DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Cotton Merino yarn
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Come Here

Prjónuð peysa með laskalínu og perluprjóni, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 157-34

#comeheresweater

DROPS Design: Mynstur nr cm-012
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 18, milligrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR (tvöfalt perluprjón á hæðina):
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út um 2 l hvoru megin við hverja laskalínu þannig (= 16 l fleiri):
Aukið út á undan 4 l slétt prjón og prjónamerki: Prjónið 2 l slétt í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan og framan í lykkjubogann) = 2 l fleiri.
Aukið út á eftir prjónamerki og 2 l sléttprjón: Prjónið 2 l slétt í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan og framan í lykkjubogann) = 2 l fleiri.

Aukið út um 1 l hvoru megin við laskalínu þannig (= 8 l útauknar):
Aukið út á undan 2 l sléttprjón og prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo ekki myndist gat!

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringpróna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 100-106-110-114-118-122 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 3. umf í garðaprjóni er aukið út um 10-14-18-22-29-35 l jafnt yfir. Endurtakið útaukningu í 5. hverri umf í garðaprjóni = 120-134-146-158-176-192 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka með byrjun frá réttu: Prjónið 20-24-27-30-34-38 l, snúið við, prjónið 40-48-54-60-68-76 l, snúið við. Haldið áfram fram og til baka yfir 5 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónað er yfir 60-68-75-80-88-96 l, snúið við og prjónið til baka að byrjun umf = miðja að aftan. Prjónið nú frá miðju að aftan þannig: 19-22-25-28-32-36 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki, 22-23-23-23-24-24 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki, 38-44-50-56-64-72 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki, 22-23-23-23-24-24 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki, sléttprjón yfir síðustu 19-22-25-28-32-36 l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf 1-1-1-2-2-3 sinnum. Síðan er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf alls 18-19-21-21-23-23 sinnum og í 4. hverri umf 1 sinni í öllum stærðum = 288-310-338-366-400-432 l. Stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 40-44-49-54-60-66 l, setjið eftirfarandi 64-67-71-75-80-84 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 l undir vinstri ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 80-88-98-108-120-132 l, setjið næstu 64-67-71-75-80-84 l á þráð (= ermi). Fitjið upp 12 l undir hægri ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 40-44-49-54-60-66 l. STYKKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 184-200-220-240-264-288 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 l í hvorri hlið þannig: Prjónið framað 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið áfram eins og áður yfir framstykki þar til 1 l er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umf = 188-204-224-244-268-292 l. ATH: Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat! Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3-3½ cm millibili 6-6-5-5-5-4 sinnum til viðbótar = 212-228-244-264-288-308 l. Þegar úrtöku er lokið og stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm haldið áfram með A.1 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Ermin er prjónuð í sléttprjóni í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.
Það eru 64-67-71-75-80-84 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna / sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 12 l undir ermi = 76-79-83-87-92-96 l. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT er sett prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili 11-11-12-13-15-15 sinnum til viðbótar = 52-55-57-59-60-64 l. Þegar ermin mælist 32-32-32-31-31-30 cm fellið af 0-1-1-1-0-0 l = 52-54-56-58-60-64 l. Haldið nú áfram með A.1 yfir allar l. Fellið af þegar ermin mælist 37-37-37-36-36-35 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.02.2016
Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka með byrjun frá réttu: Prjónið 20-24-27-30-34-38 l, snúið við, prjónið 40-48-54-60-68-76 l, snúið við. Haldið áfram fram og til baka yfir 5 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónað er yfir 60-68-75-80-88-96 l, snúið við og prjónið til baka að byrjun umf = miðja að aftan.

Mynstur

sl = sl
br = br
Diagram for DROPS 157-34

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #comeheresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Christine skrifaði:

Bonjour, j'ai tricoté les rangs raccourcis pour la ré hausse du col comme indiqué mais mon marqueur de début de tour est décalé ... j'ai 10 m. d'un côté et 70 de l'autre (je suis la taille XL) alors que j'ai suivi scrupuleusement les indications donc mon marqueur devrait être au milieu du dos... pouvez-vous me dire quelle est mon erreur... Merci d'avance

17.02.2016 - 17:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Christine, le nombre de mailles du 1er des rangs raccourcis a été corrigé (dans le texte + cf onglet "corrections") afin de commencer au milieu dos. Bon tricot!

18.02.2016 - 09:52

country flag Cornelia Lechleiter skrifaði:

Wenn ich bei Gr.xxl nach der Erhöhung für den Hals bei 88M angekommen bin Wende und in der Rückreihe bis zum Rd Anfang stricke Wende und weiterstricke in Runde mit rechts,dann die Maschen einteile für die Raglanärmel 32-24-64-24-32 befindet sich ein Ärmel in der Erhöhung ein Ärmel im Vorderteil. Was mach ich falsch ??? Ich habe schon 3mal alles aufgezogen 😒😒

23.01.2016 - 18:37

DROPS Design svaraði:

Eventuell liegt hier ein Fehler in der Anleitung vor, das wird nun von den Designerinnen geprüft. Ich bitte daher noch um etwas Geduld bis zur Antwort.

02.02.2016 - 11:50

country flag Sarah skrifaði:

Hallo, wenn ich den Nacken hinten länger stricke in M dann komme ich auf der einen Seite wo man 53 Maschen stricken soll schneller auf 68 als auf der anderen. Soll das so?

09.01.2016 - 11:03

DROPS Design svaraði:

Sie beginnen ja an der hinteren Mitte und stricken 48 M. Dann wenden Sie und stricken 53 M zurück, also 5 M an der hinteren Mitte vorbei. Dann wenden Sie wieder und stricken 58 M, dann wieder wenden und 63 M stricken. Wieder wenden und 68 M str. Dann sind die verkürzten R fertig.

