DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 154-28
DROPS Design: Mynstur nr fa-268
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm.
Hæð á sokk: 19 - 21 - 23 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 623, bleik þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (= 5 l). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Þegar aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt.

HÆLÚRTAKA (prjónuð í sléttprjóni):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 10-11-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 10-11-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 9-10-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 9-10-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 15-15-17 l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum hvoru megin á fæti þannig:
Byrjið 3 l á undan mynstri: Prjónið 3 l snúnar slétt saman, þ.e.a.s. setjið hægra prjón aftan í lykkjubogana á öllum 3 næstu l = 2 l færri.
Strax eftir mynstur: Prjónið 3 l slétt saman = 2 l færri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 70-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l br, 3 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 2 cm. Prjónið A.1 14 sinnum. Prjónið A.1 þar til stykkið mælist 13-14-15 cm. Aukið síðan út 1 l á milli 7. og 8. mynstureiningar A.1 og 1 l á milli 14. og 1. mynstureiningar A.1 – sjá ÚTAUKNING = 72-72-72 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 umf í mynstri eins og áður JAFNFRAMT eru fyrstu 37-37-37 l settar á þráð (= 1 útaukin lykkja, 35-35-35 l = A.1 7 sinnum, 1 útaukin lykkja) = 35-35-35 l eftir á prjóni (= 7 sinnum A.1). Setjið 1 prjónamerki hér, héðan er nú mælt!
Prjónið fram og til baka yfir 35 l sem eftir eru (= hæll) JAFNFRAMT er haldið áfram með A.1. Þegar hællinn mælist 8-9-10 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) prjónið sl yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 2 l jafnt yfir í stærð 35/37, 0 l í stærð 38/40 og aukið út um 2 l jafnt yfir í stærð 41/43 = 33-35-37 l á hæl. Prjónið 1 umf br JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki, héðan er nú mælt! Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan – allar hællykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 21-23-26 l hvoru megin við hæl – prjónaðar eru upp l innan við síðustu l hvoru megin við hæl-l og 37-37-37 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 94-98-106 l. Haldið áfram hringinn með mynstur ofan á fæti – lykkjur undir fæti eru prjónaðar í sléttprjóni – JAFNFRAMT í 1. umf eru prjónaðar 3 l á undan mynstri snúnar slétt saman og 3 l á eftir mynstri eru prjónaðar slétt saman (= 4 l færri í hverri umf) – sjá ÚRTAKA – endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umf alls 6-6-7 sinnum, síðan er haldið áfram með úrtöku í hvorri hlið á fæti með því að prjóna 2 l á undan mynstri snúnar slétt saman og 2 l á eftir mynstri eru prjónaðar slétt saman (= 2 l færri í hverri umf) – endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 6-7-8 sinnum = 58-60-62 l.
Prjónið A.1 og sléttprjón þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (endið fallega og miðið við mynstur) = ca 4-4-5 cm eftir að tá. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni. Síðan í næstu umf er lykkjum fækkað um 8-6-2 l jafnt yfir ofan á fæti = 50-54-60 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 25-27-30 l ofan á fæti og 25-27-30 l undir fæti. Nú er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 2-2-2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, (prjónamerki), 2 l snúnar slétt saman – endurtakið úrtöku á hvorri hlið í annarri hverri umf alls 4 sinnum og síðan í hverri umf alls 6-7-8 sinnum = 10-10-12 l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2016
Leiðrétting á tá

Mynstur

symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l sl, steypið óprjónuðu l yfir þær 2 l sl
symbols = l er ekki með í þessari umf
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Georgiana wrote:

Hi I wrote you a short time ago about the 2 increased stitches before the heel.I think I figured it out. Thanks.

09.04.2024 - 20:46

country flag Georgiana Argento wrote:

Hi, love the pattern but I am a bit confused regarding the 2 increases before the heel. Won't these 2 extra stitches affect the pattern? I have been knitting socks for 30 years but I have not been able to figure this one out. What am I missing? Help please. Thank you.

09.04.2024 - 18:31

DROPS Design answered:

Dear Georgiana, those increased stitches will be the outermost stitches of the upper feet part of the sock, and you will decrease where these stitches are. Since after the heel you are only knitting teh pattern on the upper feet, those two stitches will not effect it. Happy Knitting!

