DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Always Ethereal

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1119
DROPS Design: Mynstur nr z-692
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-250-300-350-350 gr litur nr 101, hvítur
og notið
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 25 umf með mynsturprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 99-99-118-118-137-137 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 2 umf sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6-6-7-7-8-8 l jafnt yfir = 93-93-111-111-129-129 l. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 9 l) alls 1-1-0-0-1-1 sinni, A.2 (= 18 l) alls 4-4-6-6-6-6 sinnum á breiddina, A.3 (= 10 l) alls 1-1-0-0-1-1 sinni, 0-0-1-1-0-0 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 83-83-99-99-115-115 l á prjóni. Endurtakið síðan A.X 1 sinni á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið nú áfram með A.Z 1 sinni á hæðina – JAFNFRAMT í lok síðustu umf frá réttu eru fitjaðar upp 27-27-27-27-19-19 l fyrir ermi = 110-110-126-126-134-134 l (stykkið mælist ca 41 cm). Snúið við og prjónið 4 l sl, br yfir þær l sem eftir eru áður en fitjaðar eru upp 27-27-27-27-19-19 l fyrir hina ermina = 137-137-153-153-153-153 l. Prjónið nú A.x þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 (= 8 l) alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, A.2 (= 16 l) alls 8-8-8-8-9-9 sinnum, A.3 (= 9 l) alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, 1-1-0-0-1-1 l l sléttprjón, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið A.X alls 2 sinnum á hæðina JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 61-62-63-64-65-66 cm eru felldar af miðju 29 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig – Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = 53-53-61-61-61-61 l. Þegar A.X hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina mælist stykkið ca 62 cm í öllum stærðum. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 63-64-65-66-67-68 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið laust af. Stykkið mælist ca 64-65-66-67-68-69 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki, nema prjónið A.X einungis 1 sinni á hæðina áður en byrjað er á A.Z vegna þess að framstykki er styttra en bakstykki. Fitjið upp l fyrir ermar eins og á bakstykki (þ.e.a.s. í lok A.Z) = 137-137-153-153-153-153 l. Stykkið mælist ca 27 cm. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-43-44 cm fellið af miðju 23 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í hverri umf frá hálsi alls 4 sinnum = 53-53-61-61-61-61 l eftir á hálsi. Fellið af þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm – stillið mynstur af eftir bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið annan axlasauminn. Saumið l eina og eina saman með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur!

HÁLSMÁL:
Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjóna.
Prjónið upp l frá réttu ca 77-79 l meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf sl frá réttu og 1 umf sl frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið hinn axlasauminn og haldið áfram með sauminn upp meðfram kant í hálsmáli. Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum yst í lykkjubogann.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndast göt
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1119

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Beatrice wrote:

Bonjour, je suis sur le dos et je me retrouve avec un losange comme motif. Les motifs sont décalés. Et je ne comprends pas pourquoi.

25.08.2022 - 18:55

DROPS Design answered:

Bonjour Béatrice, difficile de diagnostiquer à distance pourquoi vos motifs sont décalés, placez éventuellement un marqueur après A.1, après chaque A.2 et après A.3 ainsi vous pourrez bien répéter les diagrammes correctement en largeur et continuer A.Z au-dessus de A.X. Bon tricot!

26.08.2022 - 08:56

country flag Martina Cassidy wrote:

Die Nummer der angeschlagenen Maschen , sind die Rand Maschen in der nr Enthalten oder muss ich je eine dazu anschlagen

29.01.2020 - 00:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Cassidy, die Randmaschen sind eingeschlossen, die sollen Sie nicht extra anschlagen. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2020 - 08:48

country flag Heidi wrote:

Hei!Når jeg strikker mønsteret i XL, blir det forskjøvet når jeg legger opp til ermer og strikker mønster AX (a1,a2 og a3) i forhold til mønster AZ som er under!Er dette noe som skjer i denne størrelsen?Ble ikke spesielt fint!🙈 Når jeg strikker AX og AZ nederst på bolen er de jo direkte over hverandre....

