Charlotte skrifaði:
Kan det virkelig passe at man skal springe ærmehullerne over på hver eneste række? Så der ender med at være en hel buket af garn under hvert ærme?
28.02.2019 - 20:01DROPS Design svaraði:
Hei Charlotte. Du hekler 4-4-4-6 (6-8) luftmasker, hopper over 28-32-32-36 (36-40) fastmasker og fortsetter videre med staver. Når du så neste omgang kommer til under ermet hekler du staver over luftmaskene du la opp under ermet på samme måte som resten av bolen. De maskene du hoppet over er de maskene du senere hekler erme i. God fornøyelse
04.03.2019 - 11:34
Ailsa Wood skrifaði:
When you get to the 4ch at the arms do you leave them separate from the rest or are the all crocheted together thanks
13.02.2019 - 02:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Wood, after you have skipped the stitches for sleeves and crochet 4 chains over these stitches, you crochet the BODY, ie crochet 1 dc in each stitch from previous row (front piece, the 4 chains for armhole, back piece, in the 4 chains for armhole, front piece) = 74-116 dc (see size). On next row (= tr), increase evenly to 76-122 tr. Happy crocheting!
13.02.2019 - 09:26
Christina Maisano skrifaði:
In the body of the pattern it says “ finish opening for band mid front”. I’m not sure what I’m supposed to do for this. Could you please clarify? Thank you Christina
08.10.2018 - 13:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Maisano, the opening for band is finished when piece measures approx. 24-29-34-39 (44-48) cm from neck. Inser a mrker in each side and continue back and forth as before. There will be a seam from the marker to the bottom of body (before dividing for legs) - and a crocheted edge from the neck to the marker. Happy crocheting!
08.10.2018 - 14:23Natalie skrifaði:
I have attempted to try this pattern to no avail. i get to the part of 1st lot of raglan to the last of the increases and end up with too few stitches. I am attempting 6/9 month. i am ending up with 128 instead of 144. Am i supposed to do 2sc + 2ch + 2 sc in both ch spaces?
23.08.2018 - 01:52DROPS Design svaraði:
Hi Natalie, You work 1 tr in each stitch apart from the raglan lines. You work 2 tr + 2 ch + 2 tr in both chain-spaces on each side of the stitches with markers, an increase of 16 tr on the row and you work these increases a total of 5 times in your size. This leaves you with 144 stitches. Hope this helps and happy crocheting!
23.08.2018 - 07:25
Tzivia Weinbaum skrifaði:
It doesn't say on the pattern how many slip stitches to make my chain???
17.11.2017 - 02:09DROPS Design svaraði:
Dear Tzivia, you start with 37-41-45-45 (49-49) chain stitches (depends on which size you need to make). For more information please see description under the Yoke. Happy crocheting!
17.11.2017 - 07:44
PaOla skrifaði:
Sicuramente potevo anche arrivarci....sono entrata in confusione e ho disturbato inutilmente...... grazie x la pazienza Paola
21.08.2017 - 14:59
Paola skrifaði:
Buongiorno non capisco questo "Lavorare 2 m.a + 2 cat + 2 m.a in ogni arco di cat in ogni raglan (= 16 m.a aumentate - ATTENZIONE: Lavorare nei 2 archi)" quali sono i due archi! Ne ritrovo solo uno... Grazie
20.08.2017 - 14:22DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola. Deve lavorare nei due archi di catenelle dei due giri sotto. Buon lavoro!
20.08.2017 - 17:58
Paola skrifaði:
Grazie!!!!
28.07.2017 - 22:42
Paola skrifaði:
Salve, mi serve consiglio x fare taglia 3/6 mesi. Vedo che non viene indicata, anche in altri modelli. C'è qualche trucco x fare questa taglia di mezzo.? Nelle misure indicate ad es. X lunghezza si passa da 53 cm (taglia 1/3) a 62 cm (taglia 6/9) Grazie mille!
