Lolla Hosny skrifaði:
I cant understand the diagram would you plz explain from row 4 ?
16.02.2015 - 22:35DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hosny, please find below a video showing how to work the whole hexagone, remember to follow diagram at the same time. Happy crocheting!
17.02.2015 - 14:02
Devys skrifaði:
Comment peut on arriver a faire un diagramme avec 2 maille en l'air au rang 6? il y a comme un bugg? non? merci
12.02.2015 - 18:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Devys, on a bien 2 ml au rang 6 entre chaque B ou (1 triple B,3 ml, 1 triple B) comme on le voit au time code 8:49 dans la vidéo ci-dessous: les brides des 2 rangs précédent vont former des pétales. Bon crochet!
13.02.2015 - 09:29
Corrine skrifaði:
Rustig en mooi patroon, voor meerdere doeleinden te gebruiken.
05.01.2015 - 12:59
Kristin Sontum skrifaði:
Romantic. Would like it on my bed.
27.12.2014 - 13:04Mabel Ulloa skrifaði:
Es muy delicado, femenino
23.12.2014 - 14:21
Päivi skrifaði:
Ineresting pattern - could suit on the table
12.12.2014 - 11:35
Sunshine#sunshineblanket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Cotton Merino með sexhyrningum.
DROPS 162-13 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf með fl byrjar á 1 ll og hver umf með st byrjar á 3 ll. Hver umf endar á kl í fyrstu ll í umf með fl og endað er á einni kl í þriðju ll með st. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið 50-61 sexhyrninga, áður en saumað er saman. Að lokum er hekluð ein umf með stuðlum í kringum allt teppið. SEXHYRNINGUR: Heklið 5 ll með Cotton Merion með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 12 fl um ll-bogann, endið á 1 kl í fyrstu ll í umf – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 2 fl í hverja af 12 fl frá fyrri umf = 24 fl. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, * 1 st í fyrstu fl, 4 ll, hoppið yfir næstu fl *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 4 ll = 12 ll-bogar í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið síðan áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Byrjið á umf 4 í mynstri (sjá ör). A.1 er endurtekið alls 6 sinnum í umf. Þegar allur sexhyrningurinn hefur verið heklaður til loka, klippið frá og festið enda. Heklið 49-60 sexhyrninga til viðbótar = 50-61 sexhyrningar. FRÁGANGUR: Leggið 6 sexhyrninga við hliðina á hverjum öðrum eins og útskýrt er í mynsturteikningu og saumið þá saman með Cotton Merion þannig að það myndist ein löng lengja. Endurtakið 4-5 sinnum til viðbótar = 5-6 lengjur með 6 sexhyrningum. Leggið 5 sexhyrninga við hliðina á hverjum öðrum alveg eins og áður og saumið þá saman í eina lengju. Endurtakið 3-4 sinnum til viðbótar = 4-5 lengjur með 5 sexhyrningum. Saumið saman aðra hverja lengju með 6 og 5 sexhyrningum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. KANTUR: Þegar allir sexhyrningarnir hafa verið saumaðir saman, heklið 1 umf með stuðlum í kringum allt teppið, með byrjun frá öðru horninu á undan skammhlið (A). SKAMMHLIÐ: Byrjið í ll-boga og heklið 3 ll (= 1 st), 3 ll, 1 st um ll-boga, 1 st í hverja l (þ.e.a.s. fl og ll) fram að næsta ll-boga, * 1 st, 3 ll, 1 st í ll-boga, 1 st í hvern af næstu 14 l (þ.e.a.s. fl og ll), hoppið yfir að næsta sexhyrningi, hoppið yfir 2 fl, 1 st í hverja af næstu 14 fl *, endurtakið frá *-* að síðasta horni á skammhlið, 1 st, 3 ll, 1 st í ll-boga, 1 st í hvern af næstu 14 l, þ.e.a.s. fl og ll (B). LANGHLIÐ: Heklið nú þannig (B): * 1 st, 3 ll, 1 st í næsta ll-boga, 1 st í hverja af næstu 16 l, 1 st, 3 ll, 1 st í ll-boga, ** 1 st í hverja af næstu 14 l (þ.e.a.s. fl og ll), hoppið yfir að næsta sexhyrningi, hoppið yfir 2 fl **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, 1 st í hverja af næstu 14 l *, endurtakið frá *-* fram að (C), 1 st, 3 ll, 1 st í næsta ll-boga, 1 st í hverja af næstu 16 l. Heklið nú yfir skammhliðar eins og utskýrt er að ofan og síðan er heklað yfir seinni langhlið. Endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Teppið er bleytt til þess að það verði jafnara. Leggið í volgt vatn þar til teppið er orðið gegn blautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Leggið teppið á mottu eða dýnu – dragið teppið varlega út í þá stærð sem gefin var upp efst í mynstri. Láið þorna. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunshineblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.