65-66-67-68 cm prjónið 2 l garðaprjón yfir allar l, fellið laust af. Stykkið mælist ca 64-65-66-67-68-69 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt, þ.e.a.s. fitjið upp l fyrir ermi í lok síðustu umf í mynstri frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun umf frá röngu. Prjónið A.5 (= 7 kantlykkjur að framan) í stað A.4 og prjónið A.1 (= frá 9 til 8 l) í stað A.3 (frá 10 til 9 l). ATH! Prjónið þess vegna 1 l sléttprjón innan við 7 kantlykkjur að framan. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í vinstri kant að framan þannig: Saumið eina tölu ca 1 cm frá frá kanti í garðaprjóni í hálsmáli, saumið síðan hinar 2 tölurnar með ca 8 cm millibili á milli talna. Tölum er hneppt í gegnum göt í hægri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1120
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.