28.07.2017 - 18:21DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola. Potrebbe per esempio lavorare una lunghezza di 57 cm o misurare un capo analogo . Generalmente si consiglia di lavorare i vestiti per bimbi piccoli in una taglia più grande per poter essere indossati un po' di più. Buon lavoro.
28.07.2017 - 19:07
Sanne skrifaði:
Jag förstår inte hur jag ska göra armarna. I armhålan är det fm och resten är också fm senaste varvet. Det är alltså meningen att jag ska börja i armhålan? Och virka fram och tillbaka för att sedan sy ihop när klart.. Men hur börjar jag? Om jag gör massa luftmaskor som de står i beskrivningen så blir det ju stora hål... Tacksam för snabbt svar
12.05.2017 - 11:55DROPS Design svaraði:
Hej Sanne, jo men du skall börja som det står i mönstret med 2 lm(se din str), sedan 1 fm i varje m och 4 lm (se din str). Det blir ett mindre hål under ärmen, men det syr du när du kommer till monteringen. Lycka till!
12.05.2017 - 12:27
Baby Blues#babybluesoverall |
|
![]() |
![]() |
Heklaður galli fyrir börn með laskalínu og röndum úr DROPS Karisma. Stærð 0-4 ára
DROPS Baby 25-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf. Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf. UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ: * 1 umf með fl (heklið frá röngu), 1 umf með st (heklið frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð). RENDUR: Allt settið er heklað í röndum þannig: * 1 umf fl frá röngu með litnum natur og síðan 1 umf st frá réttu með litnum natur, 1 fl frá röngu með litnum ljós blágrár og síðan 1 umf st frá réttu með litnum ljós blágrár *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 37-41-45-45 (49-49) LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós blágrár. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 36-40-44-44 (48-48) fl. Snúið stykkinu við og heklið 1 fl til baka frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 8 fl jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 44-48-52-52 (56-56) fl í umf. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að framan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 6-7-8-8 (9-9) fl (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 8 fl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 12-14-16-16 (18-18) fl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 8 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fl (nú eru 6-7-8-8 (9-9) fl eftir síðasta prjónamerki á hægra framstykki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 56-60-64-64 (68-68) st í umf. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ og RENDUR – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í hverja umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínum). JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu (þ.e.a.s. í umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-4-4-5 (5-6) sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-6 (6-7) sinnum) = 120-140-144-160 (164-180) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 16-19-20-22 (23-25) fl (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 28-32-32-36 (36-40) fl (= ermi), heklið 4-4-4-6 (6-8) ll, heklið 1 st í hverja af næstu 32-38-40-44 (46-50) fl (= bakstykki), hoppið yfir næstu 28-32-32-36 (36-40) fl (= ermi), heklið 4-4-4-6 (6-8) ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 16-19-20-22 (23-25) fl (= hægra framstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fyrsta umf er hekluð frá röngu – heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja af 4-4-4-6 (6-8) ll undir hvorum handveg = 72-84-88-100 (104-116) fl í umf. Haldið áfram fram og til baka með umferð með áferð og rendur eins og áður – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! JAFNFRAMT í 1. umf (= st frá réttu), aukið út um 4-0-2-2 (4-6) st jafnt yfir = 76-84-90-102 (108-122) st. Þegar stykkið mælist ca 24-29-34-39 (44-48) cm frá hálsmáli (þ.e.a.s. ca 27-32-37-42 (47-51) cm frá öxl) – stillið af að síðasta umf er 