Ulrike skrifaði:
Hallo, auch ich habe Probleme mit dem gegengleichen rechten Vorderteil. Wie ist das zu verstehen?
25.07.2014 - 08:00DROPS Design svaraði:
Liebe Ulrike, siehe Antwort an Claudia vom 21.7.2014
14.08.2014 - 15:35
Mieke skrifaði:
Ik kwam niet uit het spiegelen voor de rechterkant een heen na de eerste toer de draad afgeknipt en ben aan de goede kant met de 2e toer begonnen dit werkt ook alleen een dagje met afwerken Het is een erg mooi vestje maak hem voor mijn schoondochter
24.07.2014 - 15:14
Christina skrifaði:
Mitt tips:KÄMPA PÅ!Det löser sig,men att virka spegelvänt var en pärs!Man ska tänka tvärtom,INTE klippa av tråden efter v.8 (lm-raden blir då på slutet på v. istället för början )annars kommer dst med avigan på rätsidan. Hoppas det löser sig, Maria!!
12.07.2014 - 00:37
Christina skrifaði:
Jag har två frågor/anmärkningar: I mönster för framstycke gör man 4 lm innan man gör 4 dst (när man börjar varv med en "halv halvmåne") medan man i bakstyckets mönster gör 4 lm och sen 3 dst. Sen får jag inte riktigt ihop det på bakstycket vad som är rätsida och inte, enl. mönster ska första varvet dst vara rätsidan, men då kommer dst i "halvmånarna" med avigan på rätsidan..? Snälla, rätta mig om jag har fel! :)
12.07.2014 - 00:35
Maria skrifaði:
Hej. Jag har nu virkat vänster framstycket. Har försökt många gånger med höger nu, men får inte ihop det. Jag vill ju ha dubbelstolparna med rätsidan utåt och så lite det inte. Får inte heller ihop rätt antal lm-bågar. Vad gör jag för fel?
08.07.2014 - 17:13
Inge-Lise Jacobsen skrifaði:
Jeg har købt garn til denne model, men jeg går allerede død i begyndelsen Hækl 54-66-79-92 lm med Cotton Merino på nål 3. Fortsæt med 1 dbl-st i 4.lm fra nålen = 2 dbl-st. hvordan kan 1 dbl-st være 2 dbl skal der stå to stangmasker ?
07.07.2014 - 13:36DROPS Design svaraði:
Hej Inge-Lise. De 3 lm i begyndelsen af omgangen er lig med 1 dbl-st. Så det giver 2 dbl-st når du har hæklet 1 dbl-st i 4. lm
16.07.2014 - 17:48
Claudia skrifaði:
Ich habe noch eine Frage: die Vorderteile fangen mit einer Reihe Doppelstäbchen an, aber das Rückenteil mit zwei. Ist das richtig? Wegen dem Anpassen an das Muster vom Vorderteil.
06.07.2014 - 18:20DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, die Vorderteile haben auch 2 R Doppel-Stb - die 1. R ist in der Anleitung beschrieben, die 2. R arbeiten Sie dann ja als 1. R der Diagramme A.6-A.4. Beim Rückenteil ist die 2. Doppel-Stb-R die, die Sie auch im Diagramm sehen, Sie müssen also beim Rückenteil nach den beiden D-Stb-R direkt mit der Lm-Bögen-R weiterarbeiten.
21.07.2014 - 11:02
Claudia skrifaði:
Das rechte Vorderteil gegengleich häkeln, heißt das, dann mit A4 beginnen oder wie ist das gemeint? Gruß Claudia
05.07.2014 - 17:36DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, entschuldigen Sie bitte die späte Rückmeldung. Ja genau, Sie beginnen dann in der Rück-R mit A.4.
21.07.2014 - 10:51
Ulrike Boss skrifaði:
Hallo, habe Probleme mit der Anleitung, 1.Runde. zw.*1 LM überspringen,je 1 DST in die nächsten 6 LM* soweit klar, insgesamt 7xarbeiten. Nur wie soll A5 gearbeitet werden? Lt. Zeichnung funktioniert das bei mir überhaupt nicht. Können sie mir das nochmals erklären?
