Tlow skrifaði:
Hi, I am interested in making this. But can't seem to figure out how much wool will I need to buy to make it. Please help. Thanks!
15.10.2014 - 20:13DROPS Design svaraði:
Dear Tlow, you will find amount of yarn at the right side of the picture, ie 400 g DROPS Alpaca Bouclé in size S divided by 50 g a ball Alpaca Bouclé = 8 balls are required in size S. Happy knitting!
16.10.2014 - 09:45
Yara skrifaði:
Ik maak dit patroon op dit moment in de kleur naturel. Erg mooi! ik gebruik een andere steek ipv de tricot: de bijenkorf steek. Wordt prachtig! Daardoor heeft het werk een voller effect.
27.08.2014 - 18:52
Lotta Bengtsson skrifaði:
Hejsan Jag förstår inte riktigt hur jag ska göra efter att jag stickat dom första 37 cm. Kan någon hjälpa mej så jag kan komma visare.
22.08.2014 - 16:08DROPS Design svaraði:
Da strikker du 2 pinde retstrik (glatstrik over de resterende m) over de 7 m i hver side som skal blive ærmegab. Efter det lukker du den midterste af de 7 m af til ærmegab og strikker forstykkerne og rygstykket de næste 21 cm for sig.
03.09.2014 - 12:17
Prakuti skrifaði:
I am looking at this pattern but cannot see where it tells you how much wool you will need.
13.08.2014 - 11:53
Lamour Michèle skrifaði:
Le modèle que j'attendais, merci
26.07.2014 - 20:14
Nita Sands skrifaði:
This is my favorite. I love the way it hangs!
12.07.2014 - 23:55
Margo skrifaði:
Wauw! Mijn favouriet!
07.07.2014 - 21:44
Beate skrifaði:
Sehr schön!
05.07.2014 - 22:41
Patricia skrifaði:
Donne envie de se lover dedans. Dès mise en ligne des explications, je "saute" sur mes aiguilles.
30.06.2014 - 14:53
Miia skrifaði:
Just what I was looking for!!!
29.06.2014 - 20:19
Ballade#balladecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. PEYSA: Fitjið upp 230-230-266-266-302-302 l á hringprjóna nr 4 með Alpaca Bouclé. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 34-35-36-36-37-38 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað eins og áður yfir fyrstu 81-81-93-93-105-105 l, 7 l garðaprjón, 54-54-66-66-78-78 l sléttprjón, 7 l garðaprjón og prjónið eins og áður yfir síðustu 81-81-93-93-105-105 l. Á röngu er prjónað eins og áður með 7 l garðaprjón eins og frá réttu. Í næstu umf frá réttu er felld af miðju-l af þeim 7 l garðaprjón fyrir handveg og prjónið síðan hvorn hluta fyrir sig svo að það verði op fyrir handveg. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið eftir síðustu 84-84-96-96-108-108 l á prjóni og setjið þær 144-144-168-168-192-192 l sem eftir eru á þráð. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón við handveg og 2 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm. Setjið l á þráð og prjónið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 84-84-96-96-108-108 l á prjóninn, prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. Passið uppá að hægra framstykki verði eins langt og vinstra framstykki. Setjið l á þráð og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: Setjið til baka miðju 60-60-72-72-84-84 l á prjóninn. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm. Passið uppá að bakstykkið verði eins langt og hægra og vinstra framstykki. Setjið til baka öll þrjú stykkin á prjóninn og prjónið þannig: Prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni yfir fyrstu 81-81-93-93-105-105 l, 3 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir 54-54-66-66-78-78 l, 3 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 3 l garðaprjón, sléttprjón og 2 kantlykkjur í garðaprjóni yfir síðustu 81-81-93-93-105-105 l. Prjónið garðaprjón og sléttprjón til baka alveg eins frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 2 kantlykkjur í garðaprjóni þar til stykkið mælist 73-75-77-79-81-84 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið laust af frá réttu. ERMI: Stykkið er prjóna fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-35-37-38-39-41 l á hringprjóna nr 4 með Alpaca Bouclé. Prjónið 8 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 3-3-3-2½-2½-2½ cm millibili 13-13-14-15-16-17 sinnum til viðbótar = 60-63-67-70-73-77 l á prjóni. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm. Fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf = 58-61-65-68-71-75 l eftir á prjóni. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í hvorri hlið á stykki í byrjun á hverri umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum = 18-21-25-28-31-35 l eftir á prjóni. Fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 58-59-60-61-62-63 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #balladecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.