1 umf með litnum natur og st frá réttu, ljúkið við opið við kant við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Haldið áfram fram og til baka eins og áður. Þegar stykkið mælist 27-32-38-43 (49-53) cm frá hálsi (og ca 30-35-41-46 (52-56) cm frá öxl), skiptið stykkinu upp og hvor skálm er nú hekluð til loka fyrir sig. SKÁLM: Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með umferð með áferð og rendur fram og til baka yfir fyrstu 38-42-45-51 (54-61) l í umf (þ.e.a.s. yfir helming af l). Þegar skálmin mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 fl/st í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2-3-3 (3½-3½) cm millibili, 4-4-4-4 (5-7) sinnum til viðbótar alls 5-5-5-5 (6-8) = 28-32-35-41 (42-45) l. Þegar skálmin mælist 11-14-17-20 (25-30) cm frá prjónamerki skiptið nú yfir í litinn ljós blágrár og heklið fl fram og til baka í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Skálmin mælist ca 15-18-21-24 (29-34) cm og allt settið mælist ca 45-53-62-70 (81-90) cm frá öxl. Heklið hina skálmina á sama hátt. ERMI: = 28-32-32-36 (36-40) l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fyrsta umf er hekluð frá réttu þannig (rendurnar halda áfram eins og áður): Heklið 2-2-2-3 (3-4) ll, heklið 1 st í hverja l og heklið 2-2-2-3 (3-4) ll. Snúið við, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja af næstu 0-0-0-1 (1-2) ll, 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja af 2-2-2-3 (3-4) ll frá byrjun fyrri umf = 32-36-36-42 (42-48) l í umf. Haldið áfram með áferð og rendur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-2-2½-2 (2-2) cm millibili, 3-4-4-7 (7-9) sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-8 (8-10) sinnum) = 24-26-26-26 (26-28) l. Þegar ermin mælist 9-11-13-15 (19-24) cm frá prjónamerki er skipt yfir í litinn ljós blágrár. Heklið fl fram og til baka í 4 cm, klippið frá og festið enda. Ermin mælist 13-15-17-19 (23-28 cm) frá prjónamerki. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Brjótið uppá kantinn neðst niðri á ermum. Saumið saman op við miðju framan við prjónamerki þar sem kantur að framan endaði og niður að skiptingu að skálmum – saumið yst í lykkjubogana. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá röngu neðst niðri á vinstra framstykki með litnum ljós blágrár og heklið 1 fl í st yst í röndina með litnum natur, * heklið 2 st + 2 ll + 2 st um næsta st (þ.e.a.s. í st neðst í rönd með litnum ljós blágrár), 1 fl um næsta st (þ.e.a.s. í st neðst á rönd með litnum natur) *, endurtakið frá *-* upp meðfram vinstra framstykki að hálsmáli og endið á 1 kl yst í hornið við hálsmál. Snúið við og heklið frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), síðan er heklaður 1 st á milli hverra l og 1 st í ll-boga á hverjum st-hópi. Klippið frá og festið enda. Saumið niður kant að framan neðst niðri við skiptinguna. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN OG í HÁLSMÁLI: Heklið eins og vinstri kant að framan, en byrjið frá réttu neðst niðri á hægra framstykki, heklið eins og vinstri kantur að framan upp að hálsmáli, en í stað þess að enda á 1 kl í horni við hálsmál heldur kanturinn áfram í kringum hálsmál þannig: Heklið 1 fl í hverja l meðfram hálsmáli þar til 3 l eru eftir á undan laskalínu, hoppið yfir þessar 3 l og heklið 4 st í l í laskalínu, hoppið yfir 3 næstu l og haldið áfram með 1 fl í hverja l þar til 3 l eru eftir á undan næstu laskalínu, hoppið yfir þessar 3 l og heklið 4 st í næstu laskalínu. Haldið svona áfram hringinn í kringum hálsmál og endið á 1 kl yst í umf. Snúið við og heklið aðra umf eins og á vinstri kanti að framan. Klippið frá og festið enda. MEIRI FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Byrjið á 1 tölu efst í rönd í litnum ljós blágrár, síðan á að vera 1 tala í annarri hverri rönd í litnum ljós blágrár. Tölum er hneppt í gegnum gat innst í "sólfjöður" í kanti að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babybluesoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.