BlackMai skrifaði:
In der Anleitung steht "Gleichzeitig nach 10cm auf jeder Seite des ersten Rapports. .." das Wort gleichzeitig verwirrt mich und ich würde gerne wissen ob die 10cm Gesamtlänge sind oder 10cm die ich in A.2 gestrickt haben muss.
26.03.2015 - 15:40DROPS Design svaraði:
Es ist die Gesamtlänge gemeint, ab Anschlag. Sie stricken also A.1 1x in der Höhe, danach wie beschrieben glatt re und mit A.2. In dieser Weise, glatt re und mit A.2, stricken Sie ja den ganzen Schaft, machen dann aber bei einer Gesamtlänge von 10 cm die ersten Abnahmen - deshalb das Wort "gleichzeitig".
26.03.2015 - 17:56
Ellen skrifaði:
Snyggt! Förhoppningsvis lyckas jag förstå mönstret, tycket nämligen det är svårt att läsa mönster.. Men jag har velat ha ett par knästrumpor länge nu men jag glömmer alltid bort att köpa, så varför inte prova att virka själv? :D xD
02.10.2014 - 21:18
Britta skrifaði:
Det är från knä till fot (uppifrån och ner) och längden är klart rimlig.
18.08.2014 - 18:59
Sofia. skrifaði:
"LÄS MINSKNTIPS, upprepa minskn på varannan cm 13-14-15 ggr till (totalt 14-15-16 minskn) = 54-58-62 m. Fortsätt tills arb mäter ca 44-46-48 cm." Jag vet inte hur ni är skapta, men mina ben, från fot till knä, är verkligen inte mellan 44 - 48 cm. Det är så eländigt att måste riva upp alltihopa för att ändra mönstret efter eget huvud. För det är trots allt en knästrumpa.
17.08.2014 - 05:58
Shelly Sargent skrifaði:
Am struggling with the decreases on the upper of the sock. Are they done strickly on each side of the first A2 pattern. Finding the wording confusing and don't want to continue until I know. Not sure how to move on with this.
29.05.2014 - 16:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sargent, dec are done each side of 1st A.2 (on mid back): slip 1 st as if to K, K1, psso, work A.2, then K2 tog (= 2 sts dec). Happy knitting!
29.05.2014 - 18:35
Linda skrifaði:
Hej.tänkte göra dessa men, är garnet beräknat för 1socka eller per par? Socka modell 154-31
20.03.2014 - 11:33DROPS Design svaraði:
Hej Linda Garnåtgången är för 1 par strumpor. Så du behöver totalt 3-3-4 nystan Fabel beroende på vilken storlek du ska sticka sockarna i.
27.03.2014 - 22:39
Pia skrifaði:
De er bare superlækre og opskriften er lige til at gå til :-)
04.03.2014 - 18:27
Kirsten skrifaði:
Kann es sein, dass in der Erklärung zum Diagramm der Strickschrift Fehler sind? So wie es aussieht weren mehr Maschen abgenommen als zugenommen und A1 ist gar nicht strickbar.
31.01.2014 - 07:49DROPS Design svaraði:
Liebe Kisten, vielen Dank für den Hinweis, da ist in der Reihenfolge der Legende etwas durcheinander gekommen, wir werden das sofort korrigieren und entschuldigen uns für die Umstände.
31.01.2014 - 08:18
Nina skrifaði:
Hej är det inte lite fel i beskrivningen ?misstänker 3st omkastade förklaringar till diagrammet/Nina
30.01.2014 - 07:54DROPS Design svaraði:
Hej Nina. Kan du forklare hvad du mener er fel og hvor i beskrivningen? Tack.
30.01.2014 - 10:27
Marisca skrifaði:
Why can't i click on the butten to go to the pathern? I really want to make these!!!
29.01.2014 - 15:15
Little Women#littlewomensocks |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir háir sokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43
DROPS 154-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við fyrstu mynstureiningu A.2 – byrjið á 2 l á undan A.2 þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, A.2, 2 l slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 15-15-17 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 98-104-110 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið stroff 1 l sl, 1 l br í 3 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 16 l jafnt yfir = 82-88-94 l. Prjónið nú A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónað áfram þannig: 15-17-19 l sléttprjón, A.2 (= miðja að aftan), 18-21-24 l sléttprjón, A.2 (= miðja að framan), 3-4-5 l sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við fyrstu mynstureiningu A.2 – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 13-14-15 sinnum til viðbótar (alls 14-15-16 úrtökur) = 54-58-62 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 44-46-48 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu A.2. Haldið síðan eftir fyrstu 25-27-29 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 29-31-33 l á þráð (= miðja ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hæl-l í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá skýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 l hvoru megin við hæl og 29-31-33 af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-74-82 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 29-31-33 l ofan á fæti. Haldið nú áfram í sléttprjóni undir fæti og A.2 ofan á fæti eins og áður. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l Á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogana í stað framan) og prjónið 2 fyrstu l Á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 8-8-10 sinnum til viðbótar (alls 9-9-11 úrtökur) = 52-56-60 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl, stillið af eftir heila mynstureiningu A.2 (= ca 4-4-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram með sléttprjóni yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman. Á eftir prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 5-6-7 sinnum og síðan í hverri umf 5-4-4 sinnum = 12-16-16 l eftir á prjóni. Klippið frá og festið enda, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þræðið 1 silkiborða í gataumferðina efst á sokknum og hnýtið slaufu. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlewomensocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.