Mamenko skrifaði:
Il est dommage que ce tricot ait été tricoté dans une laine aussi foncée : on ne voit pas du tout à quoi peut ressembler le point.
04.07.2014 - 18:17
Cara11 skrifaði:
Looks great - will be a project for this winter ;-)
30.06.2014 - 16:12
Michaela skrifaði:
Mit der tollen CM gestrickt ist dies sicher ein sehr schönes Teil!
25.06.2014 - 15:03
Martina Herold skrifaði:
Das Modell möchte ich gerne nacharbeiten !!!
15.06.2014 - 20:58
Diana skrifaði:
Wat een mooi vest zeg. Ik hoop echt dat deze erdoor komt.
07.06.2014 - 21:38
Bente skrifaði:
Endelig en model som nemt kan strikkes i sort Den vil være et hit bland unge mennesker her i dk
06.06.2014 - 21:07
Eve skrifaði:
Something exactly for me!
04.06.2014 - 23:59
José skrifaði:
Mooi vest. Niet moeilijk te maken denk ik.Die zou ik breien in wolwit.
03.06.2014 - 19:31
Black Pearl#blackpearlcardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle. Stærð S - XXL.
DROPS 157-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: (1. umf = ranga): * = 1 umf sl frá röngu, 1 umf sl frá réttu, 1 umf br frá röngu og 1 umf sl frá réttu *, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um kraga): Aukið út með því að prjóna 2 l í næst síðustu l. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 5 kantlykkjur að framan + útauknar lykkjur fyrir kraga. Fækkið lykkjum á undan l í garðaprjóni þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir l í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 ls l, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 21, 28 og 35 cm. STÆRÐ M: 22, 29 og 36 cm. STÆRÐ L: 23, 30 og 37 cm. STÆRÐ XL: 24, 31 og 38 cm. STÆRÐ XXL: 25, 32 og 39 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-98-106-116-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið með 4 cm millibili 4 sinnum = 82-90-98-108-118 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 90-98-106-116-126 l. Jafnframt þegar stykkið mælist 35 cm er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l til loka. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: 4 l 1 sinni, 3 l 0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 1-1-2-2-4 sinnum og 1 l 2-2-3-4-3 sinnum = 74-76-78-80-84 l. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66 cm fellið af miðju 22 l fyrir hálsmáli. Fellið nú af í hvorri hlið fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 1 l 2 sinnum = 24-25-26-27-29 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-54-58-63-68 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 10 umf garðaprjón, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Samtímis þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9 cm fækkið lykkjum og aukið út í hlið eins og á bakstykki = 50-54-58-63-68 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 35 cm er prjónað mynstur yfir allar l (nema kantur að framan sem er áfram prjónaður í garðaprjóni) til loka. KRAGI: Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39 cm er aukið út um 2 l innan við fyrstu kantlykkju við miðju að framan. Í næstu umf eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7 l við miðju að framan (hinar l á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið nú yfir allar l – jafnframt er aukið út um 1 l innan við síðustu kantlykkju að framan – sjá ÚTAUKNING: 10 sinnum í annarri hverri umf og síðan 4 sinnum í 4. hverri umf = 16 l útauknar fyrir kraga – útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43 cm ef fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA: 1 l í annarri hverri umf 18 sinnum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45 cm er fellt af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. Eftir alla affellingu/úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 40-41-42-43-45 l á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68 cm. Fellið nú af 24-25-26-27-29 l á öxl = 16 garðaprjóns kraga-l eftir á prjóni. KRAGI: Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir kraga þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 10 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7 cm lengst inn (það eru þá ca 14 cm lengst út). Setjið l á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki en fellið af fyrir handvegi og hálsmáli í gagnstæðri hlið. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í kanti að framan. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 47-47-49-53-53 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjónar nr 4 með Cotton Merino. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón í 7 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt á eftir garðaprjóni er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 3,5-3-2,5-2,5-2 cm millibili alls 12-14-15-15-17 sinnum = 71-75-79-83-87 l. Jafnframt þegar ermin mælist 38-36-34-32-30 cm prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – til loka. Þegar ermin mælist 49-48-46-44-43 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf : 4 l 1 sinni, 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 3-4-6-7-11 sinnum, fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm, að lokum er fækkað um 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið kraga saman við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið kragann niður við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra kant að framan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant með 2 þráðum Cotton Merino með heklunál nr 5 meðfram vinstri kanti að framan, í kringum kraga og niður meðfram hægri kanti að framan. Heklið krabbahekl, þ.e.a.s. heklaðar eru fl frá vinstri til hægri. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blackpearlcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.