04.07.2014 - 16:28
Astrid skrifaði:
Bedankt voor de snelle reactie! Het ziet er nu een stuk beter uit, en meer als op de foto :)
19.06.2014 - 22:58
Summer Blush#summerblushcardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS 154-1 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.8. HEKLLEIÐBEININGAR: ll-bogarnir koma til með að draga sig meira saman en hekl mynstrið á efri hluta á fram- og bakstykki. Peysan kemur þar af leiðandi að fá náttúrulegri þrengingu við mitti án þess að l sé fækkað í mynstri. HNAPPAGAT: Mælt frá hálsmáli að framan og saumið tölur í vinstri kant að framan: STÆRÐ S/M: 1, 7, 14, 21, 28, 35 og 41 cm. STÆRÐ L: 1, 7, 15, 22, 29, 36 og 43 cm. STÆRÐ XL/XXL: 1, 8, 15, 21, 27, 33, 40 og 47 cm. STÆRÐ XXXL: 1, 8, 15, 22, 29, 36, 43 og 50 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í stykkjum, ofan frá og niður og er heklað saman í lokin. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 54-66-79-92 ll með Cotton Merino með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 tbst í 4. ll frá heklunálinni = 2 tbst. Heklið nú þannig: Heklið 1 tbst í hvern af næstu 1-6-5-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-8-10-12 sinnum = 45-56-67-78 tbst. (= umf 1 í mynstri A.4, A.5 og A.6). Heklið nú þannig: UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið síðan A.5 alls 3-4-5-6 sinnum og endið á A.4. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið A.4, heklið síðan A.5 alls 3-4-5-6 sinnum og endið á A.6. Haldið síðan áfram fram og til baka með þetta mynstur, JAFNFRAMT er aukið út fyrir hálsmáli í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) frá umf 6 í mynstri. Þegar umf 8 í mynstri hefur verið heklað frá röngu, klippið frá. Heklið 12 lausar ll, áður en heklað er frá réttu þannig (= umf 9): Heklið 1 tbst í síðasta tbst í umf 8. Haldið síðan áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6 eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-21-23-24 cm er sett eitt prjónamerki fyrir handveg á hlið, JAFNFRAMT þegar A.4, A.5 og A.6 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.X endurtekið þar til stykkið mælist ca 27-29-31-33 cm. Stillið af að mynstrið endi á umf með ll-bogum frá röngu. Heklið nú ll-boga með 5 ll í hvern boga frá réttu þannig: Haldið síðan áfram með umf 1 í A.Z. Endurtakið 4 umf í A.Z þar til stykkið mælist alls 51-55-57-61 cm – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið nú kant með byrjun frá röngu þannig: Byrjið á umf 1 í A.X. Heklið A.6, A.5 3-4-5-6 sinnum á breiddina, A.4. Haldið áfram fram og til baka þar til umf 2 í A.X með tbst-hópa hefur verið hekluð (þ.e.a.s. þar til umf 6 í A.X hefur verið hekluð). Stykkið mælist ca 56-58-62-66 cm. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og heklið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd. Stillið af eftir vinstra framstykki. BAKSTYKKI: Fyrst er hægri öxl hekluð þannig: Heklið 52-64-77-90 ll með Cotton Merino með heklunál nr 3. Klippið frá og geymið stykkið. Heklið síðan vinstri öxl þannig: Heklið 54-66-79-92 ll með Cotton Merino með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 tbst í 4. ll frá heklunálinni = 2 tbst. Heklið nú þannig: Heklið 1 tbst í hverja af næstu 1-6-5-4 ll * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-8-10-12 sinnum = 45-56-67-78 tbst fyrir vinstri öxl. Heklið nú 43 LAUSAR ll, áður en haldið er áfram yfir hægri öxl (þ.e.a.s. ll-umf): Haldið áfram með 1 tbst í 2 fyrstu ll í umf = 2 tbst. Heklið nú þannig: Heklið 1 tbst í hverja af næstu 1-6-5-4 ll * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7-8-10-12 sinnum = 45-56-67-78 tbst við hægri öxl. Snúið við (= ranga) og heklið 1 tbst í hverja af þeim 45-56-67-78 næstu tbst, heklið nú 1 tbst í hverja af næstu 43 ll og endið á 1 tbst í hverja af næstu 45-56-67-78 tbst = 133-155-177-199 tbst. ATH! Þessi síðasta umf er umf 1 í mynstri A.1, A.2 og A.3. Heklið nú í næstu umf (= rétta) þannig: Heklið A.1, heklið nú A.2 alls 11-13-15-17 sinnum og endið á A.3. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 19-21-23-24 cm er sett eitt prjónamerki fyrir handveg í hlið, JAFNFRAMT þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.Y endurtekið þar til stykkið mælist ca 27-29-31-33 cm. Stillið af mynstur eftir framstykkjum. Heklið nú ll-boga með 5 ll í hvern boga frá réttu: - Haldið nú áfram með umf 1 í A.Z. Endurtakið 4 umf í A.Z þar til stykkið mælist alls 51-55-57-61 cm – stillið af eftir framstykkjum. Heklið kant neðst niðri á bakstykki eins og á framstykkjum. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið. Stykkið mælist ca 56-58-62-66 cm. Saumið axlasauma á framstykkjum og bakstykki saman. ERMI: Ermar eru heklaðar fram og til baka frá fram- og bakstykki og út. UMFERÐ 1: Byrjið við annað prjónamerkið og heklið upp ll-boga meðfram haldveg þannig: * 5 ll, hoppið fram ca 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* þar til alls 22-26-27-28 ll-bogar eru á milli beggja prjónamerkja. Haldið síðan áfram með mynstur frá umf 2 í mynstri A.Z, JAFNFRAMT í byrjun á næstu 2 umf er fækkað um 1 ll-boga í hlið – Sjá mynsturteikningu A.7 fyrir vinstri hlið á ermi og A.8 fyrir hægri hlið á ermi. Nú eru 20-24-25-26 ll-bogar eftir. Endurtakið sömu úrtöku í byrjun á næstu 2-4-4-4 umf = 18-20-21-22 ll-bogar eftir. Haldið síðan áfram með ll-boga eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað þannig: Í S/M er fækkað um 1 ll-boga hvoru megin á ermi þegar stykkið mælist 15 cm og í stærð L-XL/XXL-XXXL er fækkað um 1 ll-boga í hvorri hlið þegar stykkið mælist 13-12-11 cm og 1 ll-bogi í hvorri hlið þegar stykkið mælist 19-18-15 cm = 16-16-17-18 ll-bogar eftir. Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-25-23-20 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og stillið af þannig að endað er í næst síðustu umf í A.Z, (þ.e.a.s. ein umf með heilum ll-bogum í hvorri hlið á stykki). Heklið nú kant þannig: Byrjið á umf 1 í A.X (= umf með ll-bogum og hálfum ll-bogum í hvorri hlið á stykki) og heklið þetta mynstur yfir alla ll-bogana neðst á ermi. Haldið áfram fram og til baka þar til umf 6 í A.X hefur verið hekluð (þ.e.a.s. 2. umf með tbst-hópum). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Heklið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt þannig: Heklið 1 fl í framstykki, 3 ll, 1 fl í bakstykki, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í framstykki, 3 ll, hoppið yfir 1 cm, 1 fl í bakstykki *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í annarri hlið á ermi, 3 ll, 1 fl í hina hliðina á ermi. HÁLSMÁL OG KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið nú kant meðfram kanti að framan og hálsmáli. Byrjið neðst á hægra framstykki og heklið þannig: Festið endann með einni fl, * 3 ll, hoppið 1 cm fram, 1 fl *, endurtakið frá *-* meðfram hægri kant að framan, hálsmáli og vinstri kanti að framan. Saumið tölur í á vinstri kant að framan – sjá HNAPPAGAT. Hneppið í gegnum gat í hægra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerblushcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 3 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.