18.03.2019 - 15:45

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Det skal ikke være noen forskyvning av mønsteret. Du har lagt opp 27 maske i hver side til erme, og har 153 masker på pinnen. Fra før har du strikket: 1 kantmaske, A.2 totalt 6 ganger, 1 maske glattstrikk, 1 kanmaske. Videre strikker du slik: 4 kantmasker, A.1 over 8 masker, A.2 totalt 8 ganger (dvs 1.rapport over de resterende 15 maskene på ermet + kantmasken fra bolen, 6 rapporter over de samme maskene som tidligere, siste rapport over masken i glattstrikk + kantmasken fra bolen + 14 masker på det andre ermet), A.3 over 9 masker og 4 kantmasker = 153 masker. A.X passer derfor rett over A.Z. God fornøyelse

20.03.2019 - 09:19

country flag Liz wrote:

How many balls would I need if I used Drops Brushed alpaca silk Aran weight?

20.02.2019 - 00:15

DROPS Design answered:

Dear Liz, you will find here how to calculate the new amount of yarn working with 1 strand Brushed Alpaca Silk instead of 1 strand Alpaca + 1 strand Kid-Silk. Happy knitting!

20.02.2019 - 09:35

country flag Liz wrote:

The pattern states to use 1 strand Drops Alpaca with one strand kid Silk. So is that a total of 2 strands of any yarn in group A?

14.02.2019 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Liz, yes, that is two strands of yarn from the yarng group A. If you change any of thm, you will get a slightly different effect, and it is alway a good iea to knit a smaple swatch and check your gauge and ajust needle size if necessary. Happy Knitting!

15.02.2019 - 08:00

country flag Liz wrote:

Which can yarn I replace the Alpaca kid silk with? I am unable to wear mohair?

13.02.2019 - 22:59

DROPS Design answered:

Hi Liz, You can choose any yarn from group A (2 strands) or group C (1strand). Check your knitting tension and needle size before beginning so that you get the right measurements. Happy knitting!

14.02.2019 - 08:05

country flag Pia Hansen wrote:

Jeg vil gerne lave denne model i Cotton-Merino, kan strikkefasthede og garnmængden konverteres til dette garn?

08.08.2018 - 09:15

DROPS Design answered:

Hej Pia, opskriften passer til garngruppe C med 16 masker på 10 cm. DROPS Cotton Merino tilhører garngruppe B og bruger normalt 21 m på 10 cm. Det vil sige at hvis du vælger at bruge den med strikkefasthed ifølge opskriften, så bliver arbejdet ret løst. Det bedste er om du finder et garn i garngruppe C God fornøjelse!

14.08.2018 - 12:53

country flag Nadine wrote:

Ich stricke dieses Modell in Xxl, nun bin ich beim Rückenteil bei den Ärmel. Wenn ich A.X 2 mal in die Höhe stricke gabe ich 62 cm. Wie komme ich jetzt aber auf die 65 cm bis zum Halsausschnitt? Wird für größere Größen das Muster verlängert oder wird der Rest einfach glatt rechts weitergestrickt??

11.09.2017 - 22:54

DROPS Design answered:

Liebe Nadine, glatt rechts, mit beidseitig je 4 M kraus rechts, weiterstricken, dann die Abnahmen bei 65 cm anfangen. Viel Spaß beim stricken!

12.09.2017 - 08:31

country flag KIM wrote:

Noticed chest measurements are not given. could you advise approx. measurements for small, medium, and large?

30.08.2016 - 18:16

DROPS Design answered:

Dear Kim, the measurements are at the bottom of the pattern. According to the size (S - M - L - XL - XXL - XXXL) we have: 51-51-61-61-71-71 cm (x2). Happy knitting!

30.08.2016 - 19:29

country flag Dominika wrote:

Dzień dobry, czy zamiast robićjednocześnie z dwóch nitek włóczki można zrobić tą bluzkę z jednej grubszej nitki? Jeśli tak, to jakiej grubości powinnam zastosować włóczkę i w jakiej ilości (dla rozmiaru S)? Czy konieczna będzie wtedy jakaś modyfikacja wzoru (np. co do ilości oczek)? Pozdrawiam.

23.05.2016 - 12:47

DROPS Design answered:

Może Pani użyć 1 nitki włóczki z grupy włóczek C. Nie trzeba modyfikować wzoru, ale koniecznie wykonać próbkę. Proszę w menu na górze na głównej stronie znaleźć 'Porady i pomoc' > Kursy > tytuł kursu: Czy mogę użyć innej włóczki niż ta wskazana we wzorze? Tam dokładnie jest opisane to zagadnienie. Pozdrawiamy!

23.05.2016 - 20:53