09.04.2024 - 23:28

country flag Britt-Marie Philip wrote:

Upplägg 70 m, men mönstret är över 4 m. Borde lägga upp 68? Eller

28.11.2020 - 17:33

DROPS Design answered:

Hei Britt-Marie. Nei, både vrangborden og diagram A.1 er over 5 masker, og da stemmer det med 70 masker. mvh DROPS design

30.11.2020 - 13:03

country flag Edith wrote:

Hallo! Ich glaube dass sich in der deutschen Anleitung bei den Abnahmen für die Spitze ein Fehler eingeschlichen hat, ich bezweifle dass tatsächlich vier Maschen zwischen den Abnahmen gestrickt werden sollen. In der englischen Fassung werden symmetrisch Abnahmen um die Markierung gestrickt, ich denke das ist die korrekte Anleitung. Viele Grüße

09.10.2020 - 19:26

DROPS Design answered:

Liebe Edith, vielen Dank für Ihren Hinweis! Sie haben Recht, es wird direkt vor und nach der Markierung abgenommen, ohne dazwischen noch Maschen zu stricken. Die Anleitung wurde soeben korrigiert. Viel Spaß mit diesen schönen Socken!

12.10.2020 - 09:24

country flag Brugere wrote:

Bonjour je ne comprends toujours pas vos explications , ces augmentations se font bien avant de monter les 10 cm de talons et non pas après ? Pouvez vous me l expliquer pas à pas merci cordialement

20.08.2020 - 09:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brugere, quand vous avez augmenté et 72 m sur les aiguilles, vous tricotez 1 tour en glissant les 37 premières mailles en attente et tricotez les 35 mailles restant sur les aiguilles pendant 10 cm pour le talon (= continuez les torsades comme avant). Quand le talon mesure 10 cm, tricotez 1 rang endroit en augmentant 2 mailles = 37 m. Tournez, tricotez les 37 m à l'envers sur l'envers, tournez et tricotez maintenant les diminutions du talon (en jersey) sur les 37 m. Dites moi si c'est plus clair ainsi :) Bon tricot!

20.08.2020 - 10:13

country flag Brugere wrote:

Bonjour, SVP je ne comprends pas le rang d augmentations avant le talon. je dois travailler le rang avec un motif ou tous en jersey ? Merci de votre aide Cordialement

18.08.2020 - 18:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brugere, vous tricotez le point fantaisie sur les 35 mailles du talon, puis, quand le talon mesure 10 cm, tricotez le rang suivant à l'endroit sur l'endroit en augmentant en même temps 2 m = 37 m (vous ne tricotez plus le point fantaisie mais maintenant en jersey), tricotez 1 rang envers sur l'envers, tournez et commencez les diminutions du talon. Bon tricot!

19.08.2020 - 07:50

country flag Évelyne wrote:

Bonjour, je ne comprends pas le second rang du diagramme (pas de maille sur ce tour). Merci de m'apporter l'explication.

06.03.2019 - 19:44

DROPS Design answered:

Bonjour Évelyne, au 1er rang de A.1, on diminue 1 maille (= on glisse 1 maille à l'end, on tricote 2 mailles et on passe la maille glissée par-dessus les 2 mailles tricotées = il reste 2 m end au milieu de A.1). Au rang suivant, on tricote ces 2 m ainsi: 1 m end, 1 jeté, 1 m end. Cette vidéo explique comment tricoter ce type de petites torsades. Bon tricot!

07.03.2019 - 10:09

country flag Louise wrote:

Hej, jeg kan ikke få det til at passe i slutningen når der er 70 masker. Jeg har én ret tilbage. Hvordan skal jeg få det til at passe?

13.08.2018 - 11:25

DROPS Design answered:

Hej Louise, jo om du strikker ifølge opskriften * 1 vr, 3 r, 1 vr * så vil du kunne strikke det 14 gange, det vil sige du strikker 2vr, 3 ret hele vejen rundt. God fornøjelse!

14.08.2018 - 15:01

country flag Luise wrote:

Hallo ich habe eine Frage. Ganz am Anfang der Anleitung sind ja die zwei cm Rippenmuster (1li,3re,1li...). Wenn ich 70 Maschen aufgenommen habe geht das Muster bei mir nicht glatt auf am Ende der vierten Nadel. Ich Ende mit:1li,1re. Ich denke ich müsste normalerweise mit 3re enden. Mache ich was falsch, oder stimmt das so? Wenn ich 72 statt 70 M nehme könnte das Rippenmuster aufgehen, aber passt das dann noch mit dem Muster von A1. Ich wäre sehr dankbar um schnelle Hilfe!

25.05.2018 - 02:07

DROPS Design answered:

Liebe Luise, Rippenmuster wird so gestrickt: (1 li, 3 re, 1 li) x 14 M = 5 M x 14 = 70 M, am Ende der Runde enden Sie mit einem vollen Rapport (1 li, 3 re, 1 li). Viel Spaß beim stricken!

25.05.2018 - 09:25

country flag Andrea Raute wrote:

Ein tolles Muster, leicht zu stricken mit einem tollen Effekt!

02.01.2017 - 10:20