24.01.2016 - 13:37

country flag Inés skrifaði:

También quería apuntar que hay un error en la talla L: dice que vayamos tejiendo adelante y atrás añadiendo cada vez 5 puntos más hasta que hagamos 75 puntos, y deberían ser 74. Por lo demás, me encanta el patrón! Muchas gracias!

17.12.2015 - 15:40

DROPS Design svaraði:

Hola Ines. Tienes razón. Son 74 pts. Está pasada la corrección al departamento de diseño.

19.12.2015 - 20:23

country flag Inés skrifaði:

El patrón parece bastante sencillo pero hay una parte que es un poco confusa: después de hacer la elevación del escote de la espalda, se ha de comenzar a contar los puntos para insertar los marcadores desde el principio de ronda "original" o desde el centro de esta elevación que hemos hecho?

17.12.2015 - 15:39

DROPS Design svaraði:

Hola Ines. Empezamos la vuelta en el centro de la espalda para insertar los MP.

19.12.2015 - 20:27

country flag Isa skrifaði:

Frage zu den verkürzten Reihen im Nacken: wenn ich von der hinteren Mitte (= Reihenanfang) aus beginne und (in Gr. L) 54 M stricke, wende und 59 M stricke, wende und nun vor jedem Wenden 5 M mehr stricke befindet sich die Erhöhung nicht mittig im Nacken, sondern zum Großteil nur auf einer Seite von der hinteren Mitte. Außerdem soll die Erhöhung über insg. 75 M gestrickt werden; diese M-Zahl erreicht man aber nicht bei Zunahme von jew. 5 M - richtig wären hier wohl 74 M.

07.12.2015 - 15:34

DROPS Design svaraði:

Sie haben Recht, dass die Erhöhung schief wird, wenn der Rd-Beginn die hintere Mitte ist, was ja so sein sollte, um den Faden nach den verkürzten R nicht abschneiden und an der hinteren Mitte neu ansetzen zu müssen. Sie müssen daher nicht 45 M zurückstricken, sondern 45 M nach dem Markierer stricken, also insgesamt 85 M zurückstricken. Dann stricken Sie immer 5 M mehr. Die Zahl 75 kann in der Tat nicht stimmen, es müssten dann 74 M ab dem Markierer sein. Ich leite beide Unstimmigkeiten an die Designerinnen weiter.

11.12.2015 - 16:19

country flag Elise skrifaði:

Dank je wel voor je reactie. Helaas is het nog niet duidelijk. Mijn vraag blijft nog: hoe kom je van het begin van de naald (waar je geëindigd bent na de laatste kering) naar middenachter (waar je moet beginnen met de toer met 19 steken, markeerder etc.) Begin van de naald en middenachter is nl. niet hetzelfde (zit 20 st. tussen)

18.11.2015 - 16:18

DROPS Design svaraði:

Hoi Elise. Je breit na het laatste keerpunt terug naar het begin van de nld zoals er staat in het patroon: "...na het laatste keerpunt, keer dan en brei de teruggaande nld tot het begin van de nld." Het begin van de naald wordt vanzelf middenachter. Na de ronding plaats je vanaf middenachter (begin van de nld) de markeerders.

20.11.2015 - 10:35

country flag Elise skrifaði:

Bij de beschrijving van de pas staat dat je, na de ronding op het achterpand voor de hals gebreid te hebben, moet keren en dan terug moet breien tot het begin van de naald. Vervolgens brei je verder vanaf middenachter. 1.Wat wordt precies bedoeld met het begin van de naald: het oorspronkelijke begin (waar je opzet-draadje hangt)? 2. Hoe kom je bij middenachter? Breiend, of moet je daar opnieuw aanhechten (want volgens mij eindig je na de laatste kering niet bij middenachter)?

14.11.2015 - 19:25

DROPS Design svaraði:

Hoi Elise. Het begin van de nld is niet verplaatst - het is waar je de hele tijd bent begonnen. Je breit (bijv maat S): brei 40 st, keer het werk en brei 45 st (dus 5 st verder dan begin van de nld), keer het werk en brei 50 st, keer het werk brei 55 st (je breit nu 10 st verder dan begin van de nld) en laatste keer keren en brei 60 st, keer en brei de terugg naald (verkeerde kant) terug naar het begin van de nld. Je hebt nu een verhoging middenachter. Je breit nu de nld (begin van de nld): 19 st, markeerder, 22 st (mouw), markeerder, 38 st (voorpand), markeerder, 22 st (mouw), markeerder en 19 st tot aan het begin van de nld. Ik hoop dat het nu duidelijk isa

17.11.2015 - 13:16

country flag Vanholsbeke skrifaði:

Il est impossible d'imprimer les explications du modèle pull raglan 157-34 ??? C'est un autre pull qui s'affiche lors de l'impression!!! Merci de vouloir bien vérifier ... Cordialement, C Vanholsbeke

01.11.2015 - 14:57

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Vanholsbeke, un test a été réussi avec succès, c'est bien le bon modèle qui a pu être imprimé. Bon tricot!

02.11.2015 - 09:02

Coral skrifaði:

Hi there, please help!! I have just finished my 75 stitches (for the elevation), then pattern says "turn and work back to beg of round". I have turned and now working WS, but my original starting position (beginning of the round) is not located mid back... 1. Do I work WS back to my original start position or just to ‘mid back’ or to the start of the elevation? 2.Then, do I turn and work RS for setting up the markers or keep working WS?

28.07.2015 - 00:29

DROPS Design svaraði:

Hello Coral! You have to continue from RS and mid back to insert the markers. Happy knitting!

28.07.2015 - 16:04