Johanna skrifaði:
Very nice set, I'll definitely be making it! I also really appreciate the info about how much yarn is actually needed to make the whole set, that way I won't end up with loads of scrap yarn that I don't know what to do with. Please do that on more other sets as well!
07.07.2014 - 10:43Lauren McRoberts skrifaði:
Cute set. Please include this year.
03.06.2014 - 14:02
Winter Blues#winterbluesset |
|
|
|
Heklað hálsskjól, eyrnaband og handstúkur úr DROPS Big Delight.
DROPS 158-42 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með tbt (á ekki við um hálsskjól) er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka neðan frá og upp og saumað saman í lokin. HÁLSSKJÓL: Heklið 3 ll á heklunál nr 5 með Big Delight og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 3 ll + 4 st um ll-hringinn. Snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hvern st. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 5 ll + 2 tbst + 1 st í 1. Fl, 1 st í hverja fl þar til 1 fl er eftir, heklið 1 st + 3 tbst + 2 þbst í síðustu fl. Snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l. Snúið við. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umf 3 og 4 þar til 47-53-53 fl eru í umf – stillið af eftir umf með fl (ranga) og heklið 23-23-26 LAUSAR ll í lok þessarar umf * klippið EKKI frá (síðar er heklað héðan)! Notið nýjan þráð og heklið upp nýjar ll í 1. fl í sömu umf þannig: Heklið 1 kl + 23-23-26 LAUSAR ll – klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu l 93-99-105 l í umf. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram frá *-* þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 st í hverja ll og fl = 93-99-105 st. Snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl í hvern st. Snúið við. Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 18-22-24 cm. Klippið frá (haldið eftir smá enda fyrir frágang). Hálsskjólið mælist ca 34-40-42 cm á hæð við miðju að framan. FRÁGANGUR: Saumið saman skammhliðar. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Heklið 69-72-74 LAUSAR ll á heklunál nr 5 með Big Delight. UMFERÐ 1 (= ranga): Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja ll, snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tbst í hverja fl. Endurtakið þessar 2 umf alls 4 sinnum – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umf 1 einu sinni til viðbótar. Stykkið mælist ca 10,5 cm á hæð og 49-51-53 cm á breidd. Klippið frá – haldið eftir smá enda fyrir frágang. Heklið nú band þannig: Heklið 7 ll. Snúið við og heklið 1 fl í hverja l. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 10 cm – haldið eftir smá enda fyrir frágang. FRÁGANGUR: Saumið saman skammhliðar á bandi í hring og þræðið á eyrnabandið. Saumið saman skammhliðar á eyrnabandi í hring. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka neðan frá og upp og saumað saman í hlið, síðan er þumallinn heklaður. HANDSTÚKA: Heklið 22-24-25 LAUSAR ll á heklunál nr 5 með Big Delight. UMFERÐ 1 (= ranga): LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja ll, snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tbst í hverja fl, snúið við. Endurtakið umf 1 og 2 alls 2 sinnum – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið 2-3-4 umf með 1 fl í hverja fl. Endurtakið síðan umf 1 og 2 einu sinni. Setjið eitt prjónamerki í hlið (hér verða l teknar upp fyrir þumal síðar). Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 18-19-20 cm, stillið eftir umf 1. FRÁGANGUR: Brjótið handstúkuna saman tvöfalda, saumið saman kant í kant meðfram hliðum í gegnum bæði stykkin frá byrjun á stykki að prjónamerki. Festið enda. Mælið 3-3½-4 cm (þumall) upp frá prjónamerki og saumið þaðan upp að kanti. Heklið í kringum op fyrir þumal þannig: 1 kl, * 1 ll, 8-10-11 fl í kringum op fyrir þumal, endið á 1 kl í 1. fl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Heklið nú 1 umf þar sem auknar eru út 2 fl jafnt yfir með því að hekla 2 fl í sömu fl = 10-12-13 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra handstúku á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